Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Eldsneytisverð lækkar vegna friðarvona

  • What: Oil prices drop due to geopolitical tensions
  • Impact: Global energy market fluctuations
Read Full Article →

Olíuverð lækkaði á heimsmörkuðum í dag. Ástæðan er aukin bjartsýni og vonir um frið við Persaflóa. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, boðaði í gær stórfelldar árásir á Íran en hætti síðan við. Trump sagði þá að sátt hefði náðst milli Bandaríkjanna og Írans en Íranir gengu heldur skemur í sínum yfirlýsingum. Olíuverð lækkaði um fimm prósent á Brent-markaðnum fyrir Norðursjávarolíu og jafn mikið á West Texas Intermediate-markaðnum. Verðið er tæpir 86 dollarar fyrir fatið á Brent-markaðnum en rúmir 83 hjá West Texas. Vonir hafa glæðst um að Hormússund verði opnað fyrir umferð flutningaskipa. Eldsneytisverð hefur hækkað eftir að stríð hófst milli Bandaríkjanna og Írans.AP / David Zalubowski

Share this article