Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur á Reykjanesbraut

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 5 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Einn flutt­ur á slysa­deild eftir árekst­ur á Reykja­nes­braut Guðmundur Atli Hlynsson Einn var fluttur á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur á Reykjanesbraut, nærri álverinu í Straumsvík, á fimmta tímanum. Þorsteinn Gunnarsson aðstoðarvarðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir viðbragðsaðila enn að störfum á vettvangi og viðbúið að tafir geti orðið á umferð. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var áreksturinn á akrein sem liggur frá Hafnarfirði og út á Reykjanes. Álverið í Straumsvík. Áreksturinn varð á þessum vegi. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 21 mínútuERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar segja 140 dróna hafa verið skotna niður nærri Sankti Pét­urs­borg Árásir Úkraínuhers á Rússland hafa haldið áfram í dag. Rússlandsforseti segir tilgangslaust að funda um frið við Úkraínumenn á meðan árásir standa yfir. Úkraínuforseti hefur kallað eftir vopnahléi. Fyrir 22 mínútumERLENDAR FRÉTTIR El Salvador Mörg þúsund ára fang­els­is­refs­ing­ar fyrir mörg þúsund morð Liðsmaður salvadorsks glæpagengis á yfir höfði sér allt að 25 þúsund ára fangelsisdóm fyrir mörgþúsund morð. Dómstólar rétta yfir nærri fimm hundruð liðsmönnum MS-13. Fyrir 23 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Bæj­ar­stjórn Kópa­vogs vill skoða upp­bygg­ingu á eigin hita­veitu Bæjarstjóri Kópavogs segir einhug hafa ríkt innan flokksins um áframhaldandi meirihlutasamstarf með Framsóknarflokki. Hún segir til standa að skoða möguleika á uppbyggingu eigin hitaveitu í bæjarfélaginu. Fyrir 35 mínútumÍÞRÓTTIR Hlaup Þúsund kepp­end­ur í Heng­ils­hlaup­inu Hengill Ultra hefur fest sig í sessi á undanförnum árum. Keppt er í fimm vegalengdum frá fimm kílómetrum upp í 106. Alls voru yfir 1.000 keppendur skráðir til leiks frá ríflega 30 löndum. Fyrir 54 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Bláskógabyggð 5000 fer­metr­ar af nýjum gróð­ur­hús­um í Reyk­holti Þorpið í Reykholti í Biskupstungum í Bláskógabyggð fagnaði hundrað ára afmæli á dögunum. Í tilefni dagsins voru söguskilti afhjúpuð í þorpinu. Til stendur að byggja um fimm þúsund fermetra af nýjum gróðurhúsum á næstu mánuðum. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Tennis Andreeva vann Opna franska og skrif­aði söguna Úrslitin réðust í dag í kvennaflokki á Opna franska meistaramótinu í tennis. Fyrir úrslitaleikinn var ljóst að sigurvegarinn myndi skrá sig á spjöld sögunnar, sama hvor ynni. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurþing Berg­þór Bjarna­son verður næsti sveit­ar­stjóri Norð­ur­þings Mist Þormóðsdóttir Grönvold Bergþór Bjarnason tekur við starfi sveitarstjóra í Norðurþingi frá og með 15. júní. Fram kemur í frétt Vikublaðsins að samkomulag hafi náðst á milli nýs meirihluta sveitarstjórnar og Bergþórs, sem gegnt hefur starfi fjármálastjóra undanfarin ár ásamt því að vera staðgengill sveitarstjóra. Samningur um ráðningu Bergþórs verður undirritaður að loknum fyrsta sveitarstjórnarfundi nýrrar sveitarstjórnar í næstu viku. Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Framsóknarflokkur og Óskalisti skipa meirihluta sveitarstjórnar í Norðurþingi. Málefnasamningur flokkanna fjögurra var undirritaður í upphafi mánaðar. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Þung­a­rokk­arar á öllum aldri sam­an­komn­ir í Stykk­is­hólmi Tónlistarhátíðin Sátan fer fram í Stykkishólmi um helgina. Þangað flykkjast þungarokkarar víða að. Fjölbreytt úrval fremstu þungarokkshljómsveita Íslands stígur á svið ásamt völdum erlendum hljómsveitum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn áfram í meiri­hluta í Kópa­vogi Ásdís Kristjánsdóttir verður áfram bæjarstjóri í Kópavogi. Meirihlutasáttmáli Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna leggur áherslu á áframhaldandi ábyrgan rekstur Kópavogsbæjar. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Sam­starf en ekki her­skylda Stendur til að stofna evrópskan her? Gæti komið til þess að evrópsk herskylda yrði tekin upp? Spurningar af þessu tagi hafa skotið upp kollinum í opinberri umræðu og á samfélagsmiðlum. Svarið er tvískipt. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Armenía Kosn­ing­ar í Ar­men­íu gætu end­ur­skap­að tengsl­in við Rússa og Vest­ur­lönd Kosið verður til þings í Armeníu á morgun. Kosningarnar snúast að mestu leyti um hvort Armenar vilji styrkja tengslin við Evrópu enn frekar og þá fjarlægast Rússa. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Verka­lýðs­fé­lag í Hafn­ar­firði sakar ræst­inga­fyr­ir­tæki um brot á kjara­samn­ing­um Verkalýðsfélagið Hlíf í Hafnarfirði sakar ræstingafyrirtækið Nostru um ítrekuð brot á kjarasamningum. Laun hafi verið greidd seint og illa og starfsmenn kvartað undan vinnuskipulagi. Fyrirtækið hafnar ásökunum félagsins alfarið. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Tveir flutt­ir með þyrlu á sjúkra­hús eftir bíl­veltu Tveir voru fluttir með sjúkraflugi eftir bílveltu á Suðurlandi fyrir hádegi. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Lýðstjórnarlýðveldið Kongó Nærri 500 eb­ólu­smit greinst Tæplega 500 smit hafa verið greind í ebólufaraldri sem gengur yfir í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í Afríku. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við því að faraldurinn geti orðið sá stærsti til þessa. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Ekkert að gerast um helg­ina í kjara­deilu Ic­elandair og flug­manna Þórdís Arnljótsdóttir Jón Þór Þorvaldsson formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir ekkert að gerast í kjaradeilunni við Icelandair um helgina í svari við fyrirspurn fréttastofu. Ríkissáttasemjari á ekki von á að heyra í flugmönnum um helgina. Flugfélagið lagði fram tillögur í kjaradeilunni í fyrrakvöld, 4. júní. Boltinn er því hjá flugmönnum. Meðal annars er tekist á um hvíldartíma og vinnufyrirkomulag en einnig svokallaða blautleigusamninga. Þeir fela í sér að flugfélag fær erlent flugfélag til að fljúga fyrir sig. Icelandair vill fá heimild til að gera slíka samninga. Vélin sem Icelandair er með á leigu núna tengist ekki deilunni. Deilan er snúin. Frá vinstri Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA, Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari og Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair. RÚV/Samsett mynd / Ragnar Visage Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Mik­il­vægt að barna­fjöl­skyld­ur verði vistað­ar í öðru úrræði en brott­farar­stöð Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur til breytingartillögu á frumvarpi um brottfararstöð sem snýr að því að barnafjölskyldur verði í aðskildu húsnæði frá brottfararstöðinni. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Bæta far­nets­kerfi við Látra­bjarg í að­drag­anda al­myrk­vans Mist Þormóðsdóttir Grönvold Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að styrkja úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg vegna almyrkvans 12. ágúst. Aðgerðunum er meðal annars ætlað að stuðla að auknu öryggi, styðja við viðbúnað og draga úr líkum á alvarlegum truflunum í farnetstþjónustu. Fram kemur í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins að búist sé við miklum fjölda fólks á þeim stöðum þar sem almyrkvi á sólu verður mestur og varir lengst. Staðan við Látrabjarg sé sérlega viðkvæm þar sem fyrirhuguð uppbygging fjarskiptainnviða hafi tafist. Þar sé því þörf á umfangsmeiri og kostnaðarsamari úrbótum. Stjórnarráð Íslands Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Loks­ins sam­ein­ast Há­skóli Ís­lands og Há­skól­inn á Hólum Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum sameinast 1. júlí undir merkjum háskólasamstæðu Háskóla Íslands. Lagafrumvarp þess efnis var samþykkt nýverið en sameiningin hafði staðið til frá 2023. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti New York Knicks skrefi nær titl­in­um Einar Örn Jónsson New York Knicks lagði San Antonio Spurs að velli í öðrum úrslitaleik liðanna í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Knicks vann 105-104 og hefur unnið báða leiki liðanna í San Antonio, og nú færist baráttan til New York. Það hefur aðeins tvisvar áður gerst að lið vinni tvo fyrstu leikina á útivelli í úrslitum, 1993 og 1995, og í bæði fyrri skiptin urðu liðin sem það gerðu meistarar. Það voru Chicago Bulls og Hourston Rockets. Aðdáendur Knicks eru orðnir ansi langeygir eftir titlinum. Þetta risalið stærstu borgar Bandaríkjanna hefur vægast sagt valdið vonbrigðum í áratugi því einu tveir titlar liðsins unnust árin 1970 og 1973. Úr leik New York og San Antonio í nótt EPA / ADAM DAVIS Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Leggja til breyt­ing­ar á frum­varpi um brott­farar­stöð Breytingartillögur meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar taka mið af gagnrýni á vistun barnafjölskyldna í brottvísunarstöðvum. Tillögurnar byggja meðal annars á fyrri tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í nefndinni. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þrjár hand­tök­ur á Ak­ur­eyri í gær­kvöld og nótt Tveir voru handteknir í aðgerð lögreglu á Akureyri með aðstoð sérsveitar. Þá var einn handtekinn í heimahúsi grunaður um líkamsárás. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Menntamál Út­skúf­uð og fé­lags­lega ein­angr­uð Það getur ekki verið í anda farsældarlaganna, sem voru samþykkt samhljóða á Alþingi, að barn þurfi að bíða eftir greiningu í fimm ár og enn síður að það skipti máli í hvaða hverfi barnið býr. Börn og biðlistar eru umfjöllunarefni Kerfisins á Rás 1. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Ic­elandair með litáíska flug­vél og áhöfn á leigu Upplýsingafulltrúi Icelandair segir leigu á flugvél Heston Airlines hluta af eðlilegum flugrekstri. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Nígería Höfða mál gegn Shell vegna skað­legra áhrifa af ol­íu­leiðsl­um í Ní­ger­íu Bresk-hollenska fyrirtækið Shell rak áfram stórt olíuleiðslukerfi í Nígeríu árum saman þrátt fyrir að vita að það ylli víðtækri mengun, samkvæmt skjölum sem breska ríkisútvarpið hefur undir höndum. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Skúrir víða síð­deg­is Samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands gæti verið ráð að hafa regnjakka meðferðis í dag. Von er á skúrum víða um land og einkum síðdegis. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Finnst fal­legt að geta lokað hringn­um Sara Björk Gunnarsdóttir segir það verða lítið mál að gíra sig upp í að spila leiki í næste

Share this article