Innlent | Morgunblaðið | 9.6.2026 | 9:45 Varhugaverð innleiðing í skólunum Meyvant segir það hafa verið mistök að flytja rekstur og þjónustu grunnskóla frá íslenska ríkinu til sveitarfélaga. mbl.is/Karítas Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Nánast ógerningur er að semja námsefni fyrir íslenskt skólakerfi þegar óreiðan í útfærslu og kennsluháttum er jafn mikil og raun ber vitni. Þetta segir Meyvant Þórólfsson, prófessor emeritus og sérfræðingur í mats- og námskrárfræðum. Með sanni má segja að nokkurs konar ófremdarástand hafi liðist í íslensku menntakerfi eins og síhnignandi námsárangur íslenskra nemenda í samanburði við aðrar þjóðir ber vott um. Meyvant segir skýringarnar á þessum vanda margþættar. „Þetta ráðuneyti nýtur ekki mikillar virðingar og oft virðist fólk sett þangað þegar ekki finnst staður fyrir það annars staðar.“ Frétt af mbl.is Tíu mánaða bið, tuttugu „aðgerðir“ Verja minni tíma í kennslu Hann segir íslenskt menntakerfi snúast að of miklu leyti um „súrrealísk sprotaverkefni“ sem skilji lítið eftir sig og hafi takmörkuð áhrif. „Það vantar alveg þessa miðlægu stýringu þegar kemur að gerð námsefnis, námsgagna og námsmats,“ segir hann, „enda núgildandi aðalnámskrá gagnslaust stýritæki í þeim efnum.“ Að sögn Meyvants verja íslenskir kennarar of miklum tíma í gerð námsefnis og minni tíma í sjálfa kennsluna. Þetta skerði bæði gæði kennslu og samræmi milli skóla. „Ég held að þessi tvö orð, samfella og samhengi, skipti miklu meira máli en við viljum láta vera, þetta skiptir gríðarlegu máli fyrir allt kerfið.“ Hann telur það hafa verið mistök að flytja rekstur og þjónustu grunnskóla frá íslenska ríkinu til sveitarfélaga undir lok síðustu aldar. „Það vissu allir og sáu strax þá að flest sveitarfélög voru allt of smá og lítil til að taka á sig þessa miklu ábyrgð og það hefur svo sannarlega komið á daginn.“ Frétt af mbl.is Einn grunnskólabekkur, sautján móðurmál Náttúruvísindi fótum troðin Hann segist sérstakar áhyggjur hafa af stöðu nemenda þegar kemur að náttúruvísindagreinum. „Ég ætla ekki að ásaka kennara fyrir það en við erum bara með kerfi og kennara sem kunna ekki þessi fög, ætlum við bara að hætta að kenna náttúruvísindi?“ spyr hann. Ráðast þurfi í breytingar á kerfinu en það verði að gera vel og með hæglæti. Það gerist ekki á einu kjörtímabili. „Ég myndi byrja á að horfa yfir farinn veg og reyna að læra af reynslunni. Ég myndi ekki verða eins og núverandi menntamálaráðherra [Inga Sæland] sem sagði að amma væri komin til að sigla skipinu í höfn,“ segir hann. „Auðvitað viljum við sigla skipinu í höfn og að allir verði ánægðir en það er bara ekki svona auðvelt,“ bætir hann við. Börnin komin í leiki í stað náms Meyvant segir það geta hjálpað kerfinu að auðvelda einkaaðilum að þróa og gefa út námsefni fyrir grunnskóla. Það verði þó að vera vel ígrundað og gert rétt, í góðri sátt við alla hlutaðeigandi. Grundvallaratriði sé að það kosti meira fé en flestir gera sér grein fyrir og erfitt geti verið að finna aðila sem tilbúnir séu í það verkefni. „Ég hef nú heyrt af þessari umræðu mestallan tímann sem ég hef verið í þessu starfi og það eru alltaf að koma upp einhverjar brekkur tengdar þessu. Ef sátt er um það og menn reyna að vinna saman þá gæti þetta klárlega bætt kerfið.“ Loks segir hann innleiðingu stafrænna námsgagna varhugaverða ef ekki er gætt að tilgangi og útfærslu. „Ég hef heyrt það frá kennurum að það sé svo erfitt að halda utan um þetta, krakkarnir séu bara komnir í einhverja leiki eða eitthvað út og suður. Þar fyrir utan á öll slík tækni sér skamman líftíma og bæði vél- og hugbúnaður úreldast fljótt.“ Frétt af mbl.is Ráðuneytið skautar fram hjá óþægilegri staðreynd Undrandi ef við skoruðum hátt TIMSS-rannsóknin (e. Trends in International Mathematics and Science Study), hefur verið gerð á fjögurra ára fresti frá árinu 1995. Á þeim tíma var hún viðamesta samanburðarrannsókn sem gerð hafði verið á menntakerfum heimsins. Árið 1995 var einnig fyrsta og jafnframt síðasta sinn sem Ísland tók þátt í rannsókninni. Stjórnvöld ætla þó að taka upp þráðinn aftur á næsta ári. Meyvant segist áhyggjufullur yfir niðurstöðum íslenskra barna úr prófinu. „Ef þú ætlar að búa íslenska nemendur undir það próf er aldeilis ekki nóg að láta þá bara gúgla eitthvað og leika sér í tölvunum. Ég yrði mjög undrandi ef við myndum skora hátt á þessu prófi.“ Hann segist þó trúa því að stafræn kennsla geti hjálpað að einhverju leyti en það verði að vanda sig við innleiðingu hennar. Þar skipti kunnátta og skólapólitísk viðhorf kennara meginmáli. Frétt af mbl.is Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Þetta er ekki lengur sami þáttur og ég byrjaði í,“ Varhugaverð innleiðing í skólunum Ráðuneytið nýtur lítillar virðingar Líklega ekki tilbúinn í fyrsta leik Stjórnmálamönnum brugðið eftir hrottafengna árás Umræðan Vígi frjálslynds lýðræðis Málið snýst um stjórnunarréttinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ekkert vesen“ að manna í viku Varhugaverð innleiðing í skólunum Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi 35 látnir: Íbúar óttast eftirskjálfta Mest lesið Í gær Í vikunni ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Dró upp rafbyssu eftir tilkynningu um innbrot Aðalsteinn aftur að sáttaborðinu Laun og hlunnindi hækkuðu um 7,4% Einföldun reglna og afnám gullhúðunar Þurfa reglulega að kalla til aðstoð „Versta mögulega sviðsmynd“ Hefur Ísland „sæti við borðið“ nú þegar? Viðra áhyggjur af Evrópuumræðu á RÚV Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga Þurfa reglulega að kalla til aðstoð 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Nýjast á mbl.is » „Þetta er ekki lengur sami þáttur og ég byrjaði í,“ Varhugaverð innleiðing í skólunum Ráðuneytið nýtur lítillar virðingar Líklega ekki tilbúinn í fyrsta leik Stjórnmálamönnum brugðið eftir hrottafengna árás Umræðan Vígi frjálslynds lýðræðis Málið snýst um stjórnunarréttinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bauluðu á Trump á úrslitaleik NBA Ástráður: „Enn þá mjög erfið deila“ Þurfa reglulega að kalla til aðstoð Segir viðræður um friðarsamning á lokametrunum Mest lesið Í gær Í vikunni ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Dró upp rafbyssu eftir tilkynningu um innbrot Aðalsteinn aftur að sáttaborðinu Laun og hlunnindi hækkuðu um 7,4% Einföldun reglna og afnám gullhúðunar Þurfa reglulega að kalla til aðstoð „Versta mögulega sviðsmynd“ Hefur Ísland „sæti við borðið“ nú þegar? Viðra áhyggjur af Evrópuumræðu á RÚV Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga Þurfa reglulega að kalla til aðstoð 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn