Innlent | Morgunblaðið | 4.6.2026 | 6:00 Andlát: Ragna Ragnars Ragna Ragnars Setja bókamerki Ragna Ragnars, þýðandi og sendiherrafrú, lést að morgni 2. júní 2026 á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík. Ragna fæddist á Akureyri hinn 23. mars árið 1935. Foreldrar hennar voru þau Sverrir Ragnars, kaupmaður, kaupsýslumaður og sparisjóðsstjóri, og eiginkona hans, María Matthíasdóttir Ragnars. Hún útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1955 og lagði stund á frönsku og bókmenntir við háskólana í Montpellier og París í Frakklandi 1955-58. Hún lauk BA-prófi í frönsku og ensku frá Háskóla Íslands 1960. Árið 1969 hélt hún til framhaldsnáms í École Supérieure d'Interprètes et de Traducteurs (ESIT) við Sorbonne-háskóla í París og þreytti þaðan lokapróf árið 1972. Hún var löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi úr og á ensku og frönsku 1975. Samhliða námi og heimilisstörfum fékkst Ragna við þýðingar og skrifstofustörf, m.a. í franska sendiráðinu og hjá Skipaskoðun ríkisins, tungumálakennslu við bæði Málaskólann Mími og Málaskóla Halldórs, og ferðamál af ýmsu tagi. Meðal þýðinga hennar, sem út komu á prenti, má nefna Frú Kennedy eftir Charlotte Curtis (1965) og Prinsessuna eftir Gunnar Mattson (1966) Hún var þýðandi hjá Ríkissjónvarpinu árin 1974-86 og gat sér gott orð á þeim vettvangi. Ragna vann loks að landkynningu og mörgu fleiru sem sendiherrafrú í Lundúnum árin 1986-89, Moskvu 1990-94, Kaupmannahöfn 1994-96 og Beijing 1998-2003. Hún var glæsileg kona og var valin fegurðardrottning Íslands 1954. Þá sinnti hún ýmsum félagsstörfum, var meðal annars formaður Kvenstúdentafélags Íslands og Félags íslenskra háskólakvenna 1980-82, formaður Nemendasambands MA 1981-83, í stjórn Félags sjónvarpsþýðenda frá 1980 og í varastjórn Félags íslenskra skjalaþýðenda. Ragna giftist árið 1960 Ólafi Egilssyni lögfræðingi og sendiherra (f. 1936) og eignuðust þau tvö börn. Þau eru Ragnar Friðrik sálfræðingur (f. 1960) og Anna Margrjet Þuríður (f. 1962). Barnabörnin eru þrjú talsins. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kraftlitlar lægðir á sveimi í kringum landið Tekist á um vinnufyrirkomulag í flugi Andlát: Ragna Ragnars Skrifar undir hjá Liverpool í dag Hagræðing á eftir áætlun Umræðan Evran er ekki töfralausn Engan afslátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ásgeir: „Sjaldan verið meiri óvissa“ „Eins og alheimurinn hafi ákveðið þetta fyrir okkur“ Beindu flugeldum að ökumönnum Tuttugu ára tilmæli til ráðuneytisins enn í gildi Mest lesið Í gær Í vikunni Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Minnast Jörundar Hilmarssonar með ráðstefnu Tekist á um skipun bæjarstjóra í Eyjum Evruskýrslan „segir bara hálfa sögu“ Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Vill að höfnin verði bætt hraðar Engar fánareglur nú í gildi Beindu flugeldum að ökumönnum „Eins og alheimurinn hafi ákveðið þetta fyrir okkur“ Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Nýjast á mbl.is » Kraftlitlar lægðir á sveimi í kringum landið Tekist á um vinnufyrirkomulag í flugi Andlát: Ragna Ragnars Skrifar undir hjá Liverpool í dag Hagræðing á eftir áætlun Umræðan Evran er ekki töfralausn Engan afslátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Ásgeir: „Sjaldan verið meiri óvissa“ „Eins og alheimurinn hafi ákveðið þetta fyrir okkur“ Evruskýrslan „segir bara hálfa sögu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Minnast Jörundar Hilmarssonar með ráðstefnu Tekist á um skipun bæjarstjóra í Eyjum Evruskýrslan „segir bara hálfa sögu“ Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Vill að höfnin verði bætt hraðar Engar fánareglur nú í gildi Beindu flugeldum að ökumönnum „Eins og alheimurinn hafi ákveðið þetta fyrir okkur“ Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt