- What: Analysis of Iceland's economic position in the EU
- Impact: Economic policy discussion
Innlent | Morgunblaðið | 12.6.2026 | 8:00 Aðsend grein: Efnahagsleg hnignun ESB Ragnar Árnason Ómar Óskarsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Sú var tíðin að Evrópusambandið (ESB) var efnahagslegt stórveldi á borð við Bandaríkin og miklu ríkara en Kína. Upp úr 1990, um það leyti sem Ísland var að semja um aðild að Evrópska efnahagssvæðinu (EES), var hlutdeild ESB í heimsframleiðslunni samkvæmt hagtölum Alþjóðabankans um 28%. Þessi hlutdeild ESB í heimsframleiðslunni var þá ívið meiri en Bandaríkjanna og hátt í tvöföld hlutdeild Kína. ESB hefur dregist aftur úr Síðan þá hefur efnahagsleg frammistaða ESB verið slök miðað við aðrar þjóðir heims að jafnaði og sambandið verið að dragast aftur úr. Samkvæmt hagtölum Alþjóðabankans um verga landsframleiðslu ríkja heims (mæld í USD, sjá nánar www.mbl.is/go/pvh5m ) hefur hlutdeild ESB í vergri heimsframleiðslu fallið úr 28,4% árið 1990 í 17,6% árið 2024 og er nú þriðjungi minni er hlutdeild Bandaríkjanna og svipuð hlutdeild Kína. Þróun hlutdeildar ESB í heimsframleiðslunni er nánar lýst í meðfylgjandi línuriti. Rétt er að taka það fram að aðrir mælikvarðar á landsframleiðslu (t.d. á föstu verðlagi eða kaupmáttarjafngildi) sýna hliðstæðan samdrátt. Eins og línuritið ber með sér hefur þessi samdráttur í hlutdeild ESB í heimsframleiðslunni verið nokkuð samfelldur frá árinu 1990. Þó má sjá skammvinnt ris um 2004 er tíu ný ríki urðu aðilar að ESB. Orsakir samdráttarins Það er ekki svo að hlutdeild vestrænna landa í heimsframleiðslunni hafi almennt verið að dragast saman á umræddu tímabili. Þannig var hlutdeild BNA í heimsframleiðslunni mæld með sama hætti nánast óbreytt milli áranna 1990 og 2024 eða um 26% bæði árin. Hlutdeild Íslands í heimsframleiðslunni óx á sama tímabili. Nei, ástæðan fyrir því að efnahagur ríkja ESB hefur rýrnað miðað við aðrar þjóðir er sú að í ESB hefur hagvöxtur verið slakari en í öðrum vestrænum löndum og miklu minni en í heiminum að meðaltali. Trúverðugar orsakir fyrir þessum litla hagvexti í ESB hafa verið settar fram. Á árinu 2023 fékk framkvæmdastjórn ESB tvo dygga ESB-sinna, fyrrverandi ítölsku forsætisráðherrana Mario Draghi og Enrico Letta, til að grafast fyrir um orsakir efnahagslegrar stöðnunar ESB. Í skýrslum sínum (sjá www.mbl.is/go/f6jcx og www.mbl.is/go/uqau9 ), sem fram komu á árinu 2024, töldu þeir orsakirnar mega finna í innra skipulagi ESB. Tiltóku þeir sérstaklega þungt reglugerðafargan og skort á skilvirkni markaða í sambandinu. Við þessar orsakir myndu margir bæta óhóflegri miðstýringu ESB, verndarstefnu atvinnuvega og vanhugsaðri forgangsröðun í pólitískri stefnumörkun, ekki síst orkumálum, þótt þeir Draghi og Letta hafi ekki treyst sér til að nefna það. Viðskiptahindranir ESB Umhverfis ESB hefur verið reistur virkisgarður viðskiptahindrana til að vernda atvinnuvegi sem með ári hverju verða minna samkeppnishæfir í heiminum. Hafa Íslendingar t.d. fengið að kenna á þessari verndarstefnu með nýlegum sértollum ESB á járnblendi, þvert gegn ákvæðum EES-samningsins. Samt er aðeins hluti þessara viðskiptahindrana hefðbundnir tollar. Þorri þeirra viðskiptahindrana við umheiminn sem ESB hefur komið sér upp eru svokallaðar tæknilegar hindranir af hinu fjölbreyttasta tagi. Það er því alls ekki svo að með inngöngu í ESB verði alþjóðleg viðskipti Íslands frjálsari en áður. Þvert á móti yrði Ísland þá lokað inni í virkisgarði viðskiptahindrana ESB. ESB myndi fara með alla viðskiptasamninga við ríki utan bandalagsins. Þar með féllu úr gildi viðskiptasamningar Íslands við önnur ríki, þeirra á meðal fríverslunarsamningur landsins við Kína og önnur hraðvaxandi efnahagsveldi heimsins. Aðild að ESB Með inngöngu í ESB myndi Ísland lokast inni í viðskiptablokk sem nemur 18% af heimshagkerfinu og fer smækkandi, en gæfi eftir frelsi sitt til að stunda viðskipti við hin 82% af heimshagkerfinu. Jafnframt myndi Ísland gefa frá sér stóran hluta af eigin hagstjórn en undirgangast í staðinn þá efnahagsskipan sem að sögn eigin sérfræðinga ESB (þeirra Draghis og Letta) á ríkan þátt í slökum hagvexti ESB og því að hlutdeild bandalagsins í heimsframleiðslunni hefur stórlega dregist saman undanfarna áratugi. Ragnar Árnason, prófessor emeritus. Hlutdeild ESB í heimsframleiðslu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sex flugferðum aflýst í dag Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Lausnin er ekki meiri skattar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Elskuð, virt og dáð af fólki um allt konungsríkið“ Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Sex flugferðum aflýst í dag Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Sex flugferðum aflýst í dag Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Lausnin er ekki meiri skattar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Veðurfyrirbærið El Niño er hafið Sex flugferðum aflýst í dag Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna