Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Fræst á Bíldudalsvegi

  • What: Road repairs on Bíldudalsvegi
  • Impact: Road work affecting traffic
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fræst á Bíldu­dals­vegi Þorgils Jónsson Vegagerðin Vegagerðin er að hefja fræsingar á Bíldudalsvegi. Yfirborð er orðið afar slæmt og verður tekið af, samkvæmt tilkynningu. Á morgun opnar Vegagerðin svo tilboð í endurbyggingu um fjögurra kílómetra kafla á veginum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Vilja að hætt verði við lokun hjúkr­un­ar­heim­il­is á Sel­fossi Dætur hjóna sem búa á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Selfossi hafa áhyggjur af fyrirhugaðri lokun heimilisins á næsta ári. Þær segja algjöra óvissu um framhaldið og vilja að hætt verði við áformin. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Fá­gæt­ur safn­kost­ur á Minja­safn­inu Minjasafninu á Akueyri hefur áskotnast sjaldgæft safn Íslandskorta - þökk sé þýskum safnara sem tók ástfóstri við landið. Hann fagnaði áttræðisafmælinu í dag með því að afhenda síðasta gripinn í safninu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Hér­aðs­dóm­ur Óslóar vill leysa Høiby úr gæslu­varð­haldi Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, óskaði eftir því að vera látinn laus úr gæsluvarðhaldi til að vera með móður sinni sem er alvarlega veik. Héraðsdómur úrskurðaði að hann yrði látinn laus en saksóknari áfrýjaði. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Skemmd­ir unnar á frið­uð­um forn­leif­um Reist hafa verið mannvirki í friðuðum fornleifum í landi Óttarstaða og unnar á þeim skemmdir. Brotin eru alvarleg að mati Hafnarfjarðarbæjar og Minjastofnunar og hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Vil­hjálm­ur Árna­son lætur af þing­mennsku Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Vilhjálmur Árnason þingmaður gerði forseta Alþingis grein fyrir afsögn sinni í dag. Hann greindi frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni í dag. RÚV / Ragnar Visage Vilhjálmur hóf störf sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar 2. júní. Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins var myndaður í Reykjanesbæ eftir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Hann hefur verið þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi frá árinu 2013 og var jafnframt varaformaður þingflokksins. „Ég hlakka til næstu ára þar sem ég fæ loksins að starfa í heimabyggð og vera nær Sigurlaugu og strákunum okkar,“ segir Vilhjálmur í færslunni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Tveggja ára fang­els­is­dóm­ur fyrir um­ferð­ar­laga­brot Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í tveggja ára fangelsi og áréttað ævilanga ökuréttarsviptingu hans frá árinu 2007. Maðurinn hefur ítrekað brotið umferðarlög, keyrt án ökuréttar og undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hvert til­felli mæðra­dauða vegur afar þungt Tíðni mæðradauða á Íslandi hefur hrapað undanfarna áratugi. Hvert tilfelli vegur þó afar þungt, segir fæðingarlæknir á Landspítala. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Gat ekki höfðað skaða­bóta­mál gegn SAS á Ís­landi Tvö skaðabótamál Ómars R Valdimarssonar lögmanns vegna flugferða SAS var vísað frá dómi í síðustu viku. Þetta var vegna þess að flugferðirnar voru ekki til né frá Íslandi og félagið ekki með lögheimili né starfsstöð hér. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Taíland Sindri Freyr í haldi í Taílandi – „Við fáum engar upp­lýs­ing­ar um hvern­ig honum líður“ Sindri Freyr Jensson varð viðskila við bróður sinn í Taílandi 23. maí og fjölskylda hans hefur nú fengið staðfest að hann sé í innflytjendafangelsi í Bangkok. Systir hans segir hörmulegt að fá engar upplýsingar um líðan hans. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ofbeldi Færri til­kynn­ing­ar um kyn­ferð­is­brot en fleiri um of­beldi Tilkynningar um kynferðisbrot hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru töluvert færri í maí en í apríl en heildarfjöldi það sem af er ári er svipaður og undanfarin ár. Ofbeldisbrotum fjölgaði milli mánaða en alvarlegar líkamsárásir voru færri. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Elkem dregur tíma­bund­ið úr fram­leiðslu Elkem á Íslandi hefur ákveðið að slökkva á einum af þremur ofnum í járnblendingsverksmiðju félagsins í sumar. Stilla þarf framleiðslu af vegna tolla Evrópusambandsins. Aðgerðin mun ekki hafa áhrif á starfsfólk. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Frakk­ar fara yfir 70.000 mál tengd brotum á börnum Dómsmálaráðherra Frakklands hefur falið saksóknurum landsins að fara yfir 70.000 mál tengd kynferðisbrotum á börnum sem tilkynnt hefur verið um síðustu ár. Hvatinn er morð á ungri stúlku á dögunum. Hinn grunaði hafði verið tilkynntur til lögreglu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Stór hlut­hafi í Kviku segir tíma­setn­ingu arð­greiðslu sam­hliða upp­sögn­um afar óheppi­lega Tveir af stærstu hluthöfum Kviku úr hópi lífeyrissjóða svara spurningum um uppsagnir og arðgreiðslu bankans. Lífeyrissjóðir eiga nærri helming hlutafjár í Kviku og eru sjö sjóðir í hópi tíu stærstu hluthafa. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarðabyggð Sér­sveit­in kölluð til á Eski­firði – Einn hand­tek­inn Einn var handtekinn í heimahúsi á Eskifirði í dag. Ekki liggur fyrir hvað viðkomandi er grunaður um. Lögreglan á Austurlandi óskaði eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Netöryggi Komst í gögn um starfs­fólk Land­spít­ala Upplýsingar úr starfsánægjukönnun meðal starfsfólks Landspítala komust í hendur utanaðkomandi aðila nýlega. Málið er á borði Persónuverndar og CERT-IS. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál „Svona breyt­ing­ar leiða yf­ir­leitt til þess að það er verið að fækka störf­um“ Fomaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra telur fyrirhugaðra fækkun lögregluembætta á landinu vera þjónustuskerðingu við landshlutann, þar sem opinberu störfum fækkar sífellt. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Ög­mund­ur í raðir Vík­ings Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Ögmundur er genginn í raðir Víkings. Víkingur Víkingur hefur samið við markvörðinn Ögmund Kristinsson út árið. Félagaskiptaglugginn er lokaður, en vegna veikinda og meiðsla hjá markvörðum Víkings fékk félagið undanþágu til að sækja Ögmund á frjálsri sölu eftir að Valur rifti samningi sínum við hann í síðustu viku. Ögmundur sem er fæddur árið 1989 á að baki 19 landsleiki fyrir Ísland. Hann lék um árabil sem atvinnumaður erlendis en hafði leikið með Fram og Val á Íslandi. Við sama tækifæri framlengdi Víkingur samning sinn við Ingvar Jónsson markvörð út árið 2027, en Ingvar er nú í krabbameinsmeðferð. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Gyða Val­týs­dótt­ir á plötu vik­unn­ar Mother Pearl Mother Pearl eftir Gyðu Valtýsdóttur er plata vikunnar á Rás 2. Hún kom út 20. mars á vegum Marvaða og er sjötta plata Gyðu, tvær þeirra eru við kvikmyndir. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lausir úr haldi á Ak­ur­eyri Siguróli Magni Sigurðsson Varðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra staðfesti við fréttastofu í dag að þeir tveir sem hefðu verið handteknir í sameiginlegri aðgerð Lögreglunnar á Norðurlandi eystra og sérsveitar ríkislögreglustjóra á föstudagskvöldið væru lausir úr haldi. Fólkið var handtekið í miðbænum á Akureyri, skammt frá Bifreiðastöð Oddeyrar, BSO. Fólkinu var sleppt um helgina að loknum yfirheyrslum og ekki var gerð krafa um gæsluvarðhald yfir þeim. Að sögn varðstjóra gengur rannsóknin á málinu vel og er lögreglan komin með góða mynd af málavöxtum. Þrjár handtökur á Akureyri í gærkvöld og nótt Lögreglustöðin á Akureyri RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Tjón nemur 100 millj­ón­um króna og elds­upp­tök eru ókunn Timburhakkari Sorpu á Álfsnesi brann til kaldra kola í dag. Tjónið er um 100 milljónir króna. Eldsupptök eru ókunn. Sviðsstjóri Sorpu segir athyglisvert að vélin var ekki í gangi þegar eldurinn kviknaði. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Filippseyjar Fleiri fórust í jarð­skjálfta en áður var talið Dagný Hulda Erlendsdóttir Þrjátíu og tveir, hið minnsta, fórust á Filippseyjum í morgun þegar öflugur jarðskjálfti reið yfir. Þá er talið að yfir 200 manns hafi slasast. Nokkurra er enn saknað. Skjálftinn var 7,8 að stærð. Hann reið yfir eyjuna Mindanao og olli flóðbylgju sem var einn metri að hæð. Áður hafði verið tilkynnt að 15 hefðu látist. Varað hefur verið við eftirskjálftum og er fólk hvatt til að bíða með að snúa aftur í hús sem skemmdust í skjálftanum. Hús í borginni General Santos sem hrundi í skjálftanum í morgun. AP / Uncredited Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Ald­urs­tak­mark á raf­hlaupa­hjól „sett af ástæðu“ en ekki virt að fullu Sjö börn undir 13 ára aldri slösuðust á rafhlaupahjólum á síðasta ári, þar af þrjú alvarlega. Lögreglan brýnir fyrir foreldrum að kynna sér og virða reglur um notkun hjólanna. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Perú Mjótt á munum í for­seta­kosn­ing­um og óljóst hvor hafði betur Svo mjótt er á munum milli frambjóðenda til forseta Perú í fyrstu tölum og útgönguspám að ekkert er vitað um hvort þeirra verður næsti forseti. Búist er við að nokkrir dagar séu þar til talningu lýkur. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturland Raf­magn­ið tekið af Snæ­fells­nesi og Borg­ar­firði í tvo tíma Brynjólfur Þór Guðmundsson Rafmagnslaust verður á öllu Snæfellsnesi og í Borgarfirði í tvær klukkustundir aðfaranótt fimmtudags. Starfsmenn Landsnets ráðast þá í viðhald á tengivirki við sameiginlega aðveitustöð Landsnets og Rariks á Vatnshömrum. Vinna hefst klukkan tíu mínútur yfir tólf á miðnætti og er gert ráð fyrir að hún standi í tvær klukkustundir. Í tilkynningu Rariks um viðgerðina eru viðskiptavinir beðnir um að gera viðeigandi ráðstafanir vegna yfirvofandi rafmagnsleysis um leið og þeir eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem það kann að valda. Rafmagnslaust verður í um tvær klukkustundir upp úr miðnætti aðfaranótt fimmtudags. Rarik Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Mik­il­vægt að gefa öndum ekki brauð svo mávar éti ekki unga Iðunn Andrésdóttir Varptíminn er í hámarki við Reykjavíkurtjörn og fyrstu ungarnir að koma úr eggjum. Því er mikilvægt að hætta brauðgjöfum við Tjörnina. Þetta kemur fram á vef

Share this article