Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Leikdagur: Heimsmeistararnir mættir í Laugardal

Read Full Article →

SAMANTEKT Fótbolti Leikdagur: Ísland mátti þola tap gegn heimsmeisturunum í markaregni Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tók á móti heimsmeisturum Spánar á Laugardalsvelli í kvöld í undankeppni HM 2027. Spænska liðið vann 6-1 og er á leið beint á HM. Ísland fer hins vegar í umspil um sæti á mótinu. Linda Líf Boama skoraði sitt fyrsta landsliðsmark. Anna Sigrún Davíðsdóttir 9. júní 2026 kl. 17:00, uppfært kl. 21:59 A A A Leikurinn fór 6-1. AP – Brynjar Gunnarsson Fyrir 7 tímum – uppfært Hvað tekur við? Íslenska liðið náði sínu markmiði um þriðja sæti riðilsins og þar með vænlegri leið í umspili um HM sæti. Fyrsti fasi undankeppninnar er á móti liðum í C-deild Þjóðadeildarinnar og þar megum við búast við þessum þjóðum í pottinum: Litáen, Kósóvó, Króatíu, Ungverjalandi, Grikklandi, Rúmeníu, Búlgaríu og Kasakstan. Adda Baldursdóttir sagði í Stofunni að íslenska liðið standi þessum liðum framar. „Þetta hljómar allt vel í mínum eyrum. Allir þessir andstæðingar. Það var markmiðið, að enda í þriðja sæti og fá þessa leið. Það skiptir eiginlega ekki máli hvaða lið við fáum þarna.“ Ísland mun mæta einu þessara liða og ef nást hagstæð úrslit þar mun liðið spila annað hvort liði úr B-deild eða liði sem endaði í neðsta sæti í sínum riðli í A-deild. Ísland er aðeins fjórum leikjum frá HM í Brasilíu 2027! Thelma Karen Pálmadóttir var í byrjunarliði Íslands. RÚV / Mummi Lú Fyrir 7 tímum „6-1 var kannski alveg óþarfi“ Alexandra Jóhannsdóttir segir liðið hafa mátt gera betur í mörgum þáttum. „6-1 var kannski alveg óþarfi.“ „Mér fannst við geta mætt þeim betur og látið finna aðeins meira fyrir okkur en það er erfitt að klukka og við vorum kannski svolítið eftir á í mörgum mómentum.“ 00:00 01:46 Fyrir 7 tímum Við að klikka en spænska liðið feiknasterkt Þorsteinn Halldórsson er vitanlega svekktur eftir tapið. Horfandi til baka á riðilinn segir hann grundvallaratriði að liðið hafi náð markmiðinu um þriðja sætið. Þá segir hann leikinn á móti Englandi hér heima hafa verið góðan og liðið skilað faglegu verki í Úkraínuleikjunum. 00:00 04:02 Fyrir 7 tímum Nær kannski að njóta á morgun Linda Líf Boama kom inn á í seinni hálfleik í sínum fjórða A-landsleik og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark. Hún er súr eftir tapið en segist mögulega geta brosað yfir markinu á morgun. „Þetta er súrsætt augnablik. Auðvitað er gott að koma inn fyrsta markinu en þetta fór ekki alveg eins og við vildum hafa þetta.“ Þá segir hún liðið staðráðið í að fara á HM. 00:00 01:22 Fyrir 7 tímum Spænska liðið kom, sá og sigraði Sannarlega verðskuldaður sigur spænska liðsins sem sýndi yfirburði sína á Laugardalsvelli í kvöld. Íslenska liðið barðist fram á síðustu mínútu en gæðin í spænska liðinu voru of stór biti fyrir Ísland í dag. Spænska liðið gulltryggir sæti sitt á HM með þessum 6-1 stórsigri. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að Ísland er á leið í umspil um sæti á HM! Fyrir 7 tímum – uppfært Bonmatí kemur og kvittar Aitana Bonmatí mætti inn á í hálfleik og hún bætir við í markareikning Spánverja. Spænska liðið refsar með marki fyrir hver einustu mistök! Markspyrna Ceilíu endaði hjá Bonmatí sem er ekki lengi að þruma boltanum fjærhornið þar sem boltinn flýgur í netið. Staðan er 6-1 fyrir Spánverja þegar fimm mínútur eru eftir. 00:00 00:12 Fyrir 8 tímum – uppfært Enn bætir spænska liðið við Spænska liðið er enn í feiknagír og fimmta mark liðsins er komið í hús. Cllaudia Pina smellir boltanum í stöngina og inn. Stoðsendinguna átti Eva Navarro. Spánn leiðir 5-1 eftir 69 mínútna leik. 00:00 00:11 Fyrir 8 tímum Systurnar mæta til leiks Systurnar Arna og Hlín Eiríksdætur eru mættar á völlinn í staðinn fyrir Ingibjörgu Sigurðardóttur og Diljá Ýr Zomers. Fyrir 8 tímum – uppfært Linda Líf minnkar muninn! Vikrilega vel gert hjá íslenska liðinu! Mark upp úr skyndisókn. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir þræðir upp og sendir á Lindu Líf Boama sem gerir vel, heldur boltanum niðri og splæsir í sitt fyrsta landsliðsmark! Þetta gefur íslenska liðinu vonandi aukna orku í baráttunni. Staðan er 4-1 eftir 60 mínútna leik. 00:00 00:38 Fyrir 8 tímum – uppfært Ein mistök og refsað með marki Íslenska liðið vann boltann en misheppnuð sending endaði hjá spænska liðinu. Boltinn endaði hjá Vicky López sem skorar fjórða spænska markið á 50. mínútu. Þungt í upphafi seinni. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir á svo skot fram hjá spænska markinu. Staðan er 4-0 fyrir Spán eftir 52 mínútur. 00:01 00:00 Fyrir 8 tímum Gefa allt í seinni „Við þurfum að koma út í seinni og gefa allt í þetta. Við höfum engu að tapa,“ sagði Diljá Ýr Zomers í hálfleik. Seinni hálfleikurinn er hafinn og íslenska liðið er til í baráttuna! Fyrir 8 tímum – uppfært Annað mark fyrir hálfleiksflaut Salma Paralluelo á síðasta orðið í fyrri hálfleik þegar hún kemur Spánverjum í 3-0. Þær þræða sig í gegnum íslenska liðið og yfirburðirnir töluverðir. Paralluelo stendur ein og óáreitt í talsverðan tíma áður en Ona Batlle gefur stoðsendinguna. Engin spurning að boltinn myndi enda í netinu. Spánn leiðir 3-0 í hálfleik. 00:01 00:00 Fyrir 8 tímum – uppfært Spænska liðið tvöfaldar forystuna Íslenska liðinu mistókst að hreinsa boltann þegar Edna Imade skorar annað mark spænska liðsins. Ona Batlle gefur góða stoðsendingu á Imade sem er vel staðsett og boltinn ratar af öryggi í markið. Þetta lá í loftinu. Staðan er 2-0 eftir 39 mínútna leik. 00:01 00:00 Fyrir 9 tímum Vörnin stendur Eins og við var að búast er spænska liðið afar sterkt og hefur boltanum að megninu til. Íslenska vörnin stendur í ströngu en þær gera vel gegn stórgóðum leikmönnum Spánar. Glódís Perla og Ingibjörg verjast vel inni í teig. Spánn leiðir 1-0 eftir 27 mínútna leik. Fyrir 9 tímum – uppfært Glæsilegt mark Spánverja Leikurinn er rétt nýhafinn þegar Patri Guijarro á góða sendingu á Vicy López sem afgreiðir boltann með glæsilegum hætti inn í íslenska markið. Spánn leiðir 1-0 eftir 5 mínútna leik. 00:01 00:00 Fyrir 9 tímum Áfram Ísland! Leikur Íslands og heimsmeistara Spánar er hafinn, áfram Ísland! 9. júní 2026 kl. 18:30 Stofan farin í loftið Helga Margrét Höskuldsdóttir hitar upp ásamt Öddu Baldursdóttur og Alberti Brynjari Ingasyni í Stofunni. Upphitun er hafin á RÚV 2. Leikurinn er svo sýndur á RÚV og RÚV 2. 9. júní 2026 kl. 18:29 – uppfært Tvær breytingar á íslenska liðinu og ný uppstilling Þorsteinn Halldórsson þjálfari liðsins gerir tvær breytingar frá leiknum gegn Úkraínu. Hildur Antonsdóttir og Emilía Kiær Ásgeirsdóttir fara út og Diljá Ýr Zomers og Ída Marín Hermannsdóttir inn. Þá er liðinu einnig stillt öðruvísi upp og í kvöld munu þær spila 5-3-2 í stað 4-3-3. Þorsteinn segir það til þess gert að ná að loka ákveðnum svæðum. „Við viljum reyna að loka á ákveðin hlaup frá þeim.“ Byrjunarliðið 1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m) 3. Sandra María Jessen 4. Glódís Perla Viggósdóttir (f) 6. Ingibjörg Sigurðardóttir 8. Alexandra Jóhannsdóttir 9. Diljá Ýr Zomers 10. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 17. Ída Marín Hermannsdóttir 18. Guðrún Arnardóttir 19. Sædís Rún Heiðarsdóttir 20. Thelma Karen Pálmadóttir 9. júní 2026 kl. 18:14 – uppfært Leiðin að HM í Brasilíu Með því að ná þriðja sætinu í riðlinum kom Ísland sér í fína stöðu í komandi umspili. Þar þarf að vinna tvö einvígi til að komast á HM í Brasilíu á næsta ári. Það fyrra verður gegn liði úr C-deild og það seinna annað hvort gegn liði úr B-deild eða liði sem endaði í fjórða sæti í sínum riðli í A-deild. Ísland er því ansi nálægt fyrsta heimsmeistaramóti kvenna. Dregið verður í umspilið 18. júní. Heimsmeistaramót kvenna í fótbolta 2027 verður í Brasilíu. EPA / Antonio Lacerda 9. júní 2026 kl. 18:06 Vilja sýna fyrir hvað þær standa Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði liðsins, segist spennt fyrir leiknum og því að liðið geti mátað sig við þær bestu. Hún segir liðið vilja sýna fyrir hvað það stendur. „Liðið er spennt að fara út á völl og vonandi ná fram sama sjálfstrausti og hugrekki og í seinni hálfleiknum á móti Englandi.“ 00:01 00:00 9. júní 2026 kl. 17:30 „Velkomnar á Laugardalsvöll“ Íslenska liðið fer stórhuga inn í leikinn. „Við bjóðum þær bara velkomnar á Laugardalsvöll. Við förum inn í þennan leik til að ná í þrjú stig. Sama á móti hverjum það er, hvort það eru heimsmeistararnir eða eitthvað annað lið. Bara, velkomnar á Laugardalsvöll,“ segir Sædís Rún Heiðarsdóttir brosandi. Sædís Rún býður þær spænsku velkomnar á Laugardalsvöll. Rúv / Mummi Lú Spánn er ríkjandi heimsmeistarari og innanborðs eru margar af stærstu stjörnunum. Sædís hlakkar til að mæta Spáni og máta sig við þær bestu. „Mér finnst þetta bara skemmtilegt. Þetta eru leikmenn sem maður vill máta sig við og það er gaman að fá að vera hluti af þessu liði og taka þátt í þessu.“ Guðrún Arnardóttir tekur í sama streng. „Það er alltaf gaman að mæta bestu leikmönnum heims og það er auðvitað mikil áskorun.“ Fótbolti Pressu­laus­ar inn í leik­inn: „Vel­komn­ar á Laug­ar­dals­völl“ 9. júní 2026 kl. 17:15 Hvað þýðir leikurinn? Niðurstaðan í kvöld mun ekki breyta þeirri staðreynd að Ísland endar í þriðja sæti riðilsins. Það er raunar mjög fín niðurstaða fyrir íslenska liðið sem heldur sæti sínu í A-deild og fær ágæta leið í umspili um sæti á mótinu. Það er hins vegar mikið í húfi fyrir þær spænsku því þær geta innsiglað sæti sitt á mótinu með sigri. Spánn og England eru jöfn að stigum en Spænska liðið er með betri innbyrðis úrslit á Englendinga. Ísland mun enda í þriðja sæti. ksi.is Pressulausar og til í að máta sig við þær bestu Leikmenn íslenska liðsins hafa talað um viljan til að máta sig við þær bestu í heiminum. Þessi undankeppni hefur verið frábær í slíkt verkefni því þar er einnig að finna Evrópumeistara Spánar. Guðrún Arnardóttir, bakvörður í íslenska liðinu sagði gott að liðið geti farið pressulaust inn í leikinn við heimsmeistararna og geti þá um leið sýnt nokkurt hugrekki. „Það tekur alla pressu af þessu og við getum kannski bara notið þess að spila, þorað og verið svolítið hugrakkar því þó að við gerum mistök þá kannski kosta þau ekki það mikið eins og oft í keppnisleikjum.“ 9. júní 2026 kl. 17:01 Lokaleikur Íslands og heimsmeistararnir mættir Gott kvöld og velkom

Share this article