Innlent | Morgunblaðið | 6.6.2026 | 11:40 Segir tillögur fela í sér skerðingar Ekki er búið að boða nýjan fund í vinnudeilunni. mbl.is/Árni Sæberg Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Flugmenn Icelandair eru með til skoðunar þær tillögur sem fyrirtækið kynnti þeim á sáttafundi sem haldinn var í fyrrakvöld og á Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari síður von á að til einhverra tíðinda dragi í deilunni fyrr en eftir helgi. Ekki er búið að boða nýjan fund í vinnudeilunni. Þetta segir hann í samtali við Morgunblaðið. Um tillögur Icelandair segir hann að þær séu umfangsmiklar og feli í sér margs konar skerðingar á því sem flugmenn hafa talið til réttinda sinna. „Það er verið að tala um að auknar heimildir fáist til að setja upp skrár til að fá betri nýtingu á starfskröftum. Ef rýmri heimildir atvinnurekanda felast í að hægt sé að setja starfsmann í meiri vinnu dregur það um leið úr möguleikum viðkomandi til að nýta tímann í annað. Það er verið að tala um að gera heimildir atvinnurekandans til þess að nýta tímann rýmilegri, sem gerir það þá að verkum að atvinnurekandinn nær fram betri nýtingu á starfsfólki, sem er íþyngjandi í sjálfu sér fyrir það,“ segir Ástráður. Slá skjaldborg um réttindi „Á sama tíma eru tillögur uppi um það að vernda betur þann frítíma sem starfsmenn eiga að hafa og slá þannig frekari skjaldborg um réttindi þeirra,“ segir hann. Einnig hafa komið til umræðu breytingar á samningi hvað varðar svokallaða „blautleigu“ sem er hugtak sem vísar til þess að leigð sé flugvél með áhöfn frá öðru flugfélagi til félagsins. „Það hafa lengi verið í samningum mjög takmarkaðar heimildir til slíks, t.d. ef flugvélar bila, en hugmyndir flugfélagsins hafa gengið út á það að fá þær heimildir rýmkaðar til þess að geta mætt álagi eða stoppað í göt,“ segir Ástráður og nefnir að ekki séu til umræðu tillögur um launahækkanir. „Það er lítið um það,“ segir hann, „en þetta er þungt samtal og erfitt. Flugmennirnir tóku tillögunum af mikilli stillingu og hafa verið að skoða þær og það tekur einhvern tíma,“ segir Ástráður. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kaflaskil hjá bardagakind Segir tillögur fela í sér skerðingar Mikil dramtík í öðrum sigri New York „Hver skammar mig fyrir að skófla þessu upp í mig með skeið?“ Hátíðarhelgi fram undan Umræðan Agi og agaleysi Þjóðaratkvæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fá lán aðeins hluta skólaársins Sakborningur sendi yfirlýsingu vegna umfjöllunar Kaflaskil hjá bardagakind Þorvaldur segir kvikugang ekki upptök skjálftanna Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Vindorka eykur flutningskostnað Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Ásta verður áfram sveitarstjóri Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Fjárlög verði ekki hallalaus 2027 Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Kaflaskil hjá bardagakind Segir tillögur fela í sér skerðingar Mikil dramtík í öðrum sigri New York „Hver skammar mig fyrir að skófla þessu upp í mig með skeið?“ Hátíðarhelgi fram undan Umræðan Agi og agaleysi Þjóðaratkvæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sakborningur sendi yfirlýsingu vegna umfjöllunar Segir tillögur fela í sér skerðingar „Grundvallaratriði fyrir íslenska þjóð“ Ástæða til að hafa áhyggjur Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Vindorka eykur flutningskostnað Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Ásta verður áfram sveitarstjóri Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Fjárlög verði ekki hallalaus 2027 Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna