Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ásdís Kristjánsdóttir endurráðin bæjarstjóri Kópavogs

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir 9. júní 2026 kl. 18:54INNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Ásdís Krist­jáns­dótt­ir end­ur­ráð­in bæj­ar­stjóri Kópa­vogs Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Ásdís Kristjánsdóttir var endurráðin bæjarstjóri Kópavogs á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar í dag. Ásdís er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og tók fyrst við starfi bæjarstjóra árið 2022. Víðir Hólm Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynda meirihluta í Kópavogi með sjö bæjarfulltrúa. „Ég heyri í samtölum mínum að Kópavogsbúar eru stoltir og ánægðir með sitt bæjarfélag og undir okkar forystu ætlum við að tryggja að svo verði áfram,“ er haft eftir Ásdísi í tilkynningu. Fyrir 6 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Akraneskaupstaður Stur­laug­ur ráðinn bæj­ar­stjóri á Akra­nesi Hugrún Hannesdóttir Diego Ný bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur samþykkt að ráða Sturlaug Haraldsson sem bæjarstjóra. Hann hefur formlega störf 19. ágúst. Sturlaugur hefur starfað við stjórnun sjávarútvegsfyrirtækja hérlendis og erlendis og er fæddur og uppalinn á Akranesi. Hann hefur leikið með knattspyrnuliði ÍA og er í hópi leikjahæstu manna félagsins. „Mér þykir gríðarlega vænt um bæinn minn og fólkið sem hér býr,“ er haft eftir Sturlaugi í tilkynningu. „Þetta er skemmtilegt tækifæri til að hafa áhrif á umhverfi mitt og ég vona sannarlega að ég geti gert eitthvað gagn.“ Sturlaugur (fremstur fyrir miðju) ásamt bæjarstjór Akraneskaupstaðar. Aðsend Fyrir 14 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Bikar: Nær Aft­ur­eld­ing að slá Stjörn­una út? Í dag hefjast 8-liða úrslit bikarkeppni karla í fótbolta er Afturelding tekur á móti Stjörnunni. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og er í beinni útsendingu á RÚV 2. Næstu leikir eru á dagskrá á morgun og hinn. Hér fylgjumst við með leiknum í lifandi leikdagsvakt og birtum mörkin strax og þau koma inn. FRÉTTAVAKT Fyrir 52 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Ekki næg vinnsla til að halda öllum í heils­árs­vinnu Samfélagsleg ábyrgð Brims er að tryggja að reksturinn á Vopnafirði gangi vel, segir framkvæmdastjóri uppsjávarsviðs. Brim segist ekki hafa næg verkefni í sveitarfélaginu til að halda 70 starfsmönnum og sagði upp 20 manns í dag. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Noregur Høiby fær ekki að vera með veikri móður sinni segir áfrýj­un­ar­dóm­stóll í Osló Áfrýjunardómstóll í Osló hefur snúið við ákvörðun um að Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs fái að vera með móður sinni sem er alvarlega veik. Dómstóllinn telur hættu á að Høiby brjóti af sér, verði honum sleppt. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti For­stjóri Kviku óskar eftir að láta af störf­um Alexander Kristjánsson Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka, hefur óskað eftir að láta af störfum um næstu áramót eftir tæplega 10 ára starf hjá bankanum. Þetta kemur fram í kauphallartilkynningu frá Kviku. Stjórn félagsins ætlar að nýta tímann fram að áramótum til að ráða nýjan forstjóra. Tveir mánuðir eru síðan fallið var frá viðræðum um sameiningu Kviku við Arion banka. Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka. RÚV / Vilhjálmur Þór Guðmundsson Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Flytja aftur út sökum myglu Fiskistofa hefur flutt aftur út úr húsnæði á Borgum á Akureyri sökum myglu. Miklar viðgerðir hafa staðið yfir á húsnæðinu undanfarin ár. Fiskistofa var nýkomin aftur inn í húsnæðið þegar mygla greindist á nýjan leik. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Matur Veit­inga­menn ósátt­ir með gjald­töku hátíða Veitingamaður segist mæta skilningsleysi af hálfu skipuleggjenda tónleika Kaleo á Þingvöllum. Litið hafi verið á matarvagna sem viðskiptavini en ekki þjónustuaðila. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Hæsti­rétt­ur tekur fyrir mál Steinu hjúkr­un­ar­fræð­ings Alexander Kristjánsson Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings. Landsréttur sakfelldi Steinu í febrúar fyrir manndráp af gáleysi fyrir að hafa árið 2021 banað sjúklingi á geðdeild Landspítalans með því að hella næringardrykk upp í hann með þeim afleiðingum að hann kafnaði. Henni var þó ekki gerð refsing. Mál Steinu hefur velkst um í dómskerfinu árum saman. Hún var fyrst sýknuð í héraðsdómi áður en Landsréttur ómerkti þann dóm og vísaði málinu aftur heim í hérað. Síðan þá hefur hún verið sakfelld í héraði og Landsrétti. Hæstiréttur telur að málið hafi verulega almenna þýðingu og féllst því á að taka málið fyrir. Steina Árnadóttir. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Svona er riðill Ís­lands á HM Í dag var dregið í riðla fyrir heimsmeistaramót karla í handbolta sem fer fram í Þýskalandi í janúar 2027. Ísland er í efsta styrkleikaflokki og er í riðli með Norður-Makedóníu, Barein og Japan. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Kald­vík í brim­róti á Aust­fjörð­um: Skil á árs­reikn­ingi hafa tafist vegna tjóns á eld­isl­öx­um Sjókvíaeldisfyrirtækið Kaldvík lenti í skakkaföllum út af vetrarsárum á eldislöxum á Austfjörðum sem hefur haft miklar afleiðingar. Fyrirtækið hefur vegna þessa ekki skilað ársreikningi og er komið með gult spjald á hlutabréfamarkaðnum í Noregi. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Hér­aðs­dóm­ur stað­fest­ir virkj­un­ar­leyfi Hvamms­virkj­un­ar Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af kröfu um að ógilda virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar. Lögmaður landeigenda, sem stefndu íslenska ríkinu og Landsvirkjun, segir að líklega verði dómnum áfrýjað. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Ís­lend­ing­ar greiða 55% hærra verð fyrir mat­vöru en íbúar ESB Verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þetta segir í umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Ástand­ið hræði­legt: 20 ára inn­viða­skuld Menntamálaráðuneytið virðist hafa slegið á frest frumvarpi sem átti að bæta útgáfu námsgagna þrátt fyrir margra ára námsgagnaskort. Þetta fer gegn áherslum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og aðgerðaáætlunum í menntamálum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Hefja und­ir­skrifta­söfn­un til að mót­mæla ákvörð­un ráð­herra Rúmlega 500 hafa skrifað undir áskorun um að Baldur sigli áfram á Breiðafirði. Forsvarsmenn krefjast þess að ákvörðun um að flytja Baldur til Vestmannaeyja verði dregin til baka eða að innviðaráðherra segi af sér. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Brim segir upp 20 starfs­mönn­um á Vopna­firði Útgerðarfélagið Brim hefur ákveðið að segja upp um 20 manns á Vopnafirði og bjóða lausasamninga í staðinn. Til stóð að fundur hæfist með starfsfólki klukkan eitt í dag. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Deilur og stríð Rússar byggja her­stöðv­ar við landa­mæri Eystra­salts­ríkja og Norð­ur­landa Rússland er að byggja upp hernaðargetu við norður- og austurjaðar NATO, samkvæmt nýrri rannsókn norræna fjölmiðla. Sérfræðingar telja uppbygginguna geta nýst í stærri átökum við NATO þegar eða ef rússneskar sveitir losna úr stríðinu í Úkraínu. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Óraun­hæf­ar vænt­ing­ar um aukna far­sæld barna Eitt af markmiðum farsældarlaga barna er að fækka áföllum og auka seiglu barna með því að bregðast við um leið og þörf er á þjónustu. Ekkert í lögunum fjallar þó um að auka þjónustu, stytta bið eða fjölga úrræðum og bæta. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Rík­is­end­ur­skoð­un telur röskun á sjúkra­flugi hafa verið nýtta til að knýja fram að­gerð­ir Ríkisendurskoðun telur að röskun á sjúkraflugi hafi verið notuð til að þrýsta á borgina að fella tré í Öskjuhlíð. Í skýrslu stofnunarinnar segir að áralangir misbrestir hafi verið á samráði og samvinnu borgarinnar, Isavia og Samgöngustofu. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Bókaði SCAM á Hró­ars­keldu eftir eina eft­ir­minni­leg­ustu tón­leika lífs síns Hljómsveitin SCAM, tvíeyki tónskáldanna Herdísar Stefánsdóttur og Sölku Valsdóttur, treður upp á hinni virtu tónlistarhátíð Hróarskeldu í sumar. Einn aðalbókari Hróarskeldu sá þær á Iceland Airwaves og bað þær strax um að spila á hátíðinni. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Tvö­falda af­kasta­getu Sæ­braut­ar með stokki Um 7.500 bílar geta keyrt um Sæbraut þegar hún er komin í stokk. Það er tvöfalt á við núverandi afkastagetu götunnar. Ráðgert er að um fimm þúsund manns á klukkustund fari um skiptistöð Borgarlínu sem á að gera ofan á stokknum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Fresta dóms­upp­sögu yfir manni sem sak­að­ur er um að þvinga eig­in­konu sína í vændi Dómsstóll í Svíþjóð hefur frestað því að kveða upp dóm yfir manni sem sakaður er um að hafa þvingað eiginkonu sína í vændi með yfir hundrað vændiskaupendum. Málið hefur vakið mikinn óhug í Svíþjóð og er líkt við mál frönsku konunnar Gisele Pelicot. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Heim­ilda­notk­un gervi­greind­ar ábóta­vant í 43% til­fella Dósent í tölvunarfræði segir úttekt sérfræðinga hafa leitt í ljós að í 43% tilfella hafi heimildanotkun gervigreindar um málefni sem tengjast þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst verið ófullnægjandi. Spjallmennin greiði þó fyrir aðgang að upplýsingum. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Þetta er nýtt á HM í ár Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst á morgun. Þetta er 23. heimsmeistaramótið í karlaflokki og í ár verða ýmsar nýjungar. Hér er þær helstu. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Norður-Írland Missti annað augað í árás­inni í Belf­ast í fyrra­kvöld Maðurinn sem varð fyrir hrottalegri árás í Belfast á Norður-Írlandi, missti annað augað. Þetta kom fram í morgun, þegar árásarmaðurinn, Hadi Alodid sem er frá Súdan, kom fyrir dómara í Belfast. Óeirðir hafa brotist út í kjölfar árásarinnar. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Sig­ur­jón Sig­hvats­son heiðr­að­ur á kvik­mynda­há­tíð­inni í Locarno Kvikmynda- og sjónvarpsframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun á stórri alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Sviss í ágúst. Tvær kvikmyndir í hans framleiðslu verða sýndar á hátíðinni honum til heiðurs. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Gríð­ar­legt hags­muna­mál fyrir ríki og sveit­ar­fé­lög að bál­farar­hlut­f

Share this article