- What: Two people transported by ambulance after a car accident in South Iceland
- Impact: No serious injuries reported
Tveir einstaklingar eru á leið til Reykjavíkur í sjúkraflugi með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir umferðarslys á Suðurlandi. Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um bílveltu við Fagurhólsmýri inni í Freysnesi upp úr klukkan 10 í morgun, segir Bjarki Oddsson lögreglufulltrúi. Í kjölfarið var sent lögreglu- og sjúkraflutningabíla á vettvang slyssins frá bæði Kirkjubæjarklaustri og Hornafirði. Þá var bráðaviðbragð í Öræfum líka ræst, sem byggir á samningi við björgunarsveitir. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að beiðni um þyrlu Landhelgisgæslunnar hafi borist klukkan um 20 mínútur í 11. Þyrlan hafi verið komin á vettvang um hálf 12 og sé á leið aftur til Reykjavíkur með einstaklingana tvo um borð. Ekki liggur fyrir hver líðan þeirra er.