Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íranar gerðu árásir á bandarískar herstöðvar — Bandaríkjaher hefur gert hlé á árásum

Read Full Article →

SAMANTEKT Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar gerðu árásir á bandarískar herstöðvar — Bandaríkjaher hefur gert hlé á árásum Bandaríkjaher hóf árásir á Íran að nýju í gærkvöld en segir þeim lokið að sinni Bandaríkjaforseti segir árásirnar vegna tafa Írana á gerð samkomulags um stríðslok. Bandaríkjaher segir árásirnar í varnarskyni fyrir yfirgangs Írana við Persaflóa. Írönsk hernaðaryfirvöld hótuðu árásum á öll skip sem sigla um Hormússund. Íranar segjast hafa gert árás á höfuðstöðvar 5. flota Bandaríkjanna í Barein og fleiri herstöðvar í nágrannaríkjunum. Lofthelgi Kúveit var lokað um tíma vegna árása frá Íran. Markús Þ. Þórhallsson 10. júní 2026 kl. 23:53, uppfært 11. júní 2026 kl. 05:53 A A A Daglegt líf í Teheran. EPA – ABEDIN TAHERKENAREH 11. júní 2026 kl. 5:40 Fréttavakt lokið í bili Bandaríkjaher hóf árásir á Íran að nýju í gærkvöld, sem svarað var með árásum á bandarískar herstöðvar í nágrannaríkjunum. Íranski byltingarvörðurinn kveðst í hefndarskyni hafa eyðilagt stjórnstöð Bandaríkjahers í Jórdaníu og grandað þar fjölda orrustuþotna. Hann gerði einnig árásir á miðstöð fimmta flota Bandaríkjahers í Barein, sem gegnir lykilhlutverki í viðveru hans í Mið-Austurlöndum. Miðstjórn Bandaríkjahers, CENTCOM, segir hvorki hafa orðið tjón á mannvirkjum né mönnum þar. Hún tilkynnti um miðja nótt að atlögum að Íran hefði linnt um sinn. Við látum þessari fréttavakt lokið að sinni en áfram verður fylgst með framvindu mála í Mið-Austurlöndum á miðlum RÚV. Kærar þakkir fyrir samfylgdina. Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar gerðu árásir á banda­rísk­ar her­stöðv­ar — Banda­ríkja­her hefur gert hlé á árásum SAMANTEKT 11. júní 2026 kl. 4:14 Byltingarvörðurinn segist hafa eyðilagt stjórnstöð og orrustuþotur Bandaríkjahers Íranski byltingarvörðurinn segist hafa skotið tólf langdrægum eldflaugum að stjórnstöð Bandaríkjahers í Jórdaníu og eyðilagt hana og fjölda orrustuþotna. „Þessi árás var í hefndarskyni fyrir harða atgöngu fjandmannsins,“ hefur Tasnim fréttaveitan eftir byltingarverðinum. 11. júní 2026 kl. 3:08 Lofthelginni yfir Kúveit lokað tímabundið vegna árása Stjórnvöld í Kúveit hafa ákveðið að loka fyrir umferð um lofthelgi landsins tímabundið eftir árásir Íranshers. Her landsins tilkynnti áður að loftvarnarkerfi landsins hefðu brugðist við loftárásum, samkvæmt hefðbundnum vinnureglum, eins og það er orðað í tilkynningu á X. Almenningur var hvattur til að fara eftir öryggisreglum útgefnum af yfirvöldum og fylgjast með tilkynningum frá þeim. 11. júní 2026 kl. 2:46 Bandaríkjaher segist hættur árásum þessa nóttina Árásum á Íran hefur verið hætt þessa nóttina að sögn miðstjórnar Bandaríkjahers í Mið-Austurlöndum. Stríðsmálaráðherrann Pete Hegseth boðaði árásirnar á Íran ásamt Donald Trump forseta. EPA / CRISTOBAL HERRERA-ULASHKEVICH Herinn hóf í kvöld það sem hann kallaði sjálfsvarnarárásir gegn nokkrum hernaðarlegum skotmörkum víðs vegar um Íran, eftirlits-, loftvarna- og samskiptakerfum. Íransher kveðst á móti hafa lagt til atlögu að Barein og Kúveit þar sem Bandaríkin eru með herstöðvar. Staðfest er að drónaárás var gerð á höfuðstöðvar 5. flota Bandaríkjahers í Barein. Íranski byltingarvörðurinn segist hafa gert árásir á 18 skotmörk samkvæmt fréttum þarlendra miðla. 11. júní 2026 kl. 1:15 Íranar gerðu árás á höfuðstöðvar 5. flota Bandaríkjanna í Barein Íransher gerði drónaárásir á höfuðstöðvar fimmta flota bandaríska sjóhersins í Barein. Íranskar fréttastöðvar segja árásunum hafa verið beint að samskiptakerfum flotans, ratsjárstöðvum og Patriot-eldflaugavarnarkerfum. Innanríkisráðuneyti Barein hvetur íbúa til að halda stillingu og leita öruggs skjóls. Miðstjórn Bandaríkjahers segir að tekist hafi að granda flestum flygildanna og hvorki hafi orðið manntjón né alvarlegar skemmdir. Fimmti flotinn gegnir lykilhlutverki í hernaðarlegri viðveru Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og gætir mikilvægra siglingaleiða fyrir olíu og gas, á borð við Hormússund og Súez-skurð. 11. júní 2026 kl. 0:34 Sprengingar hafa kveðið við víða um Íran Bandaríkjaher hóf árásir á Íran fjórða kvöldið í röð og sprengingar hafa kveðið við víðsvegar um landið, meðal annars nærri höfuðborginni Teheran, eynni Qeshm og ferðamannaeyjunni Kish í Persaflóa. Íranskir miðlar segja sprengjugnýinn þar tilkominn vegna átaka á flóanum. Bandaríkjaher segir af og frá að Hormússund sé lokað, líkt og Íranar staðhæfa. Fjöldi skipa hafi siglt þar um í kvöld. Donald Trump forseti segir árásum á Íran linna senn. 11. júní 2026 kl. 0:20 Íranskir ráðamenn segjast ekki hafa beðið Bandaríkjaforseta að hætta árásum Leiðtogar Írans segja af og frá að þeir hafi beðið Donald Trump Bandaríkjaforseta að hætta árásum á landið, líkt og hann staðhæfði í kvöld. Íranskir fréttamiðlar greina frá þessu. Bandaríkjaher hóf árásir á Íran fjórða kvöldið í röð og sprengingar hafa kveðið við víðsvegar um landið, meðal annars nærri höfuðborginni Teheran og ferðamannaeyjunni Kish í Persaflóa. 10. júní 2026 kl. 23:57 Íranar hóta að skjóta á skip á Hormússundi Donald Trump segir Írana hafa Bandaríkin að fíflum. EPA / AARON SCHWARTZ / POOL Hernaðaryfirvöld í Íran hótar að ráðast að öllum skipum sem siglt verður um Hormússund og hefur þegar skotið að tveimur sem það reyndu. Íranskri miðlar hafa eftir yfirstjórn sjóhersins að skipin hafi verið á ólölegri för. Í yfirlýsingu segir að lokað sé fyrir alla umferð um sundið eftir að Bandaríkjaher hóf loftárásir á fjölda skotmarka í Íran að nýju. Miðstjórn hersins í Mið-Austurlöndum sagði árásirnar í varnarskyni vegna síendurtekins og órættmæts yfirgangs Íranashers. Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði að gera harða orrahríð að Íran vegna tafa á viðræðum um endalok stríðsins sem hófst fyrir meira en þremur mánuðum. Trump sagði Írana reyna að hafa Bandaríkin að fíflum og stríðsmálaráðherrann Pete Hegseth hótaði hörðum atlögum. Bandaríkin Donald Trump Bandaríkjaforseti Hormússund Pete Hegseth Íran Vinnureglur um fréttir og dagskrárefni RÚV er óháð hagsmunum stjórnmála, viðskipta, opinberra aðila og einkaaðila. Fréttaflutningur og dagskrárgerð okkar byggist á trúverðugleika og óhlutdrægni. Starfsfólk RÚV starfar samkvæmt vinnureglum um fréttir og dagskrárefni. Meira frá RÚV Dómstólar Að­al­með­ferð hafin í Edi­tion-málinu Alþingi Sam­komu­lag um þing­lok á loka­metr­un­um Mannlíf Verður sendi­ráðs­prest­ur í Kaup­manna­höfn: „En þú áttir að jarða mig!“ Miðausturlönd Elds­neyt­is­verð lækkar vegna frið­ar­vona Evrópuglugginn „Made in EU“ þýðir líka „fram­leitt á Ís­landi“ segir Evr­ópu­sam­band­ið HM í fótbolta 2026 Í dag: HM og bik­ar­veisla Viðskipti Musk orðinn fyrsti billj­óna­mær­ing­ur­inn eftir frum­út­boð SpaceX Umhverfismál Hafnar mál­flutn­ingi Land­vernd­ar um mengun í Varmá Veður Hitinn gæti farið í 20 stig í fyrsta skipti í sumar Mest lesið á RÚV.is 1 Stríð í Mið-Austurlöndum Ólík skila­boð um frið­ar­samn­ing frá Íran og Banda­ríkj­un­um 2 Mannlíf „Þegar ég segi vinum mínum frá þessu er það bara: Ha?“ 3 HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Mexíkó vann í þriggja rauðra spjalda leik 4 Höfuðborgarsvæðið Rýmdu skrif­stofu Hag­kaups vegna hót­un­ar 5 HM í fótbolta 2026 Svona spá sér­fræð­ing­arn­ir HM 2026 6 Lögreglumál Al­þjóð­leg lög­reglu­að­gerð: Ís­lensk­ir inn­við­ir not­að­ir í tengsl­um við pen­inga­þvætti Fleiri erlendar fréttir Deilur og stríð Neyð­ar­birgð­ir á þrotum og stefn­ir í vanda Miðausturlönd Elds­neyt­is­verð lækkar vegna frið­ar­vona Evrópuglugginn „Made in EU“ þýðir líka „fram­leitt á Ís­landi“ segir Evr­ópu­sam­band­ið Stríð í Mið-Austurlöndum Banda­ríkja­her skaut niður tvo ír­anska dróna Suður-Kórea Fyrr­ver­andi for­seti Suður-Kóreu dæmdur í 30 ára fang­elsi Taíland Elsta dóttir Taílands­kon­ungs er látin eftir löng veik­indi Viðskipti Musk orðinn fyrsti billj­óna­mær­ing­ur­inn eftir frum­út­boð SpaceX Veður Met­hiti í júní á Suð­ur­skauts­land­inu Aðrir eru að lesa núna 1 Umhverfismál Hafnar mál­flutn­ingi Land­vernd­ar um mengun í Varmá 2 Mannlíf Verður sendi­ráðs­prest­ur í Kaup­manna­höfn: „En þú áttir að jarða mig!“ 3 HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Suður-Kórea – Tékk­land 4 Viðskipti Musk orðinn fyrsti billj­óna­mær­ing­ur­inn eftir frum­út­boð SpaceX 5 Ferðalög Líf­kenna­skrán­ing far­þega í Leifs­stöð veldur töfum en eykur öryggi 6 Evrópuglugginn „Made in EU“ þýðir líka „fram­leitt á Ís­landi“ segir Evr­ópu­sam­band­ið

Share this article