Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hvalveiðimótmælendur dæmdar til sektar

Read Full Article →

Tvær konur, Sahar Babaei og Elissa May Phillips, voru í dag sakfelldar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa farið í heimildarleysi um borð í hvalskip í Reykjavíkurhöfn í september 2023 og neitað að yfirgefa skipið. Konurnar voru að mótmæla hvalveiðum. Þær báru fyrir dómi að aðgerðirnar hefðu verið síðasta úrræðið til að koma í veg fyrir hvalveiðarnar. Ákærurnar voru vegna húsbrots auk þess sem þær höfðu ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu um að yfirgefa skipin Hval 8 og Hval 9. Þær fóru upp í útsýnistunnur skipanna og voru þar í rúman sólarhring áður en lögreglumenn náðu að fjarlægja þær. Konurnar neituðu sök og báru að þær hafi verið að nýta sér tjáningarfrelsi. Mótmælin hafi ekki valdið tjóni og engin þjóðfélagsleg nauðsyn hafi verið að takmarka þau. Vísuðu þær meðal annars til Mannréttindadómstóls Evrópu um að friðsamleg mótmæli ættu að njóta verndar þó að þau fari á svig við lög. Í dómnum segir að enginn vafi leiki á því að háttsemi kvennanna teljist húsbrot. Þær hafi torveldað eiganda skipanna, Hval hf., að „hagnýta eigur sínar“. Þá leiki enginn vafi á því að konurnar hafi ætlað sér að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu. Hvað varðar vísan til tjáningarfrelsis segir dómurinn að enginn vafi leiki á rétti kvennanna til að mótmæla hvalveiðum friðsamlega. Hins vegar megi setja tjáningarfrelsi skorður vegna réttinda annarra. Því voru þær sakfelldar og fengu hvor um sig sekt að upphæð 200 þúsund krónur. Auk þess þurfa þær að greiða málsvarnarlaun verjenda sinna.

Share this article