Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs

Read Full Article →

Innlent | mbl | 4.6.2026 | 14:50 Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Umferðarslysið varð við gatnamót Vatnagarða og Sundagarða í Reykjavík í september í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Ökumaður sem lést í umferðarslysi við gatnamót Vatnagarða og Sundagarða í Reykjavík í september á síðasta ári hafði verið metinn óhæfur til aksturs vegna heilsufars aðeins nokkrum dögum áður en slysið varð. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um slysið sem varð 23. september 2025. Í skýrslunni segir að ökumaður Hyundai Santa Fe-bifreiðar, 75 ára gamall karlmaður, hafi ekið norðvestur Vatnagarða þegar hann ók yfir gatnamót Sundagarða og Vatnagarða, fram af klettabrún og um sjö metra niður á athafnasvæði Hringrásar. Bifreiðin endaði á hvolfi og lést ökumaðurinn á vettvangi. Frétt af mbl.is Karlmaður lést í bílslysi Keyrði hratt og var ekki með öryggisbelti spennt Samkvæmt skýrslunni leiddi rannsókn í ljós að ökumaðurinn var ekki með öryggisbelti spennt þegar slysið varð. Þá hafði læknir metið ökumanninn óhæfan til aksturs vegna heilsufars nokkrum dögum fyrir slysið. Í kjölfarið voru ökuréttindi hans afturkölluð til bráðabirgða og ökuskírteini tekið í vörslu lögreglu. Áfengis- og lyfjarannsókn reyndist neikvæð. Rannsóknarnefndin telur að meginorsök slyssins hafi verið sú að ökumaður, sem var án ökuréttinda og ekki hæfur til að stjórna bifreið, hafi ekið bílnum. Þá benda fyrirliggjandi gögn að mati nefndarinnar til þess að heilsufar hans og skortur á innsæi á eigin aksturshæfni hafi átt verulegan þátt í að hann settist undir stýri. Nefndin nefnir einnig aðrar orsakir slyssins, þar á meðal að ökumaðurinn hafi ekki notað öryggisbelti og að vitnisburður bendi til þess að bifreiðinni hafi verið ekið á miklum hraða skömmu áður en slysið varð. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ná samkomulagi um að framlengja búvörusamninga Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Goðsögn Chelsea látin Skyggnir flytur úr Borgartúni „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Umræðan Evran er ekki töfralausn Engan afslátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tekist á um vinnufyrirkomulag í flugi Erum augu og eyru bandalagsins Khamenei segir þingsályktunina þungt högg SS hyggst hætta halal-slátrunum Mest lesið Í gær Í vikunni SS hyggst hætta halal-slátrunum Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Stærstu skjálftar síðan 2008 Sektuð fyrir að kalla dómara „lausláta mellu“ Stjórnvöld nýti neyðar- og fullveldisrétt Íslands Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Íslendings saknað á Taílandi Nýjast á mbl.is » Ná samkomulagi um að framlengja búvörusamninga Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Goðsögn Chelsea látin Skyggnir flytur úr Borgartúni „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Umræðan Evran er ekki töfralausn Engan afslátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Mat ráðuneytis annað en höfunda Stjórnvöld nýti neyðar- og fullveldisrétt Íslands Nigel Farage ólíklegur á fund Viðreisnar Mest lesið Í gær Í vikunni SS hyggst hætta halal-slátrunum Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Stærstu skjálftar síðan 2008 Sektuð fyrir að kalla dómara „lausláta mellu“ Stjórnvöld nýti neyðar- og fullveldisrétt Íslands Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Íslendings saknað á Taílandi

Share this article