Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 6.6.2026 | 22:31 Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Eftirvæntingin var í hámarki fyrir tónleikum kvöldins. Samsett mynd mbl.is/Ólafur Árdal Setja bókamerki Bubbi Morthens, einn ástsælasti söngvari Íslands, er sjötugur í dag. Í tilefni þess blés hann til heljarinnar afmælistónleikahelgi, en seinni tónleikar af tveimur hófust klukkan 20.30 í Laugardalshöll í kvöld. Blaðamaður mbl.is ræddi við nokkra aðdáendur Bubba í Laugardalshöll skömmu fyrir tónleikana. Bubbi tók Háskólabíó á leigu í heilan mánuð til að undirbúa sig undir tónleikahelgina en hann sagðist vilja veita fólki upplifun sem það hafði aldrei áður séð á Íslandi. Það er uppselt á tónleika kvöldsins, eins og í gær, og búist er við um 4.500 manns í höllina í kvöld. Frétt af mbl.is Þú hefur ekki séð í hvaða formi ég er Frétt af mbl.is Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Bubba-lounge Það var góð og yfirveguð stemning í Betri stofunni, eða hinu svokallað Bubba-lounge, þegar blaðamann bar að garði fyrr í kvöld. Þar gat fólk notið samverunnar, fengið sér drykk, farið í klippingu og spjallað saman um Bubba áður en tónleikarnir hófust. Tónleikagestirnir Eyþór Ingi, Soffía Ósk, Gunnlaugur Antonsson og Guðbjörg Stefánsdóttir voru mætt á svæðið og biðu spennt. Blaðamaður fékk að spyrja þau spjörunum úr. Frétt af mbl.is Bubba-aðdáendur flykkjast í höllina Aðdáandi síðan hann var „pjakkur með vit“ Hvert er uppáhalds Bubba-lagið ykkar? Eftir nokkra umhugsun segir Soffía að uppáhalds lagið sitt sé Syneta en lagið Kveðja er hins vegar uppáhalds lag Guðbjargar. Gunnlaugur velur lagið Í hjarta mér en Eyþór segir valið fara eftir því í hvernig skapi hann er. Núna er hann í skapi fyrir Blindsker. Hvað eruð þið búin að vera Bubba-aðdáendur lengi? Eyþór tekur af skarið og segist vera búinn að vera aðdáandi síðan hann var pjakkur með vit. Soffía segir sig hafa verið aðdáanda frá því hún heyrði fyrst í Bubba. Hver er fyrsta minningin ykkar af Bubba Morthens? Gunnlaugur er ekki lengi að hugsa og segir fyrstu minninguna af Bubba vera þegar hann fór í fermingarfötunum í Dynheima á Akureyri til að sjá Utangarðsmenn, þá fimmtán ára gamall. Hver er uppáhalds Bubbinn ykkar? Eyþór er fyrstur að svara eftir enga umhugsun. „Kassagítar- og munnhörpu-Bubbi,“ segir hann og bætir svo við: „Mér þykir alltaf vænt um Rokk-Bubba, hann er flottur. En mér þykir vænst um bara Bubba með kassagítarinn og munnhörpuna um hálsinn,“ segir hann og borðið tekur undir það. Eyþór Ingi, Soffía Ósk, Guðbjörg Stefánsdóttir og Gunnlaugur Antonsson voru meðal gesta kvöldsins. mbl.is/Ólafur Árdal Keypti fyrsta diskinn með Bubba 11 ára Skammt frá voru Bubba-aðdáendurnir Ingvar Ágústsson, Heiða Sigurðardóttir, Anna Lilja Ottósdóttir og Björn Jón Ævarsson í góðum gír. Hvert er uppáhalds Bubba-lagið ykkar? Ingvar velur Stál og hníf og Anna velur Þessi fallegi dagur. Heiða og Björn eru mjög samstíga og velja bæði Rómeó og Júlía. Hvað eruð þið búin að vera Bubba-aðdáendur lengi? Anna segist hafa verið 11 ára þegar hún keypti fyrsta diskinn en hún er 57 ára ung í dag. Það var diskurinn Egó. Ingvar minnist þess að hafa verið 21 árs þegar hann fór á tónleika með Bubba á Fáskrúðsfirði en hann hitti Bubba og félaga fyrir utan tónleikastaðinn og sagðist hann ætla að bjóða þeim á tónleikana. „Svo horfði hann út um gluggann og spurði hvort við ættum bílinn fyrir utan. Við svöruðum því játandi og þá sagði hann að við gætum borgað sjálfir,“ segir Ingvar og hlær en hann keyrði sportbílinn Chevy Nova á þessum tíma. Hvað elskið þið við hann Bubba? „Hann er bara svo frábær lagahöfundur,“ segja þau öll í kór. „Hann segir sannleikann í textunum,“ segir Ingvar og Anna bætir við: „Hann bara er ekki með neitt kjaftæði. Hann segir hlutina eins og þeir eru og honum er slétt sama hvað öðrum finnst.“ Bubba-aðdáendurnir Ingvar Ágústsson, Heiða Sigurðardóttir, Anna Lilja Ottósdóttir og Björn Jón Ævarsson. mbl.is/Ólafur Árdal „Það eru ekki jól nema það sé Bubbi“ Fjölskyldan Haraldur Kusi, Dóra Björk, Hrönn Hafey Kusa og Sindri Snær eru Kálfavíkurfólk af Vestfjörðum og miklir Bubba-aðdáendur. „Það eru ekki jól nema það sé Bubbi. Hann er jólin, hann er allt. Ég græja alltaf rjúpurnar á Þorláksmessukvöld með Bubba í botni,“ segir Dóra Björk. Munið þið eftir fyrstu Bubba-tónleikunum ykkar? Dóra segir þá hafa verið litla tónleika í Víkurbæ í Bolungavík fyrir um það bil 30 árum. Hún hefur ekki farið á Bubba-tónleika síðan og eftirvæntingin leynir sér ekki. Haraldur Kusi segist hafa mætt á þrenna Þorláksmessutónleika fyrir utan tónleika í Neskaupstað í denn þar sem honum var kurteislega hent út. Hvað elskið þið við hann Bubba? „Allt. Bara fullkomnunin í öllu; tónlistinni, röddinni, öllu. Hann er bara fullkominn,“ segir Dóra og Haraldur eiginmaður hennar bætir við: „Hann er kóngurinn.“ Fjölskyldan Guðmann Kusi, Haraldur Kusi, Sindri Snær, Hrönn Hafey Kusa og Dóra Björk eru miklir aðdáendur Bubba. mbl.is/Ólafur Árdal „Gaman að sjá hann gefa til baka“ Að lokum er rætt við tónleikagest að nafni Einar Karl Birgisson, en hann er að fá sér klippingu hjá strákunum í Stúdíó 101. Hann keypti miðana sína í endursölu þremur klukkutímum áður en tónleikarnir áttu að hefjast og bíður spenntur. „Bubbi í dag er uppáhaldsútgáfan mín. Mér finnst frábært hvernig hann er að hjálpa mörgum í tónlist í dag. Ég held að gamli Bubbi hefði ekki hringt í nýjan íslenskan rappara og beðið hann um að syngja með sér. Hann hefur þróast yfir í að vera fyrirmynd fyrir aðra tónlistarmenn og nýtir styrkinn sinn í að koma öðrum á framfæri, sem er frábært. Það er gaman að sjá hann gefa til baka,“ segir Einar Karl. Einar Karl Birgisson, tónleikagestur, fer vel snyrtur inn í kvöldið. mbl.is/Ólafur Árdal Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Gamla ljósmyndin: Tíðindi í Frostaskjólinu Fjaraði hratt út í Norðurá Manstu þegar Anna Dóra varð tíu árum yngri á tíu vikum? Kane hættir ekki að skora og Ngumoha fimmti yngsti í sögunni Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skýrslan sýni ókosti krónunnar Æfir yfir banni Náttúruverndarstofnunar Ástæða til að hafa áhyggjur Fjárlög verði ekki hallalaus 2027 Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Margir vilja Bubba-miða og streymið er vinsælt Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Gamla ljósmyndin: Tíðindi í Frostaskjólinu Fjaraði hratt út í Norðurá Manstu þegar Anna Dóra varð tíu árum yngri á tíu vikum? Kane hættir ekki að skora og Ngumoha fimmti yngsti í sögunni Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Barátta Laxness fór fyrir Hæstarétt Fá lán aðeins hluta skólaársins Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Þorvaldur segir kvikugang ekki upptök skjálftanna Mest lesið Í gær Í vikunni Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Margir vilja Bubba-miða og streymið er vinsælt Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna

Share this article