Innlent | Morgunblaðið | 7.6.2026 | 16:20 Björg í bú í Skoruvíkurbjörgum Kristinn Lárusson, Kiddi, hér á leið niður bjargið í öruggri festi. Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Setja bókamerki Bjargfuglseggin þykja mikið lostæti en það er ekki á allra færi að bera sig eftir þeirri björg og alls ekki fyrir þá sem þjást af lofthræðslu. Áður fyrr var eggjatekja á vorin mikil búbót og nýmetið kærkomið eftir oft einhæft fæði á löngum vetri, eins og sjá má á þessari gömlu vísu, sem sumir telja vera eftir skáldkonuna Látra-Björgu: Mörgum manni bjargar björg, björgin hressir alla en að sækja björg í björg björgulegt er varla. Enn sækja menn björg í bú og voldug björgin á Langanesi hafa mikið aðdráttarafl. Í Skoruvíkurbjörgum fóru tveir reyndir sigmenn sl. sunnudag í síðustu eggjaferð sína þetta vorið en eggjatekja er ekki heimil eftir 31. maí. Félagarnir Kristinn Lárusson og Rúnar Þór Konráðsson eru reyndir sigmenn sem hafa farið þar í björgin í fjölda ára. Taldist þeim til að um 30 ár væru síðan þeir fóru fyrst saman á bjarg en einhver vor hafa fallið niður. Frá Skoruvíkurbjargi á Langanesi. mbl.is/Líney Kalt var í veðri, sex stiga hiti með þokusudda og sleipt í björgunum eftir slyddu og rigningu síðustu daga. Sigmenn létu það ekki á sig fá en á eggjatímanum er farið á þriggja daga fresti. Fengurinn var sæmilegur þennan síðasta dag, bæði svartfuglsegg og eitthvað af skeglueggjum en þau eru langbest og lík kríueggjum en aðeins stærri. Skeglan er víða nefnd rita en aldrei annað en skegla hér um slóðir. „Við sjáum aukningu í skegluvarpinu eftir hrunið sem varð í ætisleysinu fyrir nokkrum árum,“ sögðu þeir Rúnar og Kiddi en þeir fá þó aldrei það mikið af skeglueggjum að þeir séu aflögufærir. Þeir stunda bjargsig aðallega upp á sportið og hafa komið sér upp traustum búnaði og góðum talstöðvum. Bera virðingu fyrir björgunum „Við vorum kærulausari með þetta áður, talstöðvarnar duttu oft út og sigbúnaður var ekki eins traustur. En það þarf að bera virðingu fyrir björgunum, þetta er ekki hættulaust sport,“ sögðu þeir og nefndu einnig hve mikilvægt það er að vera með traustum félaga og þekkja vinnulag hvor annars. Þeir skiptast á að síga og að vera í bílnum og stjórna sigkaðlinum sem í hann er festur. Þeir þekkja líka varasama staði en sums staðar er rof og los komið á stóra steina uppi í bjarginu, þar er ekki farið niður. Ekki má heldur ganga of nærri fuglinum, heldur hætta á meðan varp er enn í gangi svo fuglinn nái að koma upp ungum. Ljúffeng svartfuglseggin eru nú komin í allmargar verslanir og eru hverrar krónu virði, ekki síst þegar litið er til áhættunnar sem fylgir öflun þessarar kostafæðu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Verðandi leikmaður United kallaður á HM "Serious injury nearly derailed Bubbi’s 70th birthday shows" Mette-Marit heimsótti son sinn í fangelsi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Enski markvörðurinn eftirsóttur Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Frankie sem fór ekki til Hollywood Áhrif á heilann koma seint í ljós Rómantík á póstkortum Ástæða til að hafa áhyggjur Mest lesið Í gær Í vikunni Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Boðar fyrirsvarsmenn til fundar Stjórnvöld vakta ferðir rússnesks herskips Skrifum aldrei pulsa með ypsiloni Æfir yfir banni Náttúruverndarstofnunar Fimm kærur borist vegna kaffistofu Samhjálpar Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Margir vilja Bubba-miða og streymið er vinsælt Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Nýjast á mbl.is » Verðandi leikmaður United kallaður á HM "Serious injury nearly derailed Bubbi’s 70th birthday shows" Mette-Marit heimsótti son sinn í fangelsi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Enski markvörðurinn eftirsóttur Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ástæða til að hafa áhyggjur Áhrif á heilann koma seint í ljós Stjórnvöld vakta ferðir rússnesks herskips Enn langt frá nákvæmni í eldgosaspám Mest lesið Í gær Í vikunni Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Boðar fyrirsvarsmenn til fundar Stjórnvöld vakta ferðir rússnesks herskips Skrifum aldrei pulsa með ypsiloni Æfir yfir banni Náttúruverndarstofnunar Fimm kærur borist vegna kaffistofu Samhjálpar Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Margir vilja Bubba-miða og streymið er vinsælt Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun