Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

100 skólar lokaðir vegna bjarnar á vappi

  • What: A bear was spotted in a Japanese city, leading to school closures
  • Impact: 100 schools closed in Utsunomiya
Read Full Article →

Skólastarf í nær 100 skólum í borginni Utsunomiya í Japan var fellt niður í dag vegna skógarbjörns sem sást á vappi um götur. Hann hefur verið á ferli í þrjá daga. Borgin er í um 100 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Tókýó. Tugir veiðimanna og lögreglumanna leita bjarnarins. AFP fréttaveitan hefur eftir embættismanni í borginni að ekki sé vitað með vissu hvort björninn sé einn á ferð. Hann er talinn um einn metri að lengd og hefur sést víða um borgina, svo sem í íbúðahverfi, við verslunarmiðstöð, í almenningsgarði og við skóla. Árásum bjarna á menn í þéttbýli í Japan hefur fjölgað síðustu ár. Birnir drápu 13 manns í fyrra. Viðvörunarskilti í Japan vegna bjarna á ferli. Myndin er úr safni og tengist ekki leitinni i Utsunomiya.EPA / FRANCK ROBICHON

Share this article