Ungliðahreyfing Viðreisnar hélt landsþing sitt um helgina. Það vakti athygli hrafnanna að þar veitti Sverrir Páll Einarsson, formaður hreyfingarinnar, Ungum Evrópusinnum verðlaun fyrir að sporna gegn upplýsingaóreiðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðlögunarferli Íslands að ESB. Með öðrum orðum: félag sem vill að Ísland gangi í ESB verðlaunar annað félag sem vill að Ísland gangi í ESB fyrir að vera sammála því. Hröfnunum þykir þetta nokkuð lýsandi fyrir þróun Evrópuumræðunnar. Margir furðuðu sig sömuleiðis á því að Sigríður Hagalín Björnsdóttir byði áhugafólki um ESB-aðild í síðasta Silfur sumarsins á mánudag. Þar á meðal var Stefán Haukur Jóhannesson, fyrrverandi aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum 2009–2013, sem hefur sagt að tvö markmið hafi lengi verið honum hugleikin: að tryggja beint flug til Brussel og koma Íslandi í ESB. Að þættinum loknum flykktust stuðningsmenn aðildar á samfélagsmiðla og lofuðu Silfrið fyrir vandaða og yfirvegaða umræðu. Eins og sagt hefur verið: Þar sem allir hugsa eins hugsar enginn mikið. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 10. júní 2026.