Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Engin svör frá ráðuneytinu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 5.6.2026 | 10:55 Engin svör frá ráðuneytinu Gullhúðaðar Evrópureglur eru m.a. bílaumboðum kostnaðarsamar. mbl.is/Eggert Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Fulltrúar fernra samtaka í atvinnulífinu fengu í gær loks fund með starfsmönnum dómsmálaráðuneytisins þar sem gullhúðaðar Evrópureglur voru til umræðu, en þegar sett voru lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka var gengið mun lengra en sú Evrópureglugerð sem innleidd var kvað á um. Hefur regluverkið verið mjög íþyngjandi, m.a. fyrir bílaumboð, bílasala, lánamiðlara o.fl. og reynst afar kostnaðarsamt að uppfylla sett skilyrði, en þær reglur sem gilda hér á landi þekkjast ekki í löndum Evrópusambandsins og í EES-ríkjunum og hafa vakið furðu erlendra samstarfsaðila íslensku fyrirtækjanna. Af hálfu atvinnulífsins sóttu fundinn fulltrúar Félags atvinnurekenda, Samtaka verslunar og þjónustu, Bílgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins, en af hálfu ráðuneytisins sátu fundinn lögfræðingur á skrifstofu alþjóðamála og aðstoðarmaður ráðherra. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaáðherra sat ekki fundinn, en hún er stödd erlendis. „Við fórum yfir þau atriði sem við sendum ráðherranum í byrjun febrúar,“ segir Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að á fundinum hafi fulltrúar atvinnulífsins lýst þeirri skoðun sinni að mistök hafi verið gerð við lagasetninguna og löngu tímabært að endurskoða lögin, enda hvergi gengið jafn langt í þessum málaflokki í Evrópu. „Við fengum ekkert vilyrði um að vilji stæði til endurskoðunar á lögunum. Sagt var að málið væri í ákveðnum farvegi og á næstu árum gæti komið til þess að einhvers konar endurskoðun ætti sér stað. Við lýstum því yfir að við teldum það ekki fullnægjandi niðurstöðu,“ segir Benedikt, sem telur að hægt sé að bregðast við fyrr. Segir hann að fram hafi komið að það væri í höndum ráðherra að taka ákvörðun um framhaldið. „Ég átti von á, í ljósi þess að við sendum ráðuneytinu erindi í byrjun febrúar, að við myndum mæta mótaðri afstöðu. Það kom á óvart að svo var ekki og svo virðist sem pólitíkin hafi ekki sett sig inn í málið og áttað sig á því að hún yrði að leika þarna hlutverk,“ segir hann. Augljós mistök gerð Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir að ráðuneytið hafi sýnt sjónarmiðum fyrirtækjanna skilning, en engin svör hafi fengist um hvort ráðherra hygðist beita sér fyrir breytingum á umræddum lögum þrátt fyrir að augljóst væri að hans mati að mistök hefðu verið gerð í lagasetningu. Hann segir að lagðar hafi verið fram tillögur af hálfu samtakanna um að skattinum og ríkislögreglustjóra yrði falið að veita umsögn og taka afstöðu til erindis samtakanna og síðan yrði haldinn annar fundur í haust. Við því var brugðist á þann veg að það yrði borið undir ráðherrann. „Það var skilningur og áhugi á samtali, en engin svör. Ég átti von á skýrari pólitískum sjónarmiðum og að ráðherrann væri með okkur í liði að einfalda regluverkið í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar. Orð eru til alls fyrst og við vonum að nauðsynlegar breytingar taki ekki of langan tíma. Ég vona sannarlega að ráðherrann verði með okkur í liði,“ segir Ólafur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Helgi nýr útibússtjóri á Sauðárkróki Sara Björk komin heim Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Engin svör frá ráðuneytinu Umræðan Evrópusambandið og átökin um auðlindirnar Evran enginn happafengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ellefu sagt upp hjá Kviku „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Fór ráðuneytið á svig við siðareglur ríkisstjórnar? Erum augu og eyru bandalagsins Mest lesið Í gær Í vikunni Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi Um 300 þegar fengið viðvörun Ekki frá höfundum komið Andlát: Þórir Lárusson Andlát: Vigfús Kr. Vigfússon „Ég er alltaf jákvæður. Ég vinn við það“ Livio gert að greiða Ingunni 25 milljónir Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Lést við barnsburð á Landspítalanum Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nýjast á mbl.is » Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Helgi nýr útibússtjóri á Sauðárkróki Sara Björk komin heim Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Engin svör frá ráðuneytinu Umræðan Evrópusambandið og átökin um auðlindirnar Evran enginn happafengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Engin svör frá ráðuneytinu Um 300 þegar fengið viðvörun Mest lesið Í gær Í vikunni Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi Um 300 þegar fengið viðvörun Ekki frá höfundum komið Andlát: Þórir Lárusson Andlát: Vigfús Kr. Vigfússon „Ég er alltaf jákvæður. Ég vinn við það“ Livio gert að greiða Ingunni 25 milljónir Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Lést við barnsburð á Landspítalanum Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga

Share this article