Innlent | mbl | 6.6.2026 | 17:11 Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ Jón Gunnarsson. Guðrún Hafsteinsdóttir og Hildur Sverrisdóttir. Samsett mynd mbl.is/Eyþór/Karítas/Eggert Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Upptaka evru „engin töfralausn“ Miklar breytingar á forystusveitinni Verði vonandi sjaldan vistuð í brottfararstöð „Verið að lofa jarðgöngum út um allar trissur“ Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm » Fleiri tengdar fréttir Þingmenn stjórnarandstöðunnar gerður verulegar athugasemdir við það að forseti Alþingis hefði boðað til þingfundar á Alþingi í dag en sá fundur stendur enn yfir og til umræðu eru innviðafélag og samgönguáætlun. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, steig fyrstur mælenda í pontu og sagði hann að með fundinum væri blað brotið í sögu þingsins. Aldrei fyrr hefði Alþingi verið kallað saman á sjómannadagshelgi og sagði hann sjómönnum mikla vanvirðingu sýnd. „Ég vil skora á hæstv. forseta að fresta þessum fundi og leyfa okkur að fara og taka þátt í því sem á að vera númer eitt þessa helgi, að sýna sjómönnum og fjölskyldum þeirra þá virðingu sem vera ber,“ sagði Jón fyrr í dag. Benti hann einnig á að aðeins hefði áður verið kallað til fundar sjómannadagshelgina árið 2012 og 2015. Í fyrra skiptið hefði verið frá því horfið vegna mótmæla þingmanna og í seinna skiptið hefði það verið gert af neyðarsjónarmiðum vegna afnáms gjaldeyrishafta sem þurfti að vera lokið áður en markaðir og Seðlabanki opnuðu á mánudagsmorgni. Engum dottið þetta áður í hug Aðrir þingmenn minnihlutans tóku í svipaðan streng, en þar á meðal voru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Hildur Sverrisdóttir og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir. Í ræðu sinni um fundarstjórn sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, að það væri ríkisstjórninni til mikillar minnkunar að þingfundur færi fram á sjómannadagshelgi og sagði með ólíkindum að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gæti ekki náð þinglokum án þess að fara á svig við óskrifaðar reglur og hefðir þingsins. Hildur Sverrisdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokks, sagði einnig að þrátt fyrir að semja þyrfti um þinglok hefði engum áður dottið í hug að nýta sjómannadagshelgina undir þingfund. „Það er ekkert hér sem ég get séð sem kallar á þessa ákvörðun og því miður er þetta vanvirðing við sjómenn,“ sagði Hildur. Arna Lára Jónsdóttir og Guðmundur Ari Sigurjónsson stigu einnig í pontu til að ræða fundarstjórn forseta. Þar sögðu þau bæði mikilvægt að þingfundur færi fram til þess að klára þau verkefni sem biðu þingsins í þessari viku. Tengdar fréttir Alþingi Upptaka evru „engin töfralausn“ Miklar breytingar á forystusveitinni Verði vonandi sjaldan vistuð í brottfararstöð „Verið að lofa jarðgöngum út um allar trissur“ Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mafalda Sigmarsson kom fyrst kvenna í mark Vilja ekki taka á móti nýju flóttafólki NBA-leikmaðurinn sagði Arsenal vera ömurlegt Tveir bílar skullu saman á Reykjanesbraut Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Churchill of sundrandi og elitískur fyrir seðlana Rómantík á póstkortum Brunakerfi stúdentagarða í gang við sturtuferðir Segir tillögur fela í sér skerðingar Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Tveir á bráðamóttöku eftir bílveltu á Suðurlandi Vindorka eykur flutningskostnað Segir tillögur fela í sér skerðingar Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Mafalda Sigmarsson kom fyrst kvenna í mark Vilja ekki taka á móti nýju flóttafólki NBA-leikmaðurinn sagði Arsenal vera ömurlegt Tveir bílar skullu saman á Reykjanesbraut Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kaflaskil hjá bardagakind Skýrslan sýni ókosti krónunnar Fjárlög verði ekki hallalaus 2027 Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Tveir á bráðamóttöku eftir bílveltu á Suðurlandi Vindorka eykur flutningskostnað Segir tillögur fela í sér skerðingar Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna