Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Leggur til breytingar á inn­heimtu veg­gjalda

Read Full Article →

Jens Garðar Helga­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, leggur til breytingar á frum­varpi ríkis­stjórnarinnar um inn­viðafélag sem miða að því að skýra hver beri ábyrgð á greiðslu veg­gjalda þegar ökutæki er í um­ráðum annars aðila en skráðs eig­anda. Breytingar­til­lagan snýr að 7. grein frum­varpsins. Sam­kvæmt henni yrði megin­reglan áfram sú að skráður eig­andi ökutækis bæri ábyrgð á greiðslu veg­gjalda. Jens Garðar leggur hins vegar til að undan­tekning verði gerð þegar annar aðili hefur um­ráðarétt yfir ökutækinu sam­kvæmt samningi um eigna­leigu eða fjár­mögnunar­leigu, eða þegar ökutæki er í leigu hjá ökutækja­leigu með starfs­leyfi. Í slíkum til­vikum yrði gjald­skyldan ekki sjálf­krafa hjá skráðum eig­anda heldur hjá um­ráða­manni ökutækisins eða skráðum leigu­taka sam­kvæmt leigu­samningi við ökutækja­leigu. Í fram­kvæmd gæti þetta skipt máli fyrir bíla­leigur, fjár­mögnunar­fyrir­tæki og aðra aðila sem eru skráðir eig­endur fjölda ökutækja, þótt bílarnir séu í dag­legum af­notum annarra. Til­lagan virðist þannig eiga að koma í veg fyrir að veggjöld vegna aksturs leigu­taka eða um­ráða­manna falli strax á skráðan eig­anda bílsins, til dæmis bíla­leigu eða fjár­mögnunar­fyrir­tæki. Til­lagan tekur þó ekki ábyrgðina al­farið af skráðum eig­anda. Í henni er lagt til að ekki verði hafnar fullnustu­að­gerðir gagn­vart skráðum eig­anda fyrr en inn­heimta hjá um­ráða­manni eða skráðum leigu­taka telst full­reynd. Það þýðir að fyrst ætti að reyna að inn­heimta gjaldið hjá þeim sem hafði bílinn til af­nota, en skráður eig­andi gæti komið til skoðunar síðar ef sú inn­heimta gengur ekki eftir. Jens Garðar leggur jafn­framt til að veggjöld verði aðfarar­hæf án undan­gengins dóms eða sáttar. Með því væri hægt að inn­heimta gjöldin með fullnustu­að­gerðum án þess að fyrst þyrfti að fá dóm um kröfuna. Í breytingar­tillögunni er einnig lagt til að sér­stak­lega verði vísað til ökutækja­l­eigna í ákvæði um gjöldin. Því virðist ætlað að tryggja að bíla­leigur falli skýrt undir fram­kvæmd ákvæðisins, meðal annars þegar þarf að liggja fyrir hver hafði ökutæki til af­nota þegar veg­gjald féll til. Frum­varpið um inn­viðafélag gerir ráð fyrir nýju fyrir­komu­lagi við fjár­mögnun og upp­byggingu sam­göngu­inn­viða. Breytingar­til­laga Jens Garðars fjallar ekki um fjár­hæð veg­gjalda, heldur hver beri ábyrgð á greiðslu þeirra þegar eig­andi og raun­veru­legur notandi ökutækis eru ekki sami aðili. Sjá einnig Opin heimild ráðherra brjóti gegn stjórnarskrá

Share this article