Innlent | Morgunblaðið | 9.6.2026 | 12:30 Fjaran hefur breyst til frambúðar Þúsundir ferðamanna koma dag hvern í Reynisfjöru í Mýrdal, þó að umhverfið þar hafi breyst mikið. Austanáttir grófu í vetur fyrir stuðlabergshamar, sem hér sést, og í Hálsanefshelli er nú svarrandi sjór. Vegna þessa hefur þurft að grípa til aðgerða í fjörunni og setja upp ný viðvörunarskilti, þó ferðamenn skelli oft skollaeyrum við boðskapnum. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Settu met í sætanýtingu í maí Erfiðara að sjá inn í haustið Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Farþegar aldrei verið fleiri Haustið ber með sér óvissu » Fleiri tengdar fréttir Reynisfjara Reynisfjara hættulegri en ferðamenn jafnfífldjarfir Skurðirnir standa fyrir sínu Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð » Fleiri tengdar fréttir „Umhverfið hér er gjörbreytt og svo verður væntanlega til frambúðar að einhverju leyti. Sandurinn hér í fjörunni hefur sáralítið komið til baka eftir það sem gerðist hér í vetur,“ segir Ólafur Steinar Björnsson á Reyni í Mýrdal. Sá er maðurinn sem best fylgist með framvindu í Reynisfjöru sem er einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins. Nefnt er að á ári hverju fari um ein milljón ferðamanna í fjöruna sem komst á kortið og til vinsælda fyrir nokkrum árum, meðal annars vegna myndbirtinga á samfélagsmiðlum. Flæðarmálið alltaf á hreyfingu Miklir gjörningar hafa verið í Reynisfjöru á síðustu mánuðum. Þrálátar austanáttir í vetur urðu til þess að þungar öldur úthafsins átu sig tugi metra inn til landsins. Talsvert gróf úr fjörukambinum þar sem búið var að malbika útsýnispall með öryggismyndavélum og skiltum. „Flæðarmálið þarna hefur alltaf verið á stöðugri hreyfingu. Málið er þó að sandfjaran nær nú bara að stuðlaberginu en ekki langt suður fyrir það og að Hálsanefshelli, eins og gjarnan var á sumrin,“ útskýrir Ólafur. Við fjöruna er ein breytingin sú að stór fylla hefur brotnað úr fjallshlíðinni. Sú geil stækkar stöðugt og ofan hennar í brekkunni eru tvö stór björg sem líklega rúlla niður fyrr en síðar. Við hlið þessa teigs í hlíðinni er Kirkjuhellir sem svo heitir. Þar hefur aðgangshörð aldan grafið úr sandbotni svo nú er lítill skúti orðinn stór hvelfing. Frétt af mbl.is Reynisfjara hættulegri en ferðamenn jafnfífldjarfir Lengst til vinstri hér sést í fjallshlíðinni geil sem myndast hefur vegna landbrots. Við hennar hlið er Kirkjuhellir; skúti sem varð hvelfing. Þá kemur stuðlabergshamar sem áður var gengt fyrir út í Hálsanefshelli. Þar var áður fjara fyrir hellismunna, en nú gengur sjór gjarnan þar, eins og þessi mynd sýnir. mbl.is/Sigurður Bogi „Öfgar í veðráttu hafa aukist,“ segir Ólafur Steinar þegar rætt er um Reynisfjöru. mbl.is/Sigurður Bogi Stuðlaberg í sjó fram Rétt utan við hellinn er stuðlabergshamar sem gengur í sjó fram. Allt þar til í vetur var sandbakki framan við stuðlabergið og inn með fjallshlíðinni svo gengt var í Hálsanefshelli. Nú gengur sjór þar að og stundum langt inn í hellinn, svo hættuspil er að fara þangað þegar flæðir að. En þrátt fyrir þetta er útsýnið úr Reynisfjöru engu líkt þar sem svartur sandurinn, hafaldan og stuðlabergið mynda stórbrotið umhverfi. Dyrhólaey stendur í vestri með sínu gati og kletti sem skagar út í sjó og útsýni er á góðviðrisdegi að Mýrdalsjökli. „Reynisfjara er áfram opin. Eina breytingin er að ekki er líklegt að hægt sé að komast lengur í Hálsanefshelli. Hann hefur raunar verið óaðgengilegur öðru hvoru í áranna rás vegna sífelldra breytinga á flæðarmálinu,“ nefnir Ólafur Steinar. Talið er að um ein milljón ferðamanna á ári komi í Reynisfjöru. Margir þeirra taka af sér sjálfsmyndir til að staðfesta komu sína á svæðið. Auknar öfgar í veðráttu Atburðarásinni í Reynisfjöru var lýst í Morgunblaðinu 9. febrúar sl., þ.e. hvernig náttúruöflin umturnuðu fjörunni. Þegar þarna var komið sögu höfðu austlægar áttir verið ríkjandi og borið kraftmiklar öldur að landi. Þá skolaði út sandi sem færðist vestur með ströndinni og að Dyrhólaey. Nokkuð þessu líkt hefur gerst stundum áður, en aldrei í þeim stærðum sem nú er. Sitthvað um þetta segir að vindmælir á Reynisfjalli sýndi í febrúar sl. vindstyrk sem í hviðum fór, yfir þriggja vikna tímabil, ekki undir 23 m/sek. Ólafur Steinar Björnsson hér við ný skilti sem á að setja upp í fjörunni. mbl.is/Sigurður Bogi „Öfgar í veðráttu hafa aukist,“ segir Ólafur Steinar sem sinnir ýmsum verkefnum í Reynisfjöru, svo sem sandmokstri. Steypt fylling hefur verið sett við malbikaða göngustíga svo sjór flæði ekki undir þá og skoli út. Næst er svo að setja upp ný viðvörunarskilti. Allur er varinn góður, samanber þau fjögur banaslys sem orðið hafa í fjörunni þar sem brimhrammur hefur gripið fólk sem óvarlega hefur farið. „Því miður virðast skilti eða varnaðarorð stundum hafa lítið að segja. Í ákafa sínum fara ferðamenn mjög óvarlega og hreyta bara í fararstjóra eða aðra sem hafa uppi varnaðarorð,“ segir Ólafur Steinar á Reyni hér að síðustu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Settu met í sætanýtingu í maí Erfiðara að sjá inn í haustið Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Farþegar aldrei verið fleiri Haustið ber með sér óvissu » Fleiri tengdar fréttir Reynisfjara Reynisfjara hættulegri en ferðamenn jafnfífldjarfir Skurðirnir standa fyrir sínu Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » 180 einstaklingar ekki farið úr landi Gerður og Raj sigruðu Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar Beint: Hærri skattar, til hvers? Nærri 100 skólum lokað vegna bjarndýra Umræðan Vígi frjálslynds lýðræðis Ræsum vélarnar – en hvar eru peningarnir? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Níu aðildarríki andmæla umhverfiskröfum ESB Segir viðræður um friðarsamning á lokametrunum Hafnar því að ESB-aðild hafi áhrif á varnarsamning „Mér hefur bara aldrei liðið betur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ráðuneytið nýtur lítillar virðingar ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Laun og hlunnindi hækkuðu um 7,4% „Mér hefur bara aldrei liðið betur“ Fórnarlamb netsvika þarf að borga brúsann Dró upp rafbyssu eftir tilkynningu um innbrot Aðalsteinn aftur að sáttaborðinu Vill sjá samninginn sem nefndur var í Silfrinu Varhugaverð innleiðing í skólunum Einföldun reglna og afnám gullhúðunar Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga Þurfa reglulega að kalla til aðstoð 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Nýjast á mbl.is » 180 einstaklingar ekki farið úr landi Gerður og Raj sigruðu Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar Beint: Hærri skattar, til hvers? Nærri 100 skólum lokað vegna bjarndýra Umræðan Vígi frjálslynds lýðræðis Ræsum vélarnar – en hvar eru peningarnir? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 35 látnir: Íbúar óttast eftirskjálfta Áætlunin „vart pappírsins virði“ Hætta árásum „í bili“ Einföldun reglna og afnám gullhúðunar Mest lesið Í gær Í vikunni Ráðuneytið nýtur lítillar virðingar ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Laun og hlunnindi hækkuðu um 7,4% „Mér hefur bara aldrei liðið betur“ Fórnarlamb netsvika þarf að borga brúsann Dró upp rafbyssu eftir tilkynningu um innbrot Aðalsteinn aftur að sáttaborðinu Vill sjá samninginn sem nefndur var í Silfrinu Varhugaverð innleiðing í skólunum Einföldun reglna og afnám gullhúðunar Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga Þurfa reglulega að kalla til aðstoð 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn