Þótt verð á Brent-hráolíu, helsta alþjóðlega viðmiðunarverðið á olíumarkaði, hafi ekki tvöfaldast frá því átök hófust í MiðAusturlöndum hefur verð á þotueldsneyti gert það. Icelandair kaupir ekki hráolíu heldur fullunnið flugvélaeldsneyti. Verðið á því ræðst ekki aðeins af olíuverði heldur líka af hreinsunargetu, birgðastöðu, flutningsleiðum, eftirspurn flugfélaga og áhættuálagi. Af þeim sökum getur verðið sveiflast og hækkað mun meira en heimsmarkaðsverð á olíu. Verðvísirinn JET1NECC, sem mælir gangverð á þotueldsneyti í Bandaríkjadölum á tonn, var að meðaltali um 754 í janúar og febrúar. Í apríl fór verðið hæst í 1.838 dali á tonn. Það samsvarar um 144% hækkun. Verðið hefur lækkað töluvert á síðustu vikum en er enn langt yfir því sem Icelandair bjó við í upphafi árs. Síðastliðinn föstudag stóð gangverðið í 1.136,5 dölum, en það er um 51% yfir meðalverði janúar og febrúar og um 57% yfir meðalverði ársins 2025. Þessi hækkun kemur á viðkvæmum tíma er Icelandair stendur í harðri kjaradeilu við flugmenn, en krónan hefur styrkt sig töluvert gagnvart Bandaríkjadal samhliða yfirvofandi hækkun á ETS-gjöldum. Verð á þotueldsneyti er ekki birt opinberlega en bankarnir hafa til að mynda aðgang að því í gegnum Bloomberg Terminal. Að sögn Ívars S. Kristinssonar, fjármálastjóra Icelandair, hefur þotueldsneytisverð verið að sveiflast á bilinu 1.150 til 1.200 dali á tonn síðustu vikur. Í samtali við Viðskiptablaðið segir hann að framvirk verð inn í fyrsta fjórðung næsta árs séu róast frá mestu sveiflunum. Verðið sé þó engu að síður langt yfir þeim gildum sem sáust áður en átökin hófust. Samkvæmt greiningu Viðskiptablaðsins sem byggð er á sviðsmyndum Akkurs getur aukni eldsneytiskostnaðurinn náð allt að tíu milljörðum á árinu. Áskrifendur geta lesið ítarlega greiningu Viðskiptablaðsins um Icelandair hér.