Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Takmarka hækkanir við 2,5%

Read Full Article →

Bæjarráð Sveitarfélagsins Árborgar hefur samþykkt að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 verði miðað við að almennar hækkanir gjaldskráa hjá A-hluta sveitarfélagsins fari ekki fram úr 2,5%, sem er verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Ákvörðunin var tekin á fundi bæjarráðs í síðustu viku þar sem tekið var fyrir minnisblað bæjarstjóra um viðmið í gjaldskrám sveitarfélagsins í fjárhagsáætlun næsta árs. „Bæjarráð skorar jafnframt á bæði ríkisvaldið og önnur sveitarfélög að gera slíkt hið sama með það að markmiði að opinberir aðilar gefi skýr skilaboð um að ná megi niður verðbólgu í landinu,“ segir í fundargerð bæjarráðs. „Bæjarráð leggur áherslu á að með ákvörðuninni sé Svf. Árborg að sýna ábyrgð með því að leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi og létta undir með íbúum og fyrirtækjum í Árborg.“ Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 52,8% atkvæða í sveitarstjórnarkosningum í síðasta mánuði og er því með hreinan meirihluta. Bragi Bjarnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg, er bæjarstjóri sveitarfélagsins. Sjá einnig Tak­marka hækkanir við 2,5% mark­mið SÍ

Share this article