Innlent | Morgunblaðið | 4.6.2026 | 11:35 Hafa reist fyrstu vindmylluna af 28 Turn og spaðar. 150 metra hátt mannvirki sem sést langt að. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta eru tímamót og nú fer að komast einhver svipur á framkvæmdina og umhverfið hér í Vaðölduveri,“ segir Gunnar Aron Ólason, upplýsingafulltrúi nýframkvæmda hjá Landsvirkjun. Hann heldur m.a. utan um upplýsingagjöf og samskipti í framkvæmdum fyrirtækisins á Suðurlandi, þar á meðal um vindorkuverið sem nú er verið að reisa á hraunsléttu austan Þjórsár, sunnan við Sultartangastíflu, inni á hálendisbrúninni. Á mánudag var þar lokið uppsetningu á fyrstu vindmyllunni, en þær verða alls 28 og uppsett afl þeirra samtals 120 MW. Í sumar verða 14 vindmyllur settar upp í Vaðölduveri og jafn margar á næsta ári. Það verður þó strax í haust sem framleitt rafmagn verður sett inn á háspennulínur Landsnets, en þær liggja þarna um. Nú er verið að reisa safnstöð Landsvirkjunar og tengivirki Landsnets á svæðinu; ýmis búnaður þeim tengdur er kominn á staðinn og meira er væntanlegt. Alls eru nú um 140 manns að störfum á þessu svæði, þar sem hafa verið reistar vinnubúðir og margvíslegri aðstöðu komið upp sem þarna verður meðan á verki stendur. Uppsett afl hverrar vindmyllu í Vaðölduveri er um 4,2 MW og miðað við ætlaðan vindstyrk á þessu svæði ætti framleiðslugetan að vera rúmlega 40%. Hér hvessir og lægir sitt á hvað og þegar myllurnar 28 eru allar komnar upp ættu þær að jafnaði að geta skilað alls um 120 MW eða rúmlega 440 gígavattstundum á ári. Að sönnu verður framleiðslan jafnan mest þegar hvassast blæs en þegar dúrar verður, í stjórnstöð Landsvirkjunar, alltaf hægt að skipta yfir í meiri framleiðslu í vatnaflsstöðvunum, sem á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu eru alls sjö. Hreyfing vindsins knýr rafal Vindmyllur virka í grunninn þannig að vindurinn snýr spöðunum, spaðarnir snúa nafinu og hreyfingin knýr rafal sem framleiðir rafmagn. Þar eru í raun sömu lögmál að verki og í ljósunum sem margir muna eftir á reiðhjólum; þar lagðist lítill rafall, eða dynamó, upp að dekkinu, hreyfing hjólsins sneri honum og rafmagn varð til fyrir ljósið. Í Vaðölduveri er þessi sama hugsun nýtt í miklu stærra samhengi, þar sem kröftugur og stöðugur vindur á svæðinu knýr spaða vindmyllanna og raforkan er flutt inn á raforkukerfið. Að setja upp fyrstu vindmylluna nú tók tíu daga. Þar var að verki þýski framleiðandinn Enercon ásamt sínum undirverktökum víðs vegar að úr Evrópu, meðal annars frá Spáni og Rúmeníu. Stór og öflugur krani – auk margvíslegs annars búnaðar – er notaður við þessar framkvæmdir. Margt þarf til við verkið, samanber að turnar myllanna, sem koma á staðinn í þremur hlutum, eru 80 metra háir. Svo koma spaðarnir þrír; hver þeirra er 69 metra langur og vegur tæp 24 tonn. Alls er spaðahringurinn 138 metrar að þvermáli. Mannvirkið er því alls 150 metra hátt með spaða í hæstu stöðu og sést langt að. Flutningar ganga að óskum Snemma í maí hófust flutningar á efni sem þarf í vindorkuverið, það er frá Þorlákshöfn í Vaðölduver. Stykkin sem þarna þarf að ferja eru stór og mörg. Flutningur þeirra fer fram að nóttu til og er nákvæmnisvinna. Undirverktakar Enercon í flutningunum eru norska flutningsfyrirtækið Bergen Spesial ásamt ET þungaflutningum, sem er þrautreynt í þungaflutningum á Íslandi. Lögreglan á Suðurlandi stýrir síðan öllu dæminu. „Flutningarnir hafa gengið að óskum því allt er vel skipulagt og undirbúið í þaula,“ útskýrir Gunnar Aron í samtali við Morgunblaðið. Eitt af öðru koma til landsins skip frá Rotterdam sem flytja stykkin í vindmyllurnar og nú er kominn í verkefnið mikill fraktari sem tekur í einni ferð allt sem þarf í fjórar myllur; turna, spaða og fleira. Hífa bara í hægviðri Íslenskir verktakar hafa komið að ýmsum þáttum verkefnisins. Borgarverk sá um vegagerð innan í Vaðöldu. Ístak sinnir uppbyggingu safnstöðvar í Vaðölduveri svo og að byggja vindmylluplön og steypa undirstöður sem myllurnar miklu eru festar á. Nú þegar eru 15 undirstöður tilbúnar, en í hverja þeirra þarf farm úr alls 63 steypubílum, en steypan er framleidd á staðnum. Rafverktakinn RST Net sinnir svo uppsetningu á öllum rafbúnaði. „Núna, þegar turn og spaðar fyrstu vindmyllunnar hafa verið settir upp eru menn væntanlega búnir að finna taktinn. Í framhaldinu ætti þetta að ganga hratt. Þó þarf að taka tillit til margra þátta, svo sem að ekki verður farið í hífingar með krana nema í hægviðri. Stundum gerir hér sólfarsvind síðdegis og því sætum við lagi. Liggjandinn síðari hluta nætur og á morgnana getur verið besti tíminn,“ segir Gunnar Aron Ólason að síðustu. Uppbygging og lærdómur Staður stöðugra vindátta „Þetta er áhugaverð og spennandi uppbygging sem við lærum margt af,“ segir Sigurgeir Björn Geirsson, verkfræðingur og yfirverkefnisstjóri í Vaðölduveri. Hann hefur verið lykilmaður í öllum undirbúningi vegna vindorkuversins. Hjá Landsvirkjun byrjaði Sigurgeir seinni hluta ársins 2023 í verkefnum tengdum Vaðölduveri; það er til dæmis vegna rannsókna á verkstað og útboðsmála. Undirbúningur og hönnun Vaðölduvers hefur átt sér langan aðdraganda og að verkefninu hefur komið breiður hópur sérfræðinga. Samningar við þýska framleiðandann Enercon voru gerðir árið 2024 og seinna við aðra verktaka, þar með talið Ístak, um aðra verkþætti. Eitt hefur leitt af öðru og svo þarf að hnýta endana saman þannig að þráður myndist. „Staðsetningin hér í Vaðölduveri er góð, því hér eru stöðugar vindáttir. Nýtni þeirra til rafmagnsframleiðslu ætti að vera rúmlega 40% borið saman við tæplega 30% víða úti í Evrópu. Annar kostur við þennan stað er nálægð við flutningskerfið og innviði sem eru á svæðinu í tengslum við aflstöðvar Landsvirkjunar. Á þessum slóðum vegast á sjálfbærir orkukostir, það er vindur og vatnsorka, sem vinna mjög vel saman hér á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu,“ segir Sigurgeir Björn. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að í Vaðölduveri séu kjöraðstæður til framleiðslu á rafmagni, þar eð vindur þarna sé mjög jafn. „Næðingur er áberandi á Sultartangasvæðinu við Vaðöldu sem veit á gott fyrir rafmagnsframleiðslu. Þarna er NA-átt ríkjandi; vindur sem nær sér á strik á milli Hofsjökuls og Tungnafellsjökuls. Þarna streymir kalda loftið fram svo herðir á vindi, sem nú er virkjaður,“ segir Einar. Nú fer að komast svipur á framkvæmdina og umhverfið hér í Vaðölduveri, segir Gunnar Aron Ólason, staddur á verkstað. Kranar við myllu nr. 2. Turninn er alls 80 metrar á hæð. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Nigel Farage ólíklegur á fund Viðreisnar Haaland hótar lögsókn Hafa reist fyrstu vindmylluna af 28 Hetjan ákærð fyrir líkamsárás Stjórnvöld nýti neyðar- og fullveldisrétt Íslands Umræðan Evran er ekki töfralausn Hvíl í friði, jafnlaunavottun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslenski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið Ásgeir: „Sjaldan verið meiri óvissa“ „Græðir ekkert á því að mjólka dauða belju“ Mat ráðuneytis annað en höfunda Mest lesið Í gær Í vikunni SS hyggst hætta halal-slátrunum Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Andlát: Ragna Ragnars Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Stærstu skjálftar síðan 2008 Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul Tekist á um skipun bæjarstjóra í Eyjum „Græðir ekkert á því að mjólka dauða belju“ Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Nýjast á mbl.is » Nigel Farage ólíklegur á fund Viðreisnar Haaland hótar lögsókn Hafa reist fyrstu vindmylluna af 28 Hetjan ákærð fyrir líkamsárás Stjórnvöld nýti neyðar- og fullveldisrétt Íslands Umræðan Evran er ekki töfralausn Hvíl í friði, jafnlaunavottun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Friðuðu húsi verður ekki breytt Höfða mál gegn borginni: Réttindi ekki valkvæð „Eins og alheimurinn hafi ákveðið þetta fyrir okkur“ Verður ekki leyst með hernaði Mest lesið Í gær Í vikunni SS hyggst hætta halal-slátrunum Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Andlát: Ragna Ragnars Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Stærstu skjálftar síðan 2008 Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul Tekist á um skipun bæjarstjóra í Eyjum „Græðir ekkert á því að mjólka dauða belju“ Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðu