Innlent | mbl | 8.6.2026 | 10:45 | Uppfært 11:28 „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins mbl.is/Karítas Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ Upptaka evru „engin töfralausn“ Miklar breytingar á forystusveitinni Verði vonandi sjaldan vistuð í brottfararstöð „Verið að lofa jarðgöngum út um allar trissur“ » Fleiri tengdar fréttir Þrefingar eru hafnar á milli formanna þingflokka enda ætti þessi vika sem nú er gengin í garð að vera sú seinasta áður en þingið fer í sumarfrí, en ekki er alltaf hægt að stóla á að starfsáætlun haldi. Fundur er fyrirhugaður í dag og telja Ólafur Adolfsson og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins að framhaldið ætti að einhverju leyti að skýrast í dag. Þinglok í fyrra gengu sannarlega ekki smurt fyrir sig en þingið teygði sig þá alla leið inn í miðjan júlí. Var þar að mestu leyti um að kenna umræðum um veiðigjöld en umræðan var sú lengsta í sögu þingsins og lauk loks þegar Þórunn Sveinbjarnardóttir þingforseti beitti 71. grein þingskapalaganna og lauk umræðunni. Frétt af mbl.is Þinglok staðfest Brugðið getur til beggja vona Þingflokksformenn funduðu fyrir helgi og leyfir Stefán Vagn sér að vera bjartsýnn um framhaldið. „Þetta er aldrei einfalt en eigum við ekki bara að vera bjartsýn. Ég þori samt engu að lofa í þessu, það eru mörg mjög stór mál sem þarf að vanda betur til verka í. Við skulum sjá hvernig þetta þróast í dag,“ segir framsóknarmaðurinn sem vill þó ekki tjá sig sérstaklega um það hvaða mál hafi valdið mestum ágreiningi í viðræðum þingflokksformanna. Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknar. mbl.is/Eyþór Ólafur telur að brugðið geti til beggja vona í viðræðum en þetta snúist núna um það að menn séu raunsæir. „Við verðum að hafa smá væntingastjórnun í þessu. Auðvitað er hægt að rusla hér öllu í gegn en það er ekki skynsamlegt. Það fækkar alltaf málunum sem fá brautargengi eftir því sem við erum lengur að semja og það er ekki endilega hagur stjórnarandstöðunnar að það dragist á langinn. Það eru þarna inni mál sem skipta alla máli.“ Allir lært af seinasta sumri Á Ólafur síður en svo von á því að viðræðurnar dragist jafn mikið á langinn og í fyrra. Þetta er í fyrsta sinn sem Ólafur gegnir stöðu þingflokksformanns við þinglok. „Ég ætla rétt að vona að þetta dragist ekki jafn mikið á langinn. Ef það gerist þá lýsi ég því hreinlega yfir að við séum ófær um þetta. Ég held það hafi allir lært af þessu í fyrra. Ég vona svo sannarlega að við förum ekki á þann vagn að nýju. Ég ætla að leyfa mér að efast um að það sé vilji nokkurs manns, það segir okkur bara að við séum ekki að ná að leysa þetta verkefni,“ segir Ólafur. Tengdar fréttir Alþingi Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ Upptaka evru „engin töfralausn“ Miklar breytingar á forystusveitinni Verði vonandi sjaldan vistuð í brottfararstöð „Verið að lofa jarðgöngum út um allar trissur“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Munu ekki selja Frakkann Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Átti erfitt með að nálgast þrítugt Leyndarmálið á bakvið glóandi húð og betri svefn Húsið á sléttunni mætir aftur Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Með brjóstvitið að leiðarljósi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bjórrisarnir búa sig undir blautasta HM sögunnar Hafna kröfum foreldra um minni skjátíma Segja Bandaríkin bera ábyrgð á átökum Rússar reyni að átta sig á samstarfi bandamanna Mest lesið Í gær Í vikunni Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Ekkert krabbamein tilefni fleiri nýrra lyfja „Tekur tíma fyrir hausinn að gleyma sársaukanum“ Eftirlýstur hrækti í andlitið á tveimur Drengurinn er fundinn Settu met í sætanýtingu í maí Bubbi sleit liðband Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Drengurinn er fundinn Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Bubbi sleit liðband Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Nýjast á mbl.is » Munu ekki selja Frakkann Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Átti erfitt með að nálgast þrítugt Leyndarmálið á bakvið glóandi húð og betri svefn Húsið á sléttunni mætir aftur Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Með brjóstvitið að leiðarljósi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun Mikilvægustu hagstjórnartækin Lausnin flóknari en gjaldmiðlaskipti Bústaðurinn endurnýjaður fyrir hundruð milljóna Mest lesið Í gær Í vikunni Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Ekkert krabbamein tilefni fleiri nýrra lyfja „Tekur tíma fyrir hausinn að gleyma sársaukanum“ Eftirlýstur hrækti í andlitið á tveimur Drengurinn er fundinn Settu met í sætanýtingu í maí Bubbi sleit liðband Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Drengurinn er fundinn Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Bubbi sleit liðband Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði