Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Barátta Laxness fór fyrir Hæstarétt

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 6.6.2026 | 19:18 Barátta Laxness fór fyrir Hæstarétt Ragnar Jónsson útgefandi og Halldór Laxness á blaðamannafundi. mbl.is/Ólafur K. Magnússon Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Fyrir rúmum 80 árum var nóbelsskáldið Halldór Laxness sóttur til saka fyrir hæstarétti fyrir að gefa Íslendingasögur út á hátt sem hann taldi aðgengilegan ungu fólki. Nú virðist aftur vera þörf á að kveikja áhuga ungs fólks á lykilverkum bókmenntasögunnar en líkt og Morgunblaðið hefur greint frá hefur lestur þyngri bókmenntaverka dregist mikið saman í framhaldsskólum. Til marks um það hefur meirihluti framhaldsskóla dregið verulega úr lestri Íslendingasagna síðustu ár og innan við þriðjungur framhaldsskólanema les nú heila skáldsögu eftir Halldór Laxness sem hluta af skyldunámi sínu til stúdentsprófs. Umfjöllun blaðsins um þetta síðustu mánuði hefur vakið mikið umtal í samfélaginu en ljóst er að þróunin, þar sem framhaldsskólar gefast upp á að kenna þyngri bókmenntaverk, hefur staðið yfir um nokkurt skeið. Bókmenntafræðingurinn Soffía Auður Birgisdóttir hafði til að mynda orð á henni í facebook-færslu fyrir átta árum þar sem hún hélt því fram að margir framhaldsskólakennarar væru að gefast upp á því að kenna bækur Halldórs Laxness því nemendur þeirra skildu þær ekki og tengdu ekki við þær. Í samtali við Morgunblaðið segist hún hafa varpað þessu fram á þeim tíma til að hvetja til þess að bækur Laxness yrðu gefnar út á nútímamáli, það er með hefðbundinni stafsetningu. Hugmyndin þótti mörgum fáránleg og þykir enn, þó svo að Forlagið hafi gefið út nokkur verka nóbelsskáldsins með venjulegri nútímastafsetningu síðan. Soffía Auður bendir á að sama hvað fólki kunni að finnast sé með þessu í raun verið að fylgja fordæmi skáldsins sjálfs sem barðist fyrir því að gera Íslendingasögurnar aðgengilegri ungu fólki á fyrri hluta síðustu aldar. „Halldór Laxness stóð náttúrlega sjálfur fyrir því að gefa út Íslendingasögur á nútímaíslensku og það varð allt brjálað þegar hann gerði það.“ Hafði gagnrýnt nýjar útgáfur Halldór Laxness, Ragnar Jónsson bókaútgefandi og Stefán Ögmundsson prentari réðust í útgáfu Íslendingasagna með nútímastafsetningu um og upp úr 1940 en Halldór hafði áður gagnrýnt nýjar útgáfur af fornsögum með samræmdri fornri stafsetningu. Alþingi samþykkti þá lög um einkarétt ríkisins á útgáfu íslenskra rita sem samin hefðu verið fyrir 1400 og ákvað að kennslumálaráðherra skyldi úthluta útgáfuleyfum. Halldór, Ragnar og Stefán voru kærðir fyrir brot á þessum lögum og fór svo eftir nokkurn málarekstur að Hæstiréttur Íslands fékk málið til úrskurðar og þar voru þeir sýknaðir 1943. Í grein Vísindavefsins um málið segir að þetta muni vera í eina skiptið sem Hæstiréttur Íslands hefur skorið úr ágreiningi sem sprottinn er af stafsetningu. „Halldóri fannst að það ætti að gefa út Íslendingasögur á því tungumáli sem ungir Íslendingar gætu lesið. Ég hef rekist á það í kennslu og ekki síst þegar ég hef verið að kenna útlendingum íslensku, sem ég gerði á tímabili, sem voru nemendur við Háskóla Íslands og voru komnir í bókmenntaáfanga, að það var mjög erfitt fyrir þá að lesa Laxness út af sérvisku hans í stafsetningu á tungumáli,“ segir Soffía Auður. Þrátt fyrir að einhverjar skáldsögur Halldórs hafi nú verið gefnar út með hefðbundinni stafsetningu virðast nemendur margir enn eiga erfitt með að skilja þær. Spurð hvort það væri hægt að ganga lengra í nútímavæðingu textans segir Soffía: „Ég var nú fyrst og fremst að tala um stafsetningu og sjálfri er mér svolítið illa við að fara að breyta bókmenntaverkum mikið.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Barátta Laxness fór fyrir Hæstarétt Fyrrum leikmaður United án félags Æfir yfir banni Náttúruverndarstofnunar Rosaleg 184 milljóna þakíbúð í miðbænum Knúðu fran oddaleik gegn Martin Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rómantík á póstkortum Óræð Íslandstenging í finnskri gröf Sakborningur sendi yfirlýsingu vegna umfjöllunar Enn langt frá nákvæmni í eldgosaspám Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Tveir á bráðamóttöku eftir bílveltu á Suðurlandi Segir tillögur fela í sér skerðingar Vindorka eykur flutningskostnað Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Barátta Laxness fór fyrir Hæstarétt Fyrrum leikmaður United án félags Æfir yfir banni Náttúruverndarstofnunar Rosaleg 184 milljóna þakíbúð í miðbænum Knúðu fran oddaleik gegn Martin Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fylgjast með keppni storknandi og flæðandi kviku Áhrif á heilann koma seint í ljós Óræð Íslandstenging í finnskri gröf Kaflaskil hjá bardagakind Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Tveir á bráðamóttöku eftir bílveltu á Suðurlandi Segir tillögur fela í sér skerðingar Vindorka eykur flutningskostnað Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna

Share this article