Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Trump sakar Írana um að skjóta niður þyrlu — ætlar að bregðast við

Read Full Article →

Bandaríkjaforseti segir Írana hafa skotið niður bandaríska þyrlu við Hormússund og ætlar að grípa til aðgerða. Fyrir hálfum sólarhring sagði hann líkur á að friðarsamkomulag kláraðist á næstu dögum. Í morgun sagði Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, samkomulag við Íran í augsýn en nú rétt fyrir fréttir sakaði hann Írani um að skjóta niður bandaríska þyrlu. Við því segist hann verða að bregðast. Nú eru því auknar líkur á að átök Bandaríkjanna og Írans hefjist að nýju. Bandaríkjaforseti sakar Írana um að hafa skotið niður bandaríska þyrlu við Hormússund og segist nauðbeygður til að bregðast við. Aðeins um hálfum sólarhring áður sagði hann samkomulag um frið í augsýn. Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran 28. febrúar. Aðeins tveimur dögum síðar hafði Líbanon dregist inn í stríðið vegna átaka Hezbollah og Ísraels. Ísraelsher hélt í dag áfram þungum árásum á Líbanon. Skelfingarástand skapaðist í Týros þegar þúsundir lögðu á flótta eftir fyrirskipun Ísraelshers og minnst níu voru drepin á árásum hersins á borgina í morgun.

Share this article