- What: A central bank governor discusses the future of the Icelandic currency
- Impact: Commentary on the potential adoption of the euro
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að ábyrgð á íslensku hagkerfi verði áfram í höndum Íslendinga hvort sem þjóðin tekur upp evru eða ekki. Val á gjaldmiðli sé aðeins eitt af þeim þjóðhagstækjum sem fyrir eru. Upptaka evru yrði ekki til þess að Seðlabanki Íslands yrði lagður niður. „Líf mitt yrði reyndar auðveldara því ég gæti bara vísað til útlanda þegar verið er að skamma mig,“ sagði Ásgeir í gamansömum tón þegar hann ávarpaði málþing í Hörpu í tilefni af útgáfu nýrrar skýrslu sérfræðingahóps um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. „Sama hvort við veljum evru eða krónu þá skiptir máli að við förum eftir þeim leikreglum sem eru. Við höfum prófað nær allar mögulegar leiðir í gjaldmiðlamálum á síðustu hundrað árum, en aldrei farið eftir leikreglum,“ sagði Ásgeir. Ásgeir fór yfir það að upptöku evrunnar fylgdu ýmsir kostir á borð við aukna samkeppni, lægra áhættuálag á markaði og samþættingu viðskipta við önnur lönd. Hins vegar væri ljóst að með upptöku fengju Íslendingar gríðarmikið innflæði fjármagns, sem myndi skila sér í hækkandi eignarverði og lækkun raunlauna. Inntökugengi, þ.e. það gengi sem yrði notað þegar skipt væri yfir í evru, hefði mikil áhrif. Tólf ríki tóku sameiginlega upp evruna upp úr aldamótum. Ásgeir benti á að í hvert sinn sem nýtt ríki hefði tekið upp evruna síðan þá, hefði það verið fátækara en löndin sem fyrir eru. Aðildarferlið, hið svokallaða ERM II-ferli, endurspegli það og hefði það hlutverk að leyfa hagkerfum ríkisins að ná öðrum ríkjum.