Listafólk, rannsakendur og fulltrúar stjórnvalda komu saman í gamla barnaskólanum á Eskifirði í dag til að ræða hvernig hægt sé að byggja upp sterkara starfsumhverfi menningar og lista utan höfuðborgarsvæðisins. Ráðstefnan Skapandi Austurland var vel sótt að sögn bæjarstjóra Fjarðabyggðar. „Þetta var virkilega áhugaverð ráðstefna og mjög góð þátttaka,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Skapandi Austurland fjallar um stöðu, tækifæri og framtíð lista og menningar á landsbyggðinni. Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, flutti opnunarávarp og Jóna Árný var ráðstefnustjóri. Hún segir þátttakendur hafa átt góð samtöl um hvernig megi styðja og efla áframhaldandi menningarstarf á Austurlandi. Vinna að heildstæðri menningarstefnu fyrir Austurland sé á lokametrunum. „Hún verður grunnurinn á því hvernig fólk sér fyrir sér að flétta saman ólíkar greinar og ólík tækifæri til að skapa eitthvað nýtt.“