Innlent | mbl | 4.6.2026 | 23:30 „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ „Þetta eru breyttir tímar. Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft en ekki að þurfa að láta starfsfólk segja sér að þvo sér.“ mbl.is/Sigurður Bogi Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Í flestum sundlaugum höfuðborgarsvæðisins má sjá svokallaðan sundkall sem sýnir með skýrum hætti hvaða líkamshluta á að þvo með sápu áður en farið er ofan í laugina. Á myndinni eru undirstrikuð hár, handarkrikar, klof og fætur. Einnig kemur fram að góð sturta án sundfata stuðli að betra hreinlæti, minni klórnotkun og bættum vatnsgæðum. Sundkallinn sýnir hvaða líkamshluta sundgestir eiga að þvo sérstaklega vel með sápu áður en farið er ofan í laugina. Ljósmynd/Aðsend Fólk fer ekki alltaf í gegnum aðalklefana Greint var frá því á mbl.is fyrr í vikunni að nú tíðkaðist hjá ákveðnum hópi karlmanna að fara í sund í nærbuxum undir sundskýlu eða stuttbuxum, en draga þær niður þannig að í nærbuxurnar sæist. Fram kom í samtali við Drífu Magnúsdóttur, forstöðumann Laugardalslaugar, að þeir sem geri þetta þvoi sér sjaldnast nægilega vel eða jafnvel sleppi sturtunni alveg. „Þetta eru breyttir tímar,“ segir Drífa í samtali við mbl.is í dag. „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft en ekki að þurfa að láta starfsfólk segja sér að þvo sér.“ Hún bendir á að eftirlit sé minna en áður þar sem gestir fari ekki lengur eingöngu í gegnum hefðbundna búningsklefa. „Fólk fer ekki bara í gegnum aðalklefana lengur heldur einnig í gegnum sérklefa, útiklefa og frá líkamsræktinni þar sem engir starfsmenn eru til staðar til að fylgjast með þessu,“ segir hún. Frétt af mbl.is Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Líflegar umræður á Facebook Líflegar umræður hafa skapast á Facebook við deilingu mbl.is á fréttinni. Hörður Harðarson segir frá því að honum hafi verið neitað um aðgang að sundlaug í Frakklandi þar sem hann hafi verið með sundstuttbuxur. Hann hafi þurft að kaupa keppnissundskýlu til að fá að fara í laugina, en á sama tíma hafi fullorðnum verið bannað að sturta sig nöktum. „Skora á þá sem hneykslast mest hér að prófa að vera sundlaugarvörður, það er ekki einfalt mál að sjá til þess að allir fari úr til að þvo sér,“ skrifar Jónas Baldursson. „Glórulaust ... hef oft séð unglinga nota bara nærbuxurnar sem þeir eru í í sundi ...“ skrifar Pétur Ben. Guðmundsson. „Þvílíkur sóðaskapur,“ skrifar Bergþóra Pálsdóttir. Og Kolbrún Sara Kristinsdóttir segir: „Það er líka mjög algengt að vera í g-streng.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Jiu-jitsu-þjálfari tók flugdólg til bæna Eiginkona Gísla birti hjartnæma mynd Opnunardagurinn skilaði 18 löxum Umræðan Evran er ekki töfralausn Hvíl í friði, jafnlaunavottun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Khamenei segir þingsályktunina þungt högg Verður ekki leyst með hernaði Maðurinn á gjörgæslu og skýrslutökur standa yfir Höfða mál gegn borginni: Réttindi ekki valkvæð Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Jiu-jitsu-þjálfari tók flugdólg til bæna Eiginkona Gísla birti hjartnæma mynd Opnunardagurinn skilaði 18 löxum Umræðan Evran er ekki töfralausn Hvíl í friði, jafnlaunavottun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ellefu sagt upp hjá Kviku Fór ráðuneytið á svig við siðareglur ríkisstjórnar? „Græðir ekkert á því að mjólka dauða belju“ Mat ráðuneytis annað en höfunda Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað