- What: Network outage affecting 2,000 connections in Breiðholti
- Impact: Local residents and businesses in the area may experience connectivity issues
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Slitinn strengur hefur áhrif á nettengingu í Breiðholti Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Strengur slitnaði í stofntengingu Mílu milli Breiðholts og Hveragerðis. Það hefur áhrif á 2 þúsund nettengingar í Breiðholti, og nokkur önnur sambönd. Í tilkynningu frá Mílu segir að unnið sé að lagfæringu. Ljósleiðaratenging. Mynd úr safni. RÚV Fyrir 23 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Leikur sem er stærri en fótbolti: „Getum ekki mætt eins og písl“ Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Úkraínu í undankeppni HM 2027. Andstæðingar Íslands leika í Póllandi vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Stelpunar bera mikla virðingu fyrir baráttu andstæðinganna en ætla þó að mæta þeim af fullum krafti. Fyrir 52 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Vongóð um undanþágu en atvinnulífið vill varanlega lausn Kristrún Frostadóttir segir rökstuðning Íslands um áframhaldandi undanþágu frá ETS-kerfinu í flugi fá góðan hljómgrunn í Brussel. Á sama tíma kallar atvinnulífið eftir varanlegum lausnum. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlistargagnrýni Hjartað á milljón: Poppað og ekki stoppað Arnar Eggert Thoroddsen rýnir í fyrstu plötu Ágústs Brynjarssonar, Hjartað á milljón, í Plötu vikunnar á Rás 2 og gefur verkinu tvær og hálfa stjörnu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Manndrápstilraun í bílakjallara til héraðssaksóknara Lögregla hefur lokið rannsókn á lífshættulegri árás í bílakjallara undir Höfðatorgi í mars. Héraðssaksóknari tekur nú ákvörðun um ákæru. Tveir eru enn í gæsluvarðhaldi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Ellefu sagt upp hjá Kviku Ellefu var sagt upp hjá Kviku banka í dag. Stöðugildum hjá bankanum hefur fækkað um 18 á árinu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Áhrif Sundabrúar neikvæðari en Sundaganga að mati HMS Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun telur að Sundabrú muni almennt hafa neikvæðari áhrif en Sundagöng. Óvissa er um áhrif á umhverfisþætti og mikilvægt að lágmarka þá áður en leyfi verða veitt. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Popptónlist Semur reglulega lög í baði Fríða Dís stefnir á plötuútgáfu með haustinu og sagði hlustendum Popplands frá nýju lagi. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Segir Grænland tilheyra Danmörku „í bili“ Utanríkisráðherra Grænlands segir yfirlýsingar utanríkisráðherra Bandaríkjanna um Grænland engu breyta. Grænlendingar ráði framtíð lands síns. Sá bandaríski sagði í gær að Grænland tilheyrði Danmörku „í bili“. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL KrakkaRÚV Fékk sína eigin leikjapersónu inn í tölvuleik Tölvuleikurinn Evolytes er notaður við stærðfræðikennslu í ýmsum grunnskólum landsins. Á dögunum var haldin hugmyndasamkeppni og sigurvegarinn fékk sína eigin persónu inn í leikinn. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Fáránlegt að Rússar komi í frí til Evrópu Dómsmálaráðherra segir fáránlegt að Rússar geti komið til Evrópu í frí. Fimm hundruð þúsund Rússar ferðuðust til Schengen í fyrra. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Talsverð mengun við Sævarhöfða Talsverð mengun er á iðnaðarsvæði við Sævarhöfða á fyrrum starfsstöð Malbikunarstöðvarinnar Höfða. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur verið látið vita og athugar málið. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Heimsglugginn: Reiði vegna morðs í Bretlandi Mikil reiði og deilur eru í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu á vettvangi hnífsstunguárásar þar sem helsærður ungur námsmaður var handjárnaður og handtekinn. Þetta ræddi Bogi Ágústsson í Heimsglugganum og einnig nýja stjórn í Danmörku. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Margrét sakfelld fyrir ummæli sín Margrét Friðriksdóttir þarf að greiða 200 þúsund króna sekt fyrir ummæli sín um Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. Dómur þess efnis féll í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Öryrkjabandalagið í mál við borgina Öryrkjabandalag Íslands hefur höfðað mál við Reykjavíkurborg fyrir að fjármagna ekki samþykkta NPA-samninga. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Árásir þrátt fyrir samþykki um vopnahlé í gær Ísraelsher og Hezbollah hafa haldið árásum áfram í morgun þrátt fyrir að í gær hafi fulltrúar Ísraels og Líbanons samþykkt að vinna að vopnahléi. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Ísland í hópi ellefu ríkja sem vilja takmarka vegabréfsáritanir til Rússa Utanríkis- og innanríkismálaráðherrar ellefu Evrópuríkja hvetja ESB til að herða reglur um vegabréfsáritanir til Rússa. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti New York Knicks vann fyrsta úrslitaleikinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Jalen Brunson úr New York liðinu í baráttunni við Julian Champagnie hjá San Antonio. EPA / ADAM DAVIS New York Knicks gerði vel þegar liðið vann tíu stiga útisigur á San Antonio Spurs í fyrsta úrslitaleik liðanna um NBA meistaratitilinn í körfubolta í Bandaríkjunum í gærkvöld. Leiknum lauk 105-95. Jalen Brunson skoraði 30 stig fyrir Knicks í leiknum en hjá Spurs var Frakkinn Victor Wembanyama allt í öllu og skoraði 26 stig og tók 12 fráköst. Vinna þarf fjóra leiki til að verða meistari en Knicks hefur ekki unnið NBA meistaratitilinn síðan árið 1973 en Spurs vann síðast árið 2014. Næsti leikur úrslitaeinvígisins verður spilaður í San Antonio 5. júní en næstu tveir á eftir í New York. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússlandsher drap 16 og særði 86 í árásum síðasta sólarhring Dagný Hulda Erlendsdóttir Rússlandsher gerði árásir víðs vegar um Úkraínu síðasta sólarhring og drap 16 manns og særði 86. Harðastar voru árásir á héraðið Kherson. Þar voru sex manns drepnir og 26 særðir, þar á meðal barn, hefur úkraínski fjölmiðillinn Kyiv Independent eftir héraðsstjóranum. Herinn gerði einnig árásir á borgina Kherson síðasta sólarhring. Borgin stendur við ána Dnípró. Hinum megin við ána hefur Rússlandsher verið síðan sumarið 2024 og sent fjöldann allan af árásardrónum að borginni. Drónastríðið hefur haft mikil áhrif á daglegt líf fólks í borginni sem fer síður út þegar skyggni er gott, því þá eru meiri líkur á að verða fyrir drónaárás. Frá björgunarstarfi eftir árásir á Dnipropetrovsk-hérað í nótt. AP/Ukrainian Emergency Service / Uncredited Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Forseti Íslands Forseti Íslands vex í áliti Ánægja með störf Forseta Íslands mælist 54 prósent. Það er 9 prósentustigum hærra en í síðustu könnun. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tækni og vísindi Sór þess eið að verða hundleiðinlegur næsta árið Sævar Helgi hefur elt almyrkva á sólu víða um heim og veit þess vegna hve vel þarf að skipuleggja slíka viðburði. Hann stefndi á nám í Bandaríkjunum þegar lífið greip inn í og breytti um kúrs. Hann sér ekki eftir því og hefur helgað sig fræðslu. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Flugmenn og Icelandair mætast í Karphúsinu í kvöld Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar klukkan sjö í kvöld. Tæp vika er frá síðasta fundi og lítið virðist hafa þokast í viðræðum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Bændur uggandi yfir innbrotum Bændur eru uggandi vegna innbrota í Reykjabúið og Stjörnugrís. Formaður Bændasamtakanna segir óboðlegt að bændur þurfi að óttast öryggi sitt. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti „Draumur síðan ég var lítill krakki“ Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir er nýliði í landsliðinu í fótbolta sem mætir Úkraínu og Spán í úrslitaleikjum um umspilssæti á HM 2027. Hrafnhildur hefur leikið vel með Breiðablik í ár og er með fjögur mörk í sex leikjum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Sólarglennur gætu brotið sér leið gegnum skýjahuluna Í dag og næstu daga verður áfram hæglætisveður á landinu: hlýtt, rakt og skýjað. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Nepal Fannst á Everest eftir að hafa verið týndur í sex daga Leiðir skildu milli nepalsks fjallaleiðsögumanns og bresks göngumanns 30. maí. Leit hafði verið gerð að leiðsögumanninum en hann skilaði sér niður í grunnbúðir. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump festir Blanche í sessi sem dómsmálaráðherra Grétar Þór Sigurðsson Todd Blanche er starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. AP/FR172296 AP / Allison Robbert Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst útnefna Todd Blanche í stöðu dómsmálaráðherra. Blanche, sem er fyrrverandi lögmaður Trumps, hefur verið settur dómsmálaráðherra síðan Trump vék Pam Bondi úr embætti í apríl. Trump sagði gestum kvöldverðar í Hvíta húsinu í gærkvöld frá því að hann ætlaði að gefa fyrirmæli um að Blanche yrði gerður að dómsmálaráðherra varanlega. Trump segir þetta í myndskeiði sem Dan Scavino, aðstoðarskrifstofustjóri í Hvíta húsinu, deildi á samfélagsmiðlum. Til þess að Blanche geti formlega tekið við embættinu þarf útnefning hans að vera samþykkt af öldungadeild Bandaríkjaþings en þar eru Repúblikanar í meirihluta. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Átta drepnir í loftárásum Ísraelshers á Gaza Þrátt fyrir að vopnahlé hafi verið í gildi frá því í október eru árásir tíðar á Gaza. Sjö voru drepnir eftir árásir á íbúðarhúsnæði og einn eftir árás á flóttamannabúðir. 4. júní 2026 kl. 4:15ERLENDAR FRÉTTIR Mexíkó Mótmælendur réðust inn í menntamálaráðuneytið í Mexíkóborg Mexíkóskir kennarar sætta sig ekki við launahækkun sem þarlend stjórnvöld hafa samið við stjórn kennarasambandsins um. Þeir hafa gripið til umfangsmikilla mótmæla í vikunni og hóta að setja HM í fótbolta í uppnám. 4. júní 2026 kl. 3:20ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tveir drepnir í árás Bandaríkjahers á bát á Kyrrahafi Grétar Þór Sigurðsson Skjáskot úr myndskeiði af árásinni sem Bandaríkjaher deildi á samfélagsmiðlinum X. X/Skjáskot / Bandaríkjaher Bandaríkjaher sprengdi upp bát á austanverðu Kyrrahafi í gær sem herinn staðhæfir að hafi flutt fíkniefni. Tveir voru drepnir í árásinni, að því er segir í færslu aðgerðarstjórnar hersins á samfélagsmiðlinum X. Færslunni fylgir myndskeið af bátnum á siglingu áður en hann er sprengd