Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kynna nýjan meirihluta í Kópavogi á morgun Iðunn Andrésdóttir Nýr meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs verður kynntur á blaðamannafundi klukkan 14 á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá formanni fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokks. Fundurinn verður haldinn við Geðræktarhús Kópavogs. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 7 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Evrópuglugginn Hefja formlegar aðildarviðræður við Úkraínu um miðjan júní Aðildarviðræður Evrópusambandsins við Úkraínu og Moldóvu verða að líkindum formlega hafnar á ríkjaráðstefnum sem halda á í Luxemborg 15. júní. Hugmyndir um að straumlínulaga umsóknarferlið virðast njóta vaxandi stuðnings í leiðtogahópi ESB. Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Matvælastofnun Vara við kræklingatínslu Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Eiturþörungar greindust í miklu magni í sjó í Faxaflóa og fyrir sunnan land í vorleiðangri Hafró. Því varar Matvælastofnun almenning við því að tína og borða krækling úr fjörum sunnan- og suðvestanlands, hvort sem er í Hvalfirði eða öðrum vinsælum stöðum til kræklingatínslu. „Tíðafar í maí var tiltölulega gott, sérstaklega suðvestanlands og er ástæða til að ætla að eiturþörungar í sjó dafni víða vel,“ segir í tilkynningu frá MAST. Kræklingur. RÚV/Landinn / Rúnar Ingi Garðarsson Fyrir 33 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Segir Icelandair enn vilja nýta erlent vinnuafl Ríkissáttasemjari bindur vonir við að samninganefnd flugmanna leggi fram tillögur eða gagntilboð eftir að hún hefur kynnt sér tillögur Icelandair. Hann segir flugfélaginu enn hugnast að að geta notað erlent vinnuafl. Fyrir 49 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Deilur og stríð NSA notar Claude til tölvuárása Bandaríska þjóðaröryggisstofnunin NSA þróar gervigreindartól til tölvuárása með einu stærsta gervigreindarfyrirtæki heims, samkvæmt fréttum Financial Times í dag. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Framleiðsluvirði landbúnaðar 100 milljarðar í fyrra Heildarframleiðsluvirði íslensks landbúnaðar jókst um 7% milli áranna 2024 og 2025. Aðfangakostnaður jókst um 10%. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Vill upplýsingar um upplýsingafulltrúa Magnús Geir Eyjólfsson Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins hefur krafið dómsmálaráðherra svara hvernig staðið var að ráðningu upplýsingafulltrúa dómsmálaráðuneytisins. Þórdís Valsdóttir gegndi embættinu en gerðist aðstoðarmaður ráðherra þegar Jakob Birgisson hætti. Freyr Gígja Gunnarsson, fréttamaður á Ríkisútvarpinu, var ráðinn í stöðu upplýsingafulltrúa, án auglýsingar. Í fyrirspurn Nönnu Margrétar er spurt á hverju ráðningin byggi og hvort Þórdís snúi aftur í stöðu upplýsingafulltrúa að ári liðnu. Loks er spurt hvort einhverjum vandkvæðum hafi verið bundið að auglýsa stöðuna. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Japan Árásargjarn björn í Japan enn laus – Talinn mjög greindur Skógarbjörn sem réðist á fjóra í Japan í vikunni er enn laus. Hann opnaði sjálfur glugga og slapp úr haldi og hefur sést skrúfa frá krana til að fá sér vatn að drekka. Borgarstjóri Fukushima telur björninn vera mjög greindan. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Fjárhagsáætlun borgarinnar segi það sem segja þarf um viðhorf til fatlaðs fólks Mál ÖBÍ gegn Reykjavíkurborg var þingfest í héraðsdómi í gær. Bandalagið segir borgina ekki sinna lögbundnum skyldum sínum við fatlað fólk. Hún telji sum sveitarfélög veigra sér við því að upplýsa fólk um að það eigi rétt á þjónustunni. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Saka stjórnvöld um að beita Þórkötlu til að tefja endurreisn bæjarins Bæjarstjórn Grindavíkur sakar stjórnvöld um fjandsamlega afstöðu gagnvart skjótri enduruppbyggingu bæjarins. Hún segir þau vísvitandi beita fasteignafélaginu Þórkötlu til að koma í veg fyrir að fjölskyldur geti snúið heim. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Upprættu ólöglega kakkalakkaræktun með 100 þúsund dýrum Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL List „Hann tók þennan bolta og fór með til tunglsins“ Björk Guðmundsdóttir hefur alltaf sagt nei við því að setja upp myndlistarsýningar en þegar James Merry, samstarfsmanni hennar, var boðið að setja upp sýningu vildi hún styðja hann og sjá hann blómstra líkt og hann hefur stutt hana í 16 ár. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Bæjarfulltrúi dró sér tæpar 6 milljónir Gjaldkeri og bæjarfulltrúi Raddar unga fólksins dró sér tæpar sex milljónir úr sjóðum flokksins á síðasta kjörtímabili. Hann hefur samþykkt að greiða féð til baka og flokkurinn ætlar að verja fénu í ný leiktæki við grunnskóla Grindavíkur. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Svona verður HM á RÚV HM í fótbolta hefst 11. júní og allir leikir mótsins verða sýndir á rásum RÚV. Hér förum við yfir það helsta varðandi umgjörð RÚV frá mótinu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Áfram þungbúið en milt Áfram er útlit fyrir þungbúið en milt veður á landinu með hægri breytilegri átt. Á sunnudag er von á ívið meiri úrkomu, sérstaklega á Austurlandi. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Sexlembingar á tveimur bæjum á Austurlandi í vor Frjósemi hefur aukist töluvert hjá íslensku sauðfé undanfarin ár og er markvisst ræktuð í stofninum. Að minnsta kosti tvö sett af sexlembingum komu í heiminn á Austurlandi í vor. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Repúblikanar í fulltrúadeildinni kjósa aftur á skjön við áherslur Trumps Þrátt fyrir að Repúblikanar séu í meirihluta er þetta í annað sinn sem fulltrúadeildin samþykkir tillögu sem gengur gegn áherslum Bandaríkjaforseta í utanríkismálum. Tillagan gengur út á milljarða dala stuðning við Úkraínu. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Í dag: Ísland leikur úrslitaleik gegn Úkraínu Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Úkraínu í úrslitaleik í undankeppni HM 2027 í dag. Ísland getur með stigi tryggt sæti sitt í A-deild Þjóðadeildar og þar að auki betri leið í umspili um sæti á HM. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Kærður fyrir að misþyrma gæludýri Grétar Þór Sigurðsson Þrír gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgunsárið. RÚV / Sölvi Andrason Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur kært gæludýraeiganda í Breiðholti fyrir brot á lögum um velferð dýra eftir að hann misþyrmdi gæludýrinu sínu. Brotinu er ekki lýst nánar í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir verkefni hennar frá því klukkan 17 í gær. Í Kópavogi ók maður á hjólandi vegfaranda. Hann var kærður fyrir að virða ekki gangbrautarrétt. Þá var einn ökumaður í Hafnarfirði kærður fyrir að stinga af frá umferðaróhappi. Engin slys urðu á fólki. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Icelandair kynnti tillögur á fundi með ríkissáttasemjara Ríkissáttasemjari býst við tillögum eða gagntilboði frá FÍA eftir að samninganefnd hefur kynnt sér tillögurnar. Forstjóri Icelandair segir það mikilvægt fyrir flugfélagið, hagkerfið og þjóðina að samningar náist. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Japan Ætla að endurnýja allt að 14 kjarnaofna fyrir 2050 Stjórnvöld í Japan horfa í ríkari mæli til kjarnorku. Öll kjarnorkuver landsins lokuðu eftir kjarnorkuslysið í Fukushima en nokkur hafa opnað að nýju á síðustu árum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kína Xi á leið í opinbera heimsókn til Norður-Kóreu Þetta er fyrsta heimsókn Kínaforseta til Norður-Kóreu frá 2019. Stjórnvöld í Beijing hafa viljað styrkja sambandið við stjórnvöld í Pjongjang. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Bæta í refsiaðgerðir gegn kúbverskum stjórnmálamönnum Refsiaðgerðir Bandaríkjamanna beinast meðal annars gegn forseta Kúbu og fjölskyldu hans. Mikil röskun hefur orðið á daglegu lífi eftir að olíuflutningar stöðvuðust í janúar. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna segja ástandið alvarlegt. 5. júní 2026 kl. 1:11ERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Telja manninn geta misst stjórn á gervigreind og vilja hægja á þróun Starfsmenn Anthropic, sem meðal annars þróar gervigreindarlíkanið Claude, segja nýjustu gervigreindarlíkön þegar farin að sýna merki um að stjórn yfir þeim gæti runnið úr greipum manna. Því þurfi samstillt átak til að hægja á þróuninni. 5. júní 2026 kl. 0:15MENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Gyrðir hlaut virt dönsk heiðursverðlaun Gyrðir Elíasson hlaut í dag Zinklar-verðlaunin, heiðursverðlaun sem eru veitt smásagnahöfundum. Í tilefni verðlaunanna var fyrsta smásagnasafn Gyrðis, Bréfbátarigningin, endurútgefið á dönsku. 4. júní 2026 kl. 22:31INNLENDAR FRÉTTIR Ofbeldi Aldrei fleiri ungmenni grunuð um ofbeldisbrot Ofbeldi og hegðunarvandi birtist hjá sífellt yngri börnum, jafnvel allt niður í leikskóla. Tilkynningum um ofbeldi meðal ungmenna hefur fjölgað og sérfræðingur í hegðunarvanda barna vill þjóðarátak gegn ofbeldi. 4. júní 2026 kl. 22:20ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Sendir opið bréf til Pútíns: Vill hittast á fundi „augliti til auglitis“ Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu biður Vladimír Pútín Rússlandsforseta að hitta sig á fundi augliti til auglitis. Þetta kemur fram í opnu bréfi Zelensky til forsetans. 4. júní 2026 kl. 20:48INNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Tvær vindmyllur í Vaðölduveri risnar Framkvæmdum í Vaðöldveri, fyrsta vindorkuveri landsins, miðar vel, segir yfirverkefnastjóri. Tvær vindmyllur hafa risið á tæplega tveimur vikum. 4. júní 2026 kl. 20:24INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Ölfus Elliði enduráðinn bæjarstjóri í Ölfusi Ásrún Aldís Hreinsdóttir Elliði Vignisson var í dag endurráðinn bæjarstjóri í Ölfusi. Þessu greinir hann frá í færslu á Facebook síðu sinni. Fyrsti bæjarstjórnarfundur kjörtímabilsins fór fram í dag og var Elliði endurkjörinn bæjarstjóri án allra mótatkvæða. Hann segist fullur eftirvæntingar fyrir komandi kjörtímabili. Elliði leiðir Sjálfstæðisflokkinn í sveitarfélaginu en Sjálfstæðisflokkurinn fékk hreinan meirihluta í sveitarstjórn. Elliði hefur verið bæjarstjóri í Ölfusi frá árinu 2018, áður gegndi hann embætti bæjarstj