Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandaríkin ráðast á íranska eyju í sjálfsvarnarskyni

  • What: US military intercepts Iranian drone and missile attacks
  • Impact: Tensions between US and Iran escalate
Read Full Article →

Bandaríkjaher kom í veg fyrir röð dróna- og flugskeytaárása Írana í kvöld. Frá þessu greinir stjórn hersins í færslu á samfélagsmiðlinum X . Þar hafnar herinn fullyrðingum íranska byltingarvarðarins um að árás Íranshers á flotastöð Bandaríkjanna í Barein hafi verið árangursrík. Flugskeyti Írana hafi þess í stað öll misst marks. Í tilkynningu Bandaríkjahers segir að tveimur flugskeytum Írana sem skotið var að Kúveit hafi hreinlega fallið í sundur. Herir Bandaríkjanna og Barein hafi aftur á móti skotið niður þrjú flugskeyti sem beint var gegn skotmörkum í Barein. Bandaríkjaher sakar Írana um að hafa beint þremur drónum að almennum borgurum á hafi úti. Herinn skaut drónana niður. Ná ekki saman um viðvarandi frið Þá segja Bandaríkjamenn að þeir hafi gert „árás í sjálfsvarnarskyni“ á eyjuna Qeshm, eins og það er orðað. Hún liggur í Hormússundi. Árásin hafi verið gerð sem viðbragð við árásartilraunum Írana. Vopnahléssamkomulag hefur verið í gildi milli Bandaríkjanna og Íran síðan 8. apríl. Viðræður um varanleg endalok stríðsins hafa ekki borið árangur. Fyrr í kvöld greindi Bandaríkjaher frá því að hann hafi skotið flugskeyti að olíuflutningaskipi sem var á leið til hafnar í Íran, þvert á hafnbann Bandaríkjanna sem felur í sér að Bandaríkin leyfa skipum ekki að sigla til eða frá írönskum höfnum í Ómanflóa og Persaflóa. Þetta er sjötta skipið sem herinn hefur stöðvað með valdi frá því að hafnbannið tók gildi 13. apríl.

Share this article