Innlent | mbl | 9.6.2026 | 21:43 Hlekktist á í lendingu á Egilsstöðum Vélin var að hefja ferð sem átti að vera tilraun til heimsmets í flugi yfir Norður-Atlantshaf. Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson Setja bókamerki Lítilli flugvél hlekktist á í lendingu á Egilsstaðaflugvelli um klukkan þrjú í dag. Eftir því sem næst verður komist var flugmaðurinn einn í vélinni og slapp án meiðsla. Vélin var að hefja ferð sem átti að vera tilraun til heimsmets í flugi yfir Norður-Atlantshaf. Þetta kemur fram í frétt hjá Austurfrétt og samkvæmt upplýsingum frá Isavia hlekktist vélinni á í lendingu með þeim afleiðingum að hjól undir öðrum væng hennar brotnaði. Opna brautina að nýju Vélin stoppaði utarlega á brautinni sem þurfti að loka í rúma tvo tíma þar á eftir. Það varð til þess að áætlunarflugi Icelandair frá Egilsstöðum seinkaði um rúma tvo tíma. Flugvélin er af gerðinni Cessna 140 flugvél sem framleidd var árið 1946 og var að koma frá Færeyjum. Um borð var danskur flugmaður sem slapp án meiðsla. Rannsóknarnefnd samgönguslysa var strax gert viðvart um málið. Eftir að hafa safnað helstu gögnum var gefið leyfi til að fjarlægja vélina af flugbrautinni og opna hana að nýju. Heimsmet í tilefni 80 ára afmælis Eftir því sem næst verður komist var vélin í flugi þar sem reyna átti að setja heimsmet í að fljúga yfir Norður-Atlantshaf frá Evrópu til Norður-Ameríku í tilefni af 80 ára afmæli hennar. Metið fólst í því að vélin yrði elsta og léttasta einshreyfils vélin sem flogið hefði þessa leið. Ferðin hófst í Danmörku um hvítasunnuna og átti að ljúka á stórri flughátíð í Chicago um miðjan ágúst. Nokkrar vikur eru síðan vélin kom úr ástandsskoðun þar sem lofthæfnisskírteini hennar til næstu þriggja ára var staðfest. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gæti farið frá Fram Manchester City bauð yfir 17 milljarða Getur ekkert sagt um tímasetningu þingloka Vísindamenn frá NASA rannsaka almyrkvann Messi tjáir sig um samskiptin við Daníel Umræðan Þjóðin þarf meira en hálfa gjaldmiðlaskýrslu Evran og áhættan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Missti auga í árásinni í Belfast Enn einn plásturinn á „opið blæðandi sár“ Svört skýrsla: Farsældarlögin fá falleinkunn Segist ekkert hafa vitað um glæpi Epsteins Mest lesið Í gær Í vikunni Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Telur fjöldagjaldþrot yfirvofandi Andlát: Tryggvi Gíslason Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Hafna hugmyndum um undanþágur Einn banki bjargaði 258 milljónum í fyrra Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Andlát: Þorsteinn Ólafsson Spáir bongóblíðu í höfuðborginni á föstudaginn „Mér hefur bara aldrei liðið betur“ Ráðuneytið nýtur lítillar virðingar Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar Safnað fyrir fjölskyldu Bergs Ottós Malbikað yfir Íslandsmet ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Fórnarlamb netsvika þarf að borga brúsann Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Boðið í heimsókn eftir þuklið Hætta rannsókn vegna þriggja barna eftir misskilning Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Íslendings saknað á Taílandi Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn SS hyggst hætta halal-slátrunum Nýjast á mbl.is » Gæti farið frá Fram Manchester City bauð yfir 17 milljarða Getur ekkert sagt um tímasetningu þingloka Vísindamenn frá NASA rannsaka almyrkvann Messi tjáir sig um samskiptin við Daníel Umræðan Þjóðin þarf meira en hálfa gjaldmiðlaskýrslu Evran og áhættan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Svört skýrsla: Farsældarlögin fá falleinkunn Evran ekki töfralausn Lögregla rannsakar líkamsárás barns í Hlíðunum Mál Steinu hjúkrunarfræðings fer fyrir Hæstarétt Mest lesið Í gær Í vikunni Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Telur fjöldagjaldþrot yfirvofandi Andlát: Tryggvi Gíslason Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Hafna hugmyndum um undanþágur Einn banki bjargaði 258 milljónum í fyrra Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Andlát: Þorsteinn Ólafsson Spáir bongóblíðu í höfuðborginni á föstudaginn „Mér hefur bara aldrei liðið betur“ Ráðuneytið nýtur lítillar virðingar Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar Safnað fyrir fjölskyldu Bergs Ottós Malbikað yfir Íslandsmet ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Fórnarlamb netsvika þarf að borga brúsann Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Boðið í heimsókn eftir þuklið Hætta rannsókn vegna þriggja barna eftir misskilning Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Íslendings saknað á Taílandi Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn SS hyggst hætta halal-slátrunum