Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Myndband: Eyjólfur hífður upp með þyrlu Gæslunnar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.6.2026 | 17:54 Myndband: Eyjólfur hífður upp úr hafinu með þyrlu Landhelgisgæslunnar Eyjólfur Ármannson innviðaráðherra fékk að fara í þurrgalla áður en stakk sér hafið. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sveinn Valfells [email protected] Setja bókamerki Eyjólfur Ármansson, innviðaráðherra og Jón Gunnar Jónsson forstjóri Samgöngustofu voru látnir undirgangast skírn í sjómennsku fyrr í dag í tilefni af sjómannadeginum sem haldinn verður á sunnudaginn. Í henni fólst að þeir voru látnir stökkva frá borði björgunarskipsins Jóhannesar Briem í Reykjavíkurhöfn og voru þeir því næst hífðir um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Æfingin gekk vel afar vel undir nákvæmri stjórn þaulreyndra björgunarsveitarmanna, en sjón er sögu ríkari líkt og sjá má á myndum og myndskeiðum hér að neðan. Þaulvanir björgunarmenn að störfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Góð reynsla að mati ráðherrans Slysavarnarskóli sjómanna stóð að æfingunni en ásamt Eyjólfi og Jóni tóku nemendur á sjómannanámskeiði slysavarnarskólans þátt en lögum samkvæmt þurfa allir áhafnarmeðlimir íslenskra skipa að undirgangast þjálfun af þessu tagi og var viðburðurinn haldinn til að vekja athygli á því. „Ég er ekki reyndur sjómaður, ég er bara gamall bryggjusjómaður með leyfi fyrir 30 tonna bát og þetta var því mjög góð reynsla og afar skemmtilegt,” segir Eyjólfur í samtali við mbl.is. „Það var líka virkilega góð reynsla að vera hífður upp í þyrlunni. Maður fann þar að auki ekkert fyrir lofthræðslu eða neinu slíku, maður fann að maður var í afar góðum höndum. Satt að segja hefði ég nú bara viljað vera lengur í loftinu til að geta notið útsýnisins betur,“ segir Eyjólfur og hlær. Taug var strengt úr þyrlunni í björgunarbátinn Jóhannes Briem. mbl.is/Eggert Jóhannesson Íslendingar fyrirmynd í öryggi sjómanna Slysavarnaskóli sjómanna var stofnaður árið 1985 og hefur allar götur síðan unnið afar mikilvægt starf í að þjálfa sjómenn og fækka slysum við strendur landsins. Eyjólfur segir árangur Íslands í öryggismálum sjómanna vera einsdæmi í heiminum. Mikilvægt sé að svo verði áfram og að Ísland haldi áfram að skara fram úr þegar kemur að öryggi sjómanna á hafinu. Eyjólfur og Jón Gunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Sá árangur sem hefur náðst í fækkun slysa er alveg hreint ótrúlegur, og öfundsverður á heimsvísu. Ég nefni sem dæmi að á síðustu tuttugu árum höfum við að meðaltali misst eitt líf á hverju ári sem er auðvitað einu of mikið, en ég nefni sem dæmi að árið 1959 voru 59 sem létust á hveru ári og árangur síðustu áratuga hefur verið alveg frábær,” segir Eyjólfur. mbl.is/Eggert Jóhannesson mbl.is/Eggert Jóhannesson Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndband: Eyjólfur hífður upp með þyrlu Gæslunnar Faldi sig á bak við runna eftir stefnumót Úkraína - Ísland, staðan er 0:1 Þorvaldur segir kvikugang ekki upptök skjálftanna Myndir: Fjöldi fólks tók á móti Söru Björk Umræðan Evrópusambandið og átökin um auðlindirnar Evran enginn happafengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Engin svör frá ráðuneytinu Fór ráðuneytið á svig við siðareglur ríkisstjórnar? „Verið að svíkja öll loforð“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Mest lesið Í gær Í vikunni Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Andlát: Þórir Lárusson Ekki frá höfundum komið Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Andlát: Vigfús Kr. Vigfússon Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Lést við barnsburð á Landspítalanum Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nýjast á mbl.is » Myndband: Eyjólfur hífður upp með þyrlu Gæslunnar Faldi sig á bak við runna eftir stefnumót Úkraína - Ísland, staðan er 0:1 Þorvaldur segir kvikugang ekki upptök skjálftanna Myndir: Fjöldi fólks tók á móti Söru Björk Umræðan Evrópusambandið og átökin um auðlindirnar Evran enginn happafengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Landsliðin flugu með íslenskum vélum Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn Málverkaþjófnaður um hábjartan dag Fór ráðuneytið á svig við siðareglur ríkisstjórnar? Mest lesið Í gær Í vikunni Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Andlát: Þórir Lárusson Ekki frá höfundum komið Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Andlát: Vigfús Kr. Vigfússon Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Lést við barnsburð á Landspítalanum Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga

Share this article