Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Segir Icelandair vera að missa af ris­atækifæri

Read Full Article →

Icelandair er ekki að nýta risastórt tækifæri, sem félagið hefur í flugi yfir Norður-Atlantshafið að mati Egils Almars Ágústssonar, sem starfaði áður sem forstöðumaður leiðakerfis Icelandair. Hann segir að Norður-Atlantshafsmarkaðurinn hafi verið einn arðbærasti markaður flugfélaga undanfarin ár, einkum vegna mikillar eftirspurnar eftir betri farrýmum. „Félög á borð við Delta, United, British Airways, Lufthansa og Air France hafa öll lagt áherslu á betri farrými á þessum markaði,“ segir Egill Almar. „Stjórnendur félaganna lýsa Norður-Atlantshafluginu síðustu ár, sem einum allra besta markaði sem þeir hafi starfað á. Fargjöld hafi hækkað og tekjur sömuleiðis og ástæðan sé áhersla á betri farrými.“ Egill Almar segir að uppsafnað tap Icelandair frá árinu 2018 nemi um 80 milljörðum króna þegar Covid-árin séu talin með. Þar af hafi tap félagsins árin 2020 og 2021 numið um 60 milljörðum króna. Hins vegar sé ekki hægt að horfa framhjá því að á síðustu árum hafi félagið einungis einu sinni skilað hagnaði en það hafi verið árið 2023. Þessi staða sé ekki ásættanleg. „Nánast á hverjum ársfjórðungi eru nefndar þrjár eða fjórar ástæður, oftast utanaðkomandi, fyrir slæmri afkomu," segir Egill Almar. „Sjaldnast eru það sömu skýringarnar, þótt nokkur stef endurtaki sig. Það er áhugavert að bera þessar skýringar Icelandair saman við það sem keppinautarnir segja um sama markaðinn.“ Augljós ástæða Bendir Egill Almar á að á fjórða ársfjórðungi 2024 hafi skýring Icelandair á því að tekjur hafi verið undir væntingum verið á þá leið að minni eftirspurn hafi verið eftir ferðum til Íslands og meðaltekjur á farþega á Norður-Atlantshafsleiðum því lækkað. Á sama tíma hafi Ed Bastian, forstjóri Delta, sagt að Norður-Atlantshafsmarkaðurinn hafi aldrei verið betri. Að mati Egils Almars sýnir þetta að greining Icelandair á markaðsaðstæðum sé ekki í samræmi við það sem stærstu keppinautarnir hafa lýst. Telur hann þetta lýsandi fyrir það sem má sjá flesta ársfjórðunga „hrikaleg jákvæðni hjá samkeppninni en neikvæðni um sömu markaði hjá Icelandair". Egill Almar segir það skjóta skökku við að Icelandair gangi illa á sama tíma og samkeppnisaðilarnir séu að skila góðum hagnaði af flugi yfir Norður-Atlantshafið. Hann segir ástæðuna hins vegar augljósa. „Hagnaðurinn liggur í vöru sem Icelandair býður ekki upp á nema að litlu leyti og félagið virðist ekki hafa áttað sig á því. Það sem fyrst og fremst skilar arðbærni á Norður-Atlantshafinu eru betri farrými.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article