Verkefnin sem starfsfólk EFLU tekst á við víða um heim eru af margvíslegum toga. Sum þeirra eru ný af nálinni, önnur hefðbundnari og loks eru það þau sem hafa þróast síðustu ár, eins og verkefni sem snúa að gagnaverum, landeldi og baðlónum. Spurð hvort áskoranir felist í nýjum verkefnum segir Kristín Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri EFLU, að þau snúist öll í raun um aðlögunarhæfni. „Oft er grunnurinn sá sami en að sjálfsögðu erum við sífellt að taka að okkur verkefni sem krefjast skapandi hugsunar, nýrra leiða og að við hugsum út fyrir kassann. Þannig viðum við að okkur nýrri þekkingu og dýpkum um leið þann þekkingargrunn sem hér er fyrir hendi. Starfsfólk okkar er óhrætt við ný verkefni, enda leiða þau alltaf til nýrra og spennandi leiða og tækifæra sem gera okkur enn betur kleift að takast á við framtíðarverkefni.“ Undanfarið hefur öryggi innviða sömuleiðis verið í brennidepli, sérstaklega erlendis og ekki síst á tímum spennu og átaka. „Ég tel að við Íslendingar þurfum líka að huga að áfallaþoli innviða okkar, þetta hefur verið í umræðunni og ég trúi að við munum taka það fastari tökum en við höfum þegar gert,“ segir Kristín. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild hér .