Innlent | mbl | 4.6.2026 | 13:15 „Verið að svíkja öll loforð“ Horft yfir hluta vegarins um Öxi. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Tengdar fréttir Samgönguáætlun 2026-2040 Vilja flýta framkvæmdum á Axarvegi Víða ófært og vantar göngin Lögðu öryggið að veði til að koma sjúklingi í skjól Framkvæmdir sáttmálans fjármagnaðar Ófært á meðan göngin bíða útboðs » Fleiri tengdar fréttir Sveitarstjórn Múlaþings hefur sent frá sér harðorða bókun varðandi nefndarálit meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis sem snýr að því að færa fjármuni sem áður voru eyrnamerktir hringtorgi á Egilsstöðum yfir í fjallveginn um Öxi. Greint var frá nefndaráliti meirihluta nefndarinnar í gær. Frétt af mbl.is Vilja flýta framkvæmdum á Axarvegi Til marks um tómlæti Í bókun sveitarstjórnar Múlaþings, sem samþykkt var samhljóða á fundi hennar í gær, lýsir hún vonbrigðum með nefndarálitið. Segir í bókuninni að þrátt fyrir skýr og rökstudd varnarorð sveitarfélaga og hagsmunaaðila á Austurlandi sé ljóst að nefndin hafi kosið að líta fram hjá alvarlegri stöðu innviða í fjórðungnum. Austurland sé áfram skilgreint sem afgangsstærð í samgöngubótum ríkisins. „Sveitarstjórn telur það til marks um tómlæti að helsta breytingin sem lögð er til á Austurlandi sé sú að færa fjármuni sem áður voru eyrnamerktir hringtorgi á Egilsstöðum yfir í fjallveginn um Öxi. Þessi tilfærsla dugar skammt til að koma raunverulegum framkvæmdum um nýjan veg um Öxi af stað,“ segir í bókuninni. „Þá er það óásættanlegt að meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar ávarpi ekki Fjarðarheiðargöng með afgerandi hætti. Fjarðarheiðargöng eru ekki einkamál Múlaþings heldur öryggismál fyrir landið allt auk þess að vera gátt Íslands til Evrópu. Þá eru göngin fyrsti áfangi í hringtengingu samgangna á Austurlandi til eflingar atvinnulífi og samfélagi. Að fresta eða þoka þeim framkvæmdum óskilgreint inn í framtíðina eru svik á gefnum loforðum ríkisvaldsins sem ekki verður við unað.“ Frétt af mbl.is Fjarðarheiðargöngum frestað Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings. mbl.is/Ásdís Voru að vonast eftir meira fjármagni Í samtali við mbl.is segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, að stjórnin andmæli ekki frestun hringtorgsins á Egilsstöðum. Lengi hafi verið vitað að framkvæmdir á Axarvegi teljist mikilvægari sem og reyndar uppbygging Fjarðarheiðarganga, sem hefur verið frestað. „Það sem við vorum að vonast eftir að yrði gert var að það kæmi aukning á fjármunum á þetta svæði sem verður verulega út undan í þessari samgönguáætlun. Það er bara verið að svíkja öll loforð sem okkur hafa verið gefin, t.d. í tengslum við sameininguna á þessu sveitarfélagi. Þar var okkur lofað að bæði Fjarðarheiðargöng og Axarvegur kæmu, og hvorugt þeirra raungerðist,“ segir Dagmar. Þá bætir hún við að upphæð fjármunanna sem færðir yrðu á milli verkefna sé ekki nóg til að gera nægilega mikið á svæðinu. „Við sjáum það ekki alveg að það sé verið að mæta okkur með það sem við vorum að biðja um sem var það að það yrði farið af stað og að vegurinn yrði kláraður. Núna lítur út fyrir að það muni taka að lágmarki átta ár að klára þennan veg.“ Bókun sveitarstjórnar Múlaþings má lesa í heild sinni hér að neðan. Sveitarstjórn Múlaþings lýsir yfir miklum vonbrigðum með nefndarálit meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dagsett 29. maí 2026, vegna tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040. Þrátt fyrir skýr og rökstudd varnaðarorð sveitarfélaga og hagsmunaaðila á Austurlandi er ljóst að nefndin hefur kosið að líta fram hjá alvarlegri stöðu innviða í fjórðungnum. Austurland er áfram skilgreint sem afgangsstærð í samgöngubótum ríkisins. Sveitarstjórn telur það til marks um tómlæti að helsta breytingin sem lögð er til á Austurlandi sé sú að færa fjármuni sem áður voru eyrnamerktir hringtorgi á Egilsstöðum yfir í fjallveginn um Öxi. Þessi tilfærsla dugar skammt til að koma raunverulegum framkvæmdum um nýjan veg um Öxi af stað. Þá er það óásættanlegt að meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar ávarpi ekki Fjarðarheiðargöng með afgerandi hætti. Fjarðarheiðargöng eru ekki einkamál Múlaþings heldur öryggismál fyrir landið allt auk þess að vera gátt Íslands til Evrópu. Þá eru göngin fyrsti áfangi í hringtengingu samgangna á Austurlandi til eflingar atvinnulífs og samfélags. Að fresta eða þoka þeim framkvæmdum óskilgreint inn í framtíðina eru svik á gefnum loforðum ríkisvaldsins sem ekki verður við unað. Sveitarstjórn fagnar þó því að horfið sé frá lækkun á mótframlagi ríkisins til hafnarframkvæmda í Múlaþingi og að hægt verði þar með að hefja mikilvægar framkvæmdir við lengingu Strandabakka strax á næsta ári. Einnig er því fagnað að auknum fjármunum verði varið til vetrarþjónustu og bindur sveitarstjórn Múlaþings vonir við að þá skapist rými til að koma á sjö daga vetrarþjónustu yfir Vatnsskarð til Borgarfjarðar eystra og loks verði hægt að taka G-reglu af Axarvegi og setja á fasta opnunardaga allan veturinn. Sveitarstjórn Múlaþings skorar á alþingismenn allra flokka að sýna ábyrgð og réttlæti á lokametrum þingmálsins. Þingsályktunartillögunni verður að breyta áður en hún verður afgreidd frá Alþingi þannig að stórframkvæmdir á Austurlandi; Fjarðarheiðargöng, raunveruleg flýting Axarvegar og efling Egilsstaðaflugvallar verði tryggðar á fyrsta tímabili áætlunarinnar. Sveitarstjóra er falið að koma þessari bókun á framfæri við alla alþingismenn, forsætisráðherra, innviðaráðherra og fjármálaráðherra. Tengdar fréttir Samgönguáætlun 2026-2040 Vilja flýta framkvæmdum á Axarvegi Víða ófært og vantar göngin Lögðu öryggið að veði til að koma sjúklingi í skjól Framkvæmdir sáttmálans fjármagnaðar Ófært á meðan göngin bíða útboðs » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kane laus úr fangelsi og væntanlegur til Íslands „Verið að svíkja öll loforð“ Hleypa aðildarviðræðum af stað Dispute centers on airline work arrangements Landsliðskonan skiptir um félag næsta sumar Umræðan Evran er ekki töfralausn Engan afslátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tekist á um vinnufyrirkomulag í flugi SS hyggst hætta halal-slátrunum Mat ráðuneytis annað en höfunda „Græðir ekkert á því að mjólka dauða belju“ Mest lesið Í gær Í vikunni SS hyggst hætta halal-slátrunum Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Stærstu skjálftar síðan 2008 Sektuð fyrir að kalla dómara „lausláta mellu“ Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul „Græðir ekkert á því að mjólka dauða belju“ Tekist á um skipun bæjarstjóra í Eyjum Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Íslendings saknað á Taílandi Nýjast á mbl.is » Kane laus úr fangelsi og væntanlegur til Íslands „Verið að svíkja öll loforð“ Hleypa aðildarviðræðum af stað Dispute centers on airline work arrangements Landsliðskonan skiptir um félag næsta sumar Umræðan Evran er ekki töfralausn Engan afslátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Höfða mál gegn borginni: Réttindi ekki valkvæð Mat ráðuneytis annað en höfunda Evruskýrslan „segir bara hálfa sögu“ Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Mest lesið Í gær Í vikunni SS hyggst hætta halal-slátrunum Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Stærstu skjálftar síðan 2008 Sektuð fyrir að kalla dómara „lausláta mellu“ Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul „Græðir ekkert á því að mjólka dauða belju“ Tekist á um skipun bæjarstjóra í Eyjum Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Íslendings saknað á Taílandi