Security News

Cybersecurity news aggregator

🏦
INFO News Viðskiptablaðið

Samkeppniseftirlitið með kastljósið á bönkunum

  • What: Competition authority monitoring bank operations
  • Impact: Financial regulation in Iceland
Read Full Article →

Hrafnarnir ganga út frá því að Benedikt Gíslason, Jón Guðni Ómarsson og Lilja Björk Einars­dóttir, bankastjórar Arion, Íslandsbanka og Landsbankans, skjálfi á beinunum um þessar mundir auk þeirra tugþúsunda sem eiga hlutabréf í bönkunum þremur. Páll ­Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins hefur boðað að hann ætli að fylgjast sérstaklega með úttekt norska samkeppniseftirlitsins á þarlendum bönkum, en á þeim bæ þykir mönnum hreyfanleiki viðskiptavina banka vera fulllítill. Því er ekki að skipta hér á landi, en samkvæmt könnun sem Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu gerði fyrir nokkru er hreyfanleiki viðskiptavina íslenskra banka sá mesti sem þekkist í Evrópu. Það breytir engu fyrir Pál Gunnar og hans fólk, en Ríkisútvarpið hefur eftir honum að þrátt fyrir að hagræðingaraðgerðir hafi skilað lægra kostnaðarhlutfalli á undanförnum árum hafi það ekki skilað sér í lægri vaxtamun. Hrafnarnir minna á að vaxtamunur í bankarekstri er sveiflukenndur og almennt séð eykst hann þegar stýrivextir fara hækkandi og lækkar þegar seðlabankar lækka stýrivexti. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 3. júní 2026.

Share this article