Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vara við veikleikum í orkuöryggi á Norðurlöndum

  • What: Report highlights energy security risks in Northern countries
  • Impact: Calls for improved cooperation to strengthen energy resilience
Read Full Article →

Erlent | mbl | 8.6.2026 | 8:02 Vara við veikleikum í orkuöryggi á Norðurlöndum Karen Elleman. Ljósmynd/Jens Honoré/norden.org Setja bókamerki Ný skýrsla frá Norrænu ráðherranefndinni og Nordisk Energiforskning varar við því að norræna orkukerfið sé viðkvæmt fyrir netárásum, skemmdarverkum og truflunum á mikilvægum innviðum. Í skýrslunni eru settar fram 25 tillögur um hvernig löndin geta unnið saman að því að styrkja orkuöryggi. „Norðurlöndin búa yfir traustu orkukerfi og margra ára reynslu af samstarfi sem byggir á trausti. Nú verðum við að stíga næsta skref til að styrkja sameiginlegt orkuöryggi okkar. Nánara samstarf á sviði orkumála mun styrkja viðnámsþrótt okkar og grænu umskiptin,” segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, í tilkynningu. Skýrslan var unnin af Economic Security Forum fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar og Nordisk Energiforskning. Fram kemur í tilkynningunni að skýrslan undirstriki sérstaklega þörfina fyrir betri vernd mikilvægra orkuinnviða, þolmeiri birgðakeðjur og aukinn aðgang að mikilvægum íhlutum. Meðal tillagna er að norrænu ríkin skuli: þróa sameiginlegar stefnumótandi áherslur varðandi orkuöryggi styrkja vernd mikilvægra innviða bæta samhæfingu við tengingu stórra nýrra raforkunotenda styrkja viðbragðsáætlanir og birgðir af mikilvægum íhlutum Leggja meiri stefnumótandi áherslu á Norðurslóðir og Norður-Atlantshafssvæðið Einnig er gert ráð fyrir að eftirspurn eftir raforku aukist verulega á komandi árum þar sem iðnaðurinn gengur í gegnum umbreytingu og ný orkufrek fyrirtæki festa sig í sessi á Norðurlöndum. Áframhaldandi uppbygging endurnýjanlegrar orkuframleiðslu er talin lykilforsenda sjálfbærrar þróunar og viðnámsþróttar svæðisins til lengri tíma. Í skýrslunni er lögð áhersla á nánara norrænt samstarf sem lykilþátt í að efla sameiginlegan viðbúnað gagnvart framtíðarkrísum og öryggisógnum. „Norrænu ríkin eru nátengd og háð orkukerfum hvers annars. Saman erum við sterk, en við þurfum að bæta hæfni okkar til að takast sameiginlega á við áskoranir á viðsjárverðum tímum til að verða enn sterkari,” segir Klaus Skytte, forstjóri Nordisk Energiforskning, í tilkynningunni. Tillögur fyrir Ísland í skýrslunni má finna hér. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vara við veikleikum í orkuöryggi á Norðurlöndum Viktor Gísli spænskur bikarmeistari Varð orðlaus þegar hún sá svefnrýmið um borð Sex særðust í hnífaárás í New York Eftirlýstur hrækti í andlitið á tveimur Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Með brjóstvitið að leiðarljósi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lausnin flóknari en gjaldmiðlaskipti Óþekkt áhrif á varnarsamstarf Maðurinn sem boðaði breytingar en villtist af leið Mikilvægustu hagstjórnartækin Mest lesið Í gær Í vikunni Hafna kröfum foreldra um minni skjátíma Trump: „Ég ætla að hringja í Bibi núna“ Árásir Ísraela og Írana héldu áfram í nótt Bjórrisarnir búa sig undir blautasta HM sögunnar Trump strunsaði út úr viðtali Námsmaður fannst látinn í Japan 15 látnir eftir kröftugan skjálfta á Filippseyjum Ísraelsmenn segja Íran hafa gert „alvarleg mistök“ Mette-Marit heimsótti son sinn í fangelsi Ummæli Vance stuða bresk stjórnvöld Námsmaður fannst látinn í Japan Mette-Marit heimsótti son sinn í fangelsi Trump strunsaði út úr viðtali Unglingur lést eftir að kanó hvolfdi „Einstaklega viðbjóðsleg árás“ Trump: „Ég ætla að hringja í Bibi núna“ Ummæli Vance stuða bresk stjórnvöld „Hlutirnir munu aðeins versna fyrir Rússland“ Leit hafin að grunuðum eftir að 12 voru skotnir „Þetta er sannkallað kraftaverk“ Mette-Marit ágerist sóttin: Hákon heim frá Japan Námsmaður fannst látinn í Japan Ástand Mette-Maritar lífshættulegt Játar sök eftir árás á konu með barnavagn Fannst á lífi eftir að hafa verið saknað á Everest í sex daga Bresk hjón áfram í fangelsi í Íran Handjárnuðu dreng í lífshættu: „Ég get ekki andað“ Mette-Marit heimsótti son sinn í fangelsi „Ég mun ekki sitja hér grátandi“ Regnbogafáninn niður – „heigulsháttur“ Nýjast á mbl.is » Vara við veikleikum í orkuöryggi á Norðurlöndum Viktor Gísli spænskur bikarmeistari Varð orðlaus þegar hún sá svefnrýmið um borð Sex særðust í hnífaárás í New York Eftirlýstur hrækti í andlitið á tveimur Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Með brjóstvitið að leiðarljósi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rússar reyni að átta sig á samstarfi bandamanna Sóttu ferðalanga inn á Mælifellssand Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Stjórnvöld vakta ferðir rússnesks herskips Mest lesið Í gær Í vikunni Hafna kröfum foreldra um minni skjátíma Trump: „Ég ætla að hringja í Bibi núna“ Árásir Ísraela og Írana héldu áfram í nótt Bjórrisarnir búa sig undir blautasta HM sögunnar Trump strunsaði út úr viðtali Námsmaður fannst látinn í Japan 15 látnir eftir kröftugan skjálfta á Filippseyjum Ísraelsmenn segja Íran hafa gert „alvarleg mistök“ Mette-Marit heimsótti son sinn í fangelsi Ummæli Vance stuða bresk stjórnvöld Námsmaður fannst látinn í Japan Mette-Marit heimsótti son sinn í fangelsi Trump strunsaði út úr viðtali Unglingur lést eftir að kanó hvolfdi „Einstaklega viðbjóðsleg árás“ Trump: „Ég ætla að hringja í Bibi núna“ Ummæli Vance stuða bresk stjórnvöld „Hlutirnir munu aðeins versna fyrir Rússland“ Leit hafin að grunuðum eftir að 12 voru skotnir „Þetta er sannkallað kraftaverk“ Mette-Marit ágerist sóttin: Hákon heim frá Japan Námsmaður fannst látinn í Japan Ástand Mette-Maritar lífshættulegt Játar sök eftir árás á konu með barnavagn Fannst á lífi eftir að hafa verið saknað á Everest í sex daga Bresk hjón áfram í fangelsi í Íran Handjárnuðu dreng í lífshættu: „Ég get ekki andað“ Mette-Marit heimsótti son sinn í fangelsi „Ég mun ekki sitja hér grátandi“ Regnbogafáninn niður – „heigulsháttur“

Share this article