Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Samtal um ESB hefst af fullum þunga

Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 8.6.2026 | 14:30 Samtal um ESB hefst af fullum þunga Tillaga stjórnarliða um að ákvörðun um aðildaviðræður við ESB verði lagðar í hendur þjóðarinnar var samþykkt fyrir skemmstu og mun atkvæðagreiðslan fara fram í lok ágúst. Morgunblaðið/Anton Brink Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segist vona að efasemdamenn um ágæti þess að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu svari sínum efasemdum með því að samþykkja að fara í samningaviðræður. Þetta er meðal þess sem kom fram í viðtali við ráðherra sem birt var í sérblaði 200 mílna um helgina. Hanna Katrín hefur látið til sín taka síðan hún tók við embætti og þau hafa ekki verið smá í sniðum, málin sem farið hafa í gegnum atvinnuvegaráðuneytið í hennar ráðherratíð. Það stærsta var vafalaust frumvarp um veiðigjöld sem vakti háværar og langdregnar umræður á Alþingi, en frumvarpið varð að lögum og tók gildi um áramótin. Frétt af mbl.is Íslandsmet slegið á Alþingi Fleiri frumvörp eru þegar í farvatninu sem miða að stórum breytingum þótt ekki fari þau alveg jafn hátt í umræðunni og veiðigjaldafrumvarpið, en þar má nefna frumvarp um breytingar á stjórnun Hafrannsóknastofnunar og stórt lagareldisfrumvarp Enginn afsláttur gefinn Sé horft fram á veginn er næsta stóra mál þó vafalaust mögulegar aðildaviðræður við Evrópusambandið og má nánast slá því föstu nú þegar að þófið þar um verði enginn eftirbátur veiðigjaldaumræðunnar. Mörgum stórum spurningum um áhrif aðildar á sjávarútveg er enn ósvarað, ekki síst hvað varðar yfirráð Íslands yfir auðlindinni. Hanna Katrín segist ákveðin í að þar verði enginn afsláttur gefinn. „Það liggur fyrir að utanríkisráðherra, forsætisráðherra og aðrir hafa lýst því yfir að yfirráð okkar yfir sjávarauðlindinni verði lögð þar undir,“ segir Hanna Katrín. „Við munum ekki gefa það eftir og við höfum ítrekað sagt það.“ Hún segist vilja sjá umræðuna fara fram á grundvelli staðreynda fremur en ótta og að sérstaklega þurfi að eiga gott og opið samtal um málið við sjómenn, útgerðir og sjávarbyggðir um það hvaða áhrif aðild gæti haft. Frétt af mbl.is ESB veit að þetta er risamál fyrir Ísland Skilur efasemdir um ESB „Ég geng út frá því að nú þegar sveitarstjórnarkosningar og meirihlutaviðræður í sveitarfélögum eru að baki fari samtalið af stað af fullum þunga,“ segir hún og vísar því á bug að aðild að ESB þýði sjálfkrafa að Ísland missi stjórn á eigin auðlindum. Hún gagnrýnir þá nálgun að hafna viðræðum áður en nokkur samningur liggur á borðinu. „Ég skil alveg að það séu einhverjir sem hafi efasemdir um kosti þess að Ísland gangi í Evrópusambandið,“ bætir Hanna Katrín við. „En mikið vildi ég óska þess að menn svöruðu efasemdum sínum með því að sjá tækifærin sem í þessu felast fyrir íslenska þjóð og styðja það að við förum í samninga til þess að sjá hvað kemur út úr þeim frekar en að stoppa ferlið fyrir fram.“ Tillaga stjórnarflokkanna um að leggja í þjóðaratkvæðagreiðslu ákvörðun um það hvort hefja skuli aðildarviðræður við ESB var nýverið samþykkt á Alþingi og þjóðin mun kjósa af eða á 29. ágúst. Hvort ráðherra og stjórnarliðum takist að færa sjávarútveginum skýrari tryggingar fyrir því að greininni stafi ekki ógn af aðildarviðræðum mun tíminn einn leiða í ljós. Ítarlegra viðtal við ráðherra má lesa í sérblaði 200 mílna . Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Sjómenn heiðraðir um allt land Samtal um ESB hefst af fullum þunga Sigurvin aflvana trillu til aðstoðar „Mikill auður safnast á fárra hendur“ „Flótti frá verkefnum leysir þau ekki“ „Sjómenn eru ekki alveg sáttir“ Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Vogmær á fiskasýningu Hafró Fjölmenni í siglingu á Fáskrúðsfirði „Mikill auður safnast á fárra hendur“ „Sjómenn eru ekki alveg sáttir“ „Flótti frá verkefnum leysir þau ekki“ Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Fjölmenni í siglingu á Fáskrúðsfirði Sjómenn heiðraðir um allt land Vogmær á fiskasýningu Hafró Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Vara við tínslu kræklings úr fjörum Engin drauganet úr köngulóarsilki Brim kaupir Lýsi á lægra verði Stærsti túr Blængs á Íslandsmiðum „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Þyrla kölluð út vegna elds í fiskibáti Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Vara við tínslu kræklings úr fjörum Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Sjómenn heiðraðir um allt land „Sjómenn eru ekki alveg sáttir“ „Flótti frá verkefnum leysir þau ekki“ Fleira áhugavert „Ekkert vesen“ að manna í viku Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Árásir Ísraela og Írana héldu áfram í nótt Lausnin flóknari en gjaldmiðlaskipti Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 8.6.26 699,81 kr/kg Þorskur, slægður 8.6.26 785,66 kr/kg Ýsa, óslægð 8.6.26 839,71 kr/kg Ýsa, slægð 8.6.26 516,24 kr/kg Ufsi, óslægður 8.6.26 363,69 kr/kg Ufsi, slægður 8.6.26 502,52 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 8.6.26 285,02 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 8.6.26 Skarphéðinn SU 3 Handfæri Þorskur 778 kg Ufsi 67 kg Samtals 845 kg 8.6.26 Erla AK 52 Handfæri Þorskur 802 kg Samtals 802 kg 8.6.26 Teista AK 16 Handfæri Þorskur 485 kg Ufsi 89 kg Karfi 8 kg Steinbítur 4 kg Ýsa 2 kg Samtals 588 kg 8.6.26 Ás SH 130 Grásleppunet Grásleppa 2.104 kg Samtals 2.104 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Sjómenn heiðraðir um allt land Samtal um ESB hefst af fullum þunga Sigurvin aflvana trillu til aðstoðar „Mikill auður safnast á fárra hendur“ „Flótti frá verkefnum leysir þau ekki“ „Sjómenn eru ekki alveg sáttir“ Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Vogmær á fiskasýningu Hafró Fjölmenni í siglingu á Fáskrúðsfirði „Mikill auður safnast á fárra hendur“ „Sjómenn eru ekki alveg sáttir“ „Flótti frá verkefnum leysir þau ekki“ Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Fjölmenni í siglingu á Fáskrúðsfirði Sjómenn heiðraðir um allt land Vogmær á fiskasýningu Hafró Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Vara við tínslu kræklings úr fjörum Engin drauganet úr köngulóarsilki Brim kaupir Lýsi á lægra verði Stærsti túr Blængs á Íslandsmiðum „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Þyrla kölluð út vegna elds í fiskibáti Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Vara við tínslu kræklings úr fjörum Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Sjómenn heiðraðir um allt land „Sjómenn eru ekki alveg sáttir“ „Flótti frá verkefnum leysir þau ekki“ Fleira áhugavert Segja Bandaríkin bera ábyrgð á átökum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Hafa skotið næstum 30 flugskeytum í átt að Ísrael 35 látnir: Íbúar óttast eftirskjálfta Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 8.6.26 699,81 kr/kg Þorskur, slægður 8.6.26 785,66 kr/kg Ýsa, óslægð 8.6.26 839,71 kr/kg Ýsa, slægð 8.6.26 516,24 kr/kg Ufsi, óslægður 8.6.26 363,69 kr/kg Ufsi, slægður 8.6.26 502,52 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 8.6.26 285,02 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 8.6.26 Skarphéðinn SU 3 Handfæri Þorskur 778 kg Ufsi 67 kg Samtals 845 kg 8.6.26 Erla AK 52 Handfæri Þorskur 802 kg Samtals 802 kg 8.6.26 Teista AK 16 Handfæri Þorskur 485 kg Ufsi 89 kg Karfi 8 kg Steinbítur 4 kg Ýsa 2 kg Samtals 588 kg 8.6.26 Ás SH 130 Grásleppunet Grásleppa 2.104 kg Samtals 2.104 kg Skoða allar landanir »

Share this article