Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að blása til sérstaks bókamarkaðar í Valhöll við Háaleitisbraut 1 vegna fyrirhugaðra flutninga höfuðstöðva Sjálfstæðisflokksins úr Valhöll í tímabundið húsnæði í Kringlunni 5. Bókamarkaðurinn verður haldinn 15. og 16. júní nk. milli 10:00 og 18:00 en bækurnar skipta mörgum hundruðum og fylla nú stærsta sal Valhallar. Í Valhöll hefur á liðnum áratugum safnast saman umfangsmikið bókasafn sem endurspeglar að mörgu leyti þá sögu, hugsjónir og samfélagsumræðu sem mótað hafa starf flokksins og íslenskt þjóðlíf undanfarna áratugi. „Þar kennir ýmissa grasa og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem um er að ræða ævisögur, sagnfræðirit, hugmyndafræðileg rit, erlendar fræðibækur eða fjölmörg önnur verk sem varpa ljósi á íslenskt þjóðlíf, stjórnmál og sögu,“ segir í tilkynningu.