- What: Icelandair labor dispute
- Impact: Employees and passengers affected
Innlent | Morgunblaðið | 3.6.2026 | 7:46 Ráðherrar tjá sig ekki um kjaradeiluna Ekkert virðist þokast í kjaradeilu flugmanna Icelandair við fyrirtækið og enginn sáttafundur boðaður. mbl.is/Sigurður Bogi Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Forsætisráðherra vill ekki tjá sig um kjaradeilu flugmanna Icelandair og fyrirtækisins á meðan málið er í þeirri stöðu sem það er í nú, en Morgunblaðið leitaði eftir viðbrögðum Kristrúnar Frostadóttur við kjaradeilunni sem hefur haft umtalsverða röskun á farþegaflugi til og frá landinu í för með sér. Þá segist Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra ekkert hafa um málið að segja. Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað til fundar í kjaradeilunni, en þar er til skoðunar að boða slíkan fund í vikunni. Því var allt tíðindalaust á þeim vígstöðvum í gær og málið virðist í pattstöðu. Kjaradeilan hefur ekki komið til umræðu í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. „Málið hefur ekki komið til umræðu í nefndinni,“ segir María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar og formaður nefndarinnar, í samtali við Morgunblaðið. Segir hún að nefndin hafi verið í önnum undanfarna daga við að klára þau mál sem í hennar verkahring eru og ljúka þarf fyrir þinglok. „Málið hefur ekki komið formlega upp en við höfum fylgst náið með og ég hef reynt eins og ég get að afla mér upplýsinga um stöðu þess,“ segir hún. „Ég held að mikilvægt sé að vera með sviðsmyndagreiningu og fylgjast vel með þróuninni,“ segir María Rut sem telur stöðuna í vinnudeilunni áhyggjuefni. Grafalvarleg staða „Málið hefur ekki komið inn á okkar borð, en staðan er vissulega grafalvarleg og menn verða að leita allra leiða til þess að leiða þetta mál í jörð. Þetta ástand er ekki viðunandi lengur fyrir félagið og ferðaþjónustuna í landinu,“ segir Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í umhverfis- og samgöngunefnd. Hann segir Icelandair eitt þjóðhagslega mikilvægasta fyrirtæki landsins og það skipti Íslendinga miklu máli að starfsemi þess sé ekki raskað Spurður hvort hann telji að tímabært kunni að vera að stjórnvöld stígi inn í kjaradeiluna, segir Jens Garðar að hann þekki ekki stöðuna í deilunni nákvæmlega. „En það hlýtur að vera ráðherra að vega og meta það á hverjum tíma,“ segir Jens Garðar. Ekki náðist í Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair við vinnslu fréttarinnar, en í smáskilaboðum til blaðsins sagði hann fyrirtækið ekki tjá sig um málið á þessu stigi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ráðherrar tjá sig ekki um kjaradeiluna Íslendings saknað á Taílandi Segir að drónaárás Írana hafi neytt til lokunar flugvallar Mexíkóferðin veitti innblástur að eftirminnilegri uppskrift Ísland eins og heil heimsálfa Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Ráðherrar tjá sig ekki um kjaradeiluna Hegðunar- og agavandamál áberandi Umræðan verið „óvægin, ósanngjörn og röng“ Mest lesið Í gær Í vikunni Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Andlát: Steingrímur Ari Arason Hegðunar- og agavandamál áberandi Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Gáfust upp á að leggja próf fyrir nemendur Erfitt að glíma við ytri áföll Lögmaður kærður fyrir að draga sér talsvert fé Borgin eigi ekki að reka utanríkisstefnu Íslendingar í sérstakri stöðu en glata forskotinu Láta vélmenni slá gras á Klambratúni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Nýjast á mbl.is » Ráðherrar tjá sig ekki um kjaradeiluna Íslendings saknað á Taílandi Segir að drónaárás Írana hafi neytt til lokunar flugvallar Mexíkóferðin veitti innblástur að eftirminnilegri uppskrift Ísland eins og heil heimsálfa Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hegðunar- og agavandamál áberandi Beint: Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar Kannast ekki við ósk lögreglunnar um myndskeið Stefna að upptöku evru Mest lesið Í gær Í vikunni Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Andlát: Steingrímur Ari Arason Hegðunar- og agavandamál áberandi Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Gáfust upp á að leggja próf fyrir nemendur Erfitt að glíma við ytri áföll Lögmaður kærður fyrir að draga sér talsvert fé Borgin eigi ekki að reka utanríkisstefnu Íslendingar í sérstakri stöðu en glata forskotinu Láta vélmenni slá gras á Klambratúni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt