Innlent | mbl | 7.6.2026 | 22:12 „Tekur tíma fyrir hausinn að gleyma sársaukanum“ Mafalda tekur hlaupunum ekki of alvarlega og heldur sér í góðu formi sjálf. Ljósmynd/Mummi Lú Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Mafalda Sigmarsson kom fyrst kvenna í mark í 106 kílómetra hlaupi Hengils Ultra um helgina á tímanum 19:59:07. Mafalda er portúgölsk og hefur búið á Íslandi síðastliðin 6 ár en hún á íslenskan eiginmann og saman eiga þau tvo syni. Í samtali við blaðamann segir Mafalda að hún hafi byrjað að hlaupa í upphafi árs 2024 eftir að hafa fengið þá hugmynd að taka þátt í Lissabon-maraþoninu síðar sama ár. Mafalda segir að hún hafi verið í góðu skapi og liðið vel allt hlaupið. Ljósmynd/Mummi Lú „Hlaupaheimurinn er einstakur“ „Ég hitti konu á ferðalagi sem sagði mér að hún hefði verið að ljúka við Járnkarlinn (e. Iron Man), þá sjötíu ára gömul. Ég hugsaði með mér „vá, ég get ekki hlaupið tvo metra“ og þá ákvað ég að skrá mig í heilt maraþon,“ segir Mafalda og gaf sér þar með 8 mánaða undirbúningstíma. „Ég var ekki vel undirbúin og ég kláraði hlaupið á fjórum og hálfum klukkutíma. En ég bara elskaði hlaupasamfélagið. Allir eru að hvetja þig áfram og hlaupa saman. Ég áttaði mig á því að hlaupaheimurinn er einstakur og það gerði mig mjög spennta fyrir því að halda áfram að hlaupa,“ segir Mafalda í samtali við blaðamann. Fylgdi prógrammi frá ChatGPT Mafalda er ekki með neinn þjálfara og fylgir engu sérstöku prógrammi. „Hlaupin eru mikilvægur partur af deginum mínum en ég er í fullri vinnu og mamma tveggja stráka. Ég reyni bara að halda mér í góðu formi sjálf og tek þessu ekki of alvarlega,“ segir Mafalda. Hún segist vera dugleg að setja sér markmið en tíu mánuðum eftir Lissabon-maraþonið tók hún þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og bað gervigreindina um að gera hlaupaprógram fyrir sig í undirbúningnum. „Ég kláraði Reykjavíkurmaraþonið og bætti gamla maraþontímann minn um 90 mínútur á 10 mánuðum. Það er einmitt það sem ég elska við hlaupin, þú getur alltaf bætt þig.“ Mafalda segir að hún hafi verið í hrikalega góðu skapi og liðið vel allt hlaupið. Ljósmynd/Mummi Lú Hausinn spilar stærsta hlutverkið Hversu stórt hlutverk spilar hausinn í þessum hlaupum? „Stærsta hlutverkið. Í Reykjavíkurmaraþoninu lenti ég á vegg á kílómeter 38. Ég hringdi í manninn minn og sagði honum að ég væri hætt og að ég ætlaði að labba heim, að ég gæti þetta ekki. Þá sagði hann við mig að ég væri ég áttunda sæti af öllum keppendum og í fjórða sæti í kvennaflokki,” segir Mafalda og bætir við að upplýsingarnar hafi gefið henni aukna orku. „Ég hljóp þá restina á 4:30 mínútna pace-i. Líkaminn var alveg með þetta en hausinn var að stríða mér.” Mafalda segir sér hafa liðið mjög vel í hlaupinu um helgina og að hún hafi aldrei lent á vegg eins og gerðist í Reykjavíkurmaraþoninu. „Ég var í ofboðslega góðu skapi allan tímann. Ég get ekki útskýrt af hverju. Ég er portúgölsk og fýla ekki vont veður og ég var að berjast í gegnum lárétt hagl í brautinni og ég bara hló. Mér leið bara vel,“ segir Mafalda, sjálf svolítið hissa. Aðspurð segist hún ekki hafa lent í vandræðum með að koma niður drykk og mat. „Ég nálgaðist þetta eins og matarhátíð, ég reyndi stöðugt að borða. Það var eitt augnablik þar sem mér var smá óglatt, í kringum kílómeter 90, en ég bara hægði smá á mér og það blessaðist.“ Ertu með einhver önnur hlaupamarkmið fyrir sumarið? „Núna vil ég bæta tímann minn í styttri vegalengdum, ná hraðari 5 og 10 kílómetrum og svo hraðara maraþoni. Þetta hlaup um helgina var mjög skemmtilegt en þetta var mikil vinna,“ segir Mafalda og hlær. Hún segist ekki sjá fyrir sér að taka þátt í öðru svona löngu hlaupi í bráð. „En gefum þessu nokkra daga. Þegar hjúkrunarfræðingur spurði mig hvort ég ætlaði að eignast annað barn rétt eftir að ég var búin að fæða eldri strákinn minn sagði ég „ekki séns“ en núna á ég tvo stráka. Það tekur smá tíma fyrir heilann að gleyma sársaukanum,“ segir Mafalda, enn hlægjandi að lokum. Frétt af mbl.is Mafalda Sigmarsson kom fyrst kvenna í mark Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bjórrisarnir undirbúa sig fyrir blautasta HM sögunnar Ollu mannskæðri sprengingu Ekkert krabbamein tilefni fleiri nýrra lyfja Sjómenn heiðraðir um allt land „Tekur tíma fyrir hausinn að gleyma sársaukanum“ Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áhrif á heilann koma seint í ljós Rómantík á póstkortum Stjórnvöld vakta ferðir rússnesks herskips Frankie sem fór ekki til Hollywood Mest lesið Í gær Í vikunni Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Boðar fyrirsvarsmenn til fundar Fimm kærur borist vegna kaffistofu Samhjálpar 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Margir vilja Bubba-miða og streymið er vinsælt Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Nýjast á mbl.is » Bjórrisarnir undirbúa sig fyrir blautasta HM sögunnar Ollu mannskæðri sprengingu Ekkert krabbamein tilefni fleiri nýrra lyfja Sjómenn heiðraðir um allt land „Tekur tíma fyrir hausinn að gleyma sársaukanum“ Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bústaðurinn endurnýjaður fyrir hundruð milljóna Skýrslan sýni ókosti krónunnar Sóttu ferðalanga inn á Mælifellssand Kaflaskil hjá bardagakind Mest lesið Í gær Í vikunni Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Boðar fyrirsvarsmenn til fundar Fimm kærur borist vegna kaffistofu Samhjálpar 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Margir vilja Bubba-miða og streymið er vinsælt Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun