Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Signý tekur við af Jónasi Gesti sem stjórnar­for­maður

Read Full Article →

Signý Magnúsdóttir hefur tekið við sem stjórnarformaður Deloitte á Íslandi. Hún tekur við af Jónasi Gesti Jónassyni sem hefur verið stjórnarformaður félagsins frá 2020. Jónas mun láta af störfum hjá Deloitte á haustmánuðum en mun áfram starfa fyrir félagið sem utanaðkomandi ráðgjafi, sérstaklega í verkefnum sem tengjast sjávarútvegi og tengdum greinum. Jónas hefur starfað hjá Deloitte frá 1994, sem löggiltur endurskoðandi frá árinu 1999 og meðeigandi frá 2001. Hann hefur gegnt margvíslegum störfum fyrir félagið á þessum tíma, meðal annars sem útibússtjóri á Snæfellsnesi, sviðsstjóri Viðskiptalausna og teymisstjóri sjávarútvegsteymis Deloitte. „Ég hef varið stærstum hluta af mínum ferli hjá Deloitte og lít á vinnustaðinn og samstarfsfólkið sem hluta af fjölskyldu minni. Eftir 32 ára starf hjá félaginu finnst mér tímabært að snúa mér að nýjum verkefnum sem sjálfstæður ráðgjafi og nýta þá áralöngu reynslu úr íslensku atvinnulífi sem ég hef byggt upp hjá Deloitte,“ segir Jónas Gestur . „Það hefur verið gaman að sjá félagið vaxa og dafna á þessum tíma. Ég geng því afar sáttur og þakklátur frá borði og er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð hjá Deloitte á Íslandi.“ Signý hóf fyrst störf hjá Deloitte árið 2006 á Endurskoðunarsviði og sem meðeigandi frá 2014. Hún var fjármálastjóri Sýnar frá 2019–2021 en kom þá aftur til starfa hjá Deloitte sem meðeigandi og stjórnarmaður. „Jónas hefur starfað fyrir Deloitte í áratugi og verið í lykilhlutverki við að móta og byggja upp eitt fremsta fyrirtæki á sviði endurskoðunar og ráðgjafar á Íslandi. Ég er afar ánægð að við fáum áfram notið krafta hans og þekkingar sem sjálfstæðs ráðgjafa og þakka honum fyrir hans mikilvæga framlag til Deloitte á Íslandi í gegnum árin,“ segir Lovísa Finnbjörnsdóttir , forstjóri Deloitte á Íslandi. „Að sama skapi fagna ég því að Signý taki við stjórnarformennsku í félaginu. Stjórn Deloitte gegnir mikilvægu hlutverki í stefnumörkun félagsins og því afar mikils virði að fá öflugan og reyndan leiðtoga á borð við Signýju til að leiða það starf áfram.“

Share this article