Innlent | mbl | 9.6.2026 | 17:21 Frumvarp um brottfararstöð samþykkt Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Eldhúsdagur en óvíst um þinglok Ryður burt einni helstu hindrun virkjunarinnar Deildar meiningar um Silfrið á þingi Boðið í heimsókn eftir þuklið Vill fjarlægja „níðstöngina“ við Alþingi » Fleiri tengdar fréttir Lög um útlendinga 180 einstaklingar ekki farið úr landi Fá lágmarksframfærslu og aðstöðu til að elda Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Flestir fengið atvinnuleyfi frá Indlandi Kristrún þurfi að fara að sýna hver ræður » Fleiri tengdar fréttir Alþingi samþykkti í dag frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Lögin taka gildi 1. desember. Frumvarpið tók breytingum í meðförum Alþingis og lagði ráðuneytið meðal annars til breytingar þess efnis að kveðið yrði skýrt á um að fjölskyldur með börn yrðu vistaðar í sérstöku fjölskylduhúsnæði. Að auki komu breytingartillögur frá allsherjar- og menntamálanefnd. Að því er kemur fram á vef Alþingis var frumvarpið samþykkt með 42 atkvæðum. Tíu greiddu ekki atkvæði og 11 voru fjarverandi. Frétt af mbl.is 180 einstaklingar ekki farið úr landi Sérfræðingar leita að húsnæði Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að brottfararstöð fyrir einstaklinga og fjölskylduúrræðið verði hvorki í sama húsnæði né á sama stað. Leit sérfræðinga í ráðuneytinu að hentugu húsnæði undir hvoru tveggja standi enn yfir og verði kynnt þegar staðsetning liggur fyrir. Þá verði eingöngu heimilt að vista fólk á brottfararstöð þegar öll önnur vægari úrræði hafa verið reynd eða metin ófullnægjandi. Aukinheldur verði fylgdarlaus börn ekki vistuð á brottfararstöð. Eingöngu verður heimilt að vista fólk á brottfararstöð þegar öll önnur vægari úrræði hafa verið reynd eða metin ófullnægjandi. Þá verða fylgdarlaus börn ekki vistuð á brottfararstöð. Frétt af mbl.is Verði vonandi sjaldan vistuð í brottfararstöð Má gera ráð fyrir að 8-10 fjölskyldum á hverju ári „Ef horft er til meðaltals síðustu fjögurra ára má varlega gera ráð fyrir að um átta til tíu fjölskyldur verði vistaðar í fjölskylduúrræðinu á ári hverju, miðað við tölur frá heimferðar- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra. Erfitt er þó að áætla nákvæman fjölda, þar sem málaflokkurinn einkennist af ytri þáttum sem stjórnvöld hafa takmörkuð áhrif á. Til að mynda hefði engin fjölskylda þurft að dvelja í fjölskylduúrræðinu fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við tölur heimferðar- og fylgdardeildar ríkislögreglustjóra,“ segir í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins. „Það er skiljanlegt að þetta mál veki upp tilfinningar. Rík áhersla var lögð á meðalhóf, um að vega mannréttindaskuldbindingar til móts við aðrar skyldur stjórnvalda um stjórn á útlendingamálum. Vistun á brottfararstöð er ávallt lokaúrræði og aðeins beitt þegar enginn samstarfsvilji er fyrir hendi og vægari úrræði duga ekki. Það er hins vegar ekki tæk leið í útlendingamálum að stjórnvöld geti ekki framfylgt ákvörðunum sínum gagnvart því fólki sem ekki virðir niðurstöðu stjórnvalda,“ er haft eftir Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Frétt af mbl.is Brottfararstöð liður í að létta á fangelsum Ekki lengur en níu daga alls Í tilkynningunni kemur fram að hver fjölskylda verði alla jafna ekki vistuð lengur en þrjá daga í fjölskylduúrræðinu og aldrei lengur en níu daga alls ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Þá munu fjölskyldur hafa þar til afnota eigið afmarkað rými, tómstundasvæði innan- og utandyra auk salernis- og eldunaraðstöðu. „Lögregla hefur í neyðartilvikum þurft að hafa foreldra eða forráðamenn í sólarhringsvistun til að tryggja nærveru þeirra þegar að fylgd kemur eða fá þá úrskurðaða gæsluvarðhald í fangelsinu á Hólmsheiði. Börnum er þá komið fyrir hjá barnavernd. Samkvæmt upplýsingum frá heimferðar- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra hefur ekki þurft að grípa til þessa úrræðis á þessu ári. Í fyrra var gæsluvarðhaldi tvívegis beitt og sólarhringsvistun einu sinni. Mestur var fjöldinn fyrir tveimur árum þegar sólarhringsvistun fyrir fylgd var beitt níu sinnum.“ Erfitt að áætla fjölda Varðandi brottfararmiðstöð fyrir einstaklinga verða þau sem vistuð verða þar fólk sem hefur verið synjað um dvöl hér á landi, hafnað öllum öðrum og vægari úrræðum og neitað samstarfi við stjórnvöld um að hlíta ákvörðun um að yfirgefa landið, að því er segir í tilkynningunni. „Í dag hefur lögregla þurft að fá fólk úrskurðað í gæsluvarðhald á Hólmsheiði sem þykir ekki forsvaranlegt. Ítrekaðar athugasemdir hafa verið gerðar við þetta fyrirkomulag af hálfu úttektarnefndar með Schengen-samstarfinu. Dæmi eru um það í ár að ekki hafi verið óskað eftir gæsluvarðhaldi þar sem vitað var að ekki var til pláss. Erfitt er að áætla nákvæmlega hver fjöldi þeirra verður sem verða vistaðir á brottfararstöð. Áætlanir gera ráð fyrir allt frá fimm til þrjátíu á hverjum tíma. Ef horft er til tölfræði síðustu ára er líklegt að stórt hlutfall vistmanna verði karlar, flestir á aldrinum 18 til 35 ára. Vistarverur karla og kvenna verða aðskildar.“ Tengdar fréttir Alþingi Eldhúsdagur en óvíst um þinglok Ryður burt einni helstu hindrun virkjunarinnar Deildar meiningar um Silfrið á þingi Boðið í heimsókn eftir þuklið Vill fjarlægja „níðstöngina“ við Alþingi » Fleiri tengdar fréttir Lög um útlendinga 180 einstaklingar ekki farið úr landi Fá lágmarksframfærslu og aðstöðu til að elda Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Flestir fengið atvinnuleyfi frá Indlandi Kristrún þurfi að fara að sýna hver ræður » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hlæja að tilboði erkifjendanna Einn banki bjargaði 258 milljónum í fyrra Sunneva og Bensi ástfangin á Balí Aðsend grein: Evran og áhættan Aðsend grein: Mun ríkisstjórnin þurfa að segja af sér eftir að tapa ESB-þjóðaratkvæðagreiðslunni? Umræðan Þjóðin þarf meira en hálfa gjaldmiðlaskýrslu Evran og áhættan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hefur áhyggjur af börnunum á næsta prófi Óska eftir að almenningur haldi ró sinni Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Segir viðræður um friðarsamning á lokametrunum Mest lesið Í gær Í vikunni Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Hafna hugmyndum um undanþágur Andlát: Tryggvi Gíslason Hlekktist á í lendingu á Egilsstöðum Hefur áhyggjur af börnunum á næsta prófi Ryður burt einni helstu hindrun virkjunarinnar Víða sést til sólar í dag Óvissan farin að bitna á ferðaþjónustunni Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar „Mér hefur bara aldrei liðið betur“ Ráðuneytið nýtur lítillar virðingar Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar Safnað fyrir fjölskyldu Bergs Ottós Malbikað yfir Íslandsmet ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Fórnarlamb netsvika þarf að borga brúsann Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Boðið í heimsókn eftir þuklið Hætta rannsókn vegna þriggja barna eftir misskilning Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn SS hyggst hætta halal-slátrunum Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Nýjast á mbl.is » Hlæja að tilboði erkifjendanna Einn banki bjargaði 258 milljónum í fyrra Sunneva og Bensi ástfangin á Balí Aðsend grein: Evran og áhættan Aðsend grein: Mun ríkisstjórnin þurfa að segja af sér eftir að tapa ESB-þjóðaratkvæðagreiðslunni? Umræðan Þjóðin þarf meira en hálfa gjaldmiðlaskýrslu Evran og áhættan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óvissan farin að bitna á ferðaþjónustunni Hafna hugmyndum um undanþágur Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Bandaríkin gera loftárásir á Íran Mest lesið Í gær Í vikunni Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Hafna hugmyndum um undanþágur Andlát: Tryggvi Gíslason Hlekktist á í lendingu á Egilsstöðum Hefur áhyggjur af börnunum á næsta prófi Ryður burt einni helstu hindrun virkjunarinnar Víða sést til sólar í dag Óvissan farin að bitna á ferðaþjónustunni Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar „Mér hefur bara aldrei liðið betur“ Ráðuneytið nýtur lítillar virðingar Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar Safnað fyrir fjölskyldu Bergs Ottós Malbikað yfir Íslandsmet ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Fórnarlamb netsvika þarf að borga brúsann Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Boðið í heimsókn eftir þuklið Hætta rannsókn vegna þriggja barna eftir misskilning Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn SS hyggst hætta halal-slátrunum Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss