Innlent | Morgunblaðið | 12.6.2026 | 10:32 Samfélag sem gaman er að tilheyra Flúðir eru einkar gróðursæll staður. Rannsóknir og reynsla staðfesta að slíkar aðstæður eru góðar fyrir sál og sinni. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Fjölbreytt dagskrá verður í Hrunamannahreppi um helgina, þar sem þess verður minnst að sveitarfélagið er orðið 1150 ára. Frá landnámi Íslands hefur hreppurinn verið skýrt landfræðilega afmarkaður; það er svæðið í Árnessýslu sem er milli Hvítár og Stóru-Laxár og þaðan inn til jökla. Svo vítt sem vötn deila, segir um þetta í Landnámubók. Landnemar í sveitinni voru bræðurnir Már og Bröndólfur Naddoddssynir og kunnugir telja að svæðið hafi verið orðið fullnumið árið 876. Því samkvæmt er 1150 ára afmælið haldið hátíðlegt nú, í sumarbyrjun þegar allt er að komast í blóma. Íbúar í Hrunamannahreppi í dag eru 993 og þar af býr um það bil helmingurinn á Flúðum. Það vantar bara herslumuninn á að íbúatalan nái þúsundinu, sem verður mikill áfangi að ná. Flúðir eru einn helsti staður grænmetisframleiðslu á landinu. Þessi mynd var tekin sl. sumar þegar verið var að taka upp blómkál. mbl.is/Eggert Jóhannesson Samheldni í blíðu og stríðu „Ég hef stundum sagt að Hrunamannahreppur sé afar þéttbýl dreifbýlissveit,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir sveitarstjóri. „Á Flúðum er stór og vaxandi byggð, en þegar komið er út í sveitina eru flestir bæir í ekki meira en 10-15 mínútna akstursfjarlægð frá þorpinu, þar sem alla helstu þjónustu sem samfélag nútímans kallar eftir er að finna. Hér er mikil samheldni meðal íbúa sem standa saman þegar áföll verða og þeir eru einnig sammála um áframhaldandi uppbyggingu. Stóra verkefnið hjá sveitarfélaginu nú er vatnsveitan, en fyrir dyrum stendur að leggja vatnsleiðslu frá uppsprettulindinni Blákvísl sem er inni á afrétti og niður í byggð. Þannig ætlum við að fá allt að 100 sekúndulítra af köldu vatni, en að fara í þetta verkefni er mjög brýnt þó að kostnaður upp á tæpan milljarð króna verði svolítill baggi.“ Óskar Hafsteinn Óskarsson Veitingar af gnægtaborði Formleg afmælisdagskrá í Hrunamannahreppi hefst á laugardagsmorgun, 13. júní, þegar sveitarstjórn og afmælisnefnd taka á móti forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur, og sýna henni valda staði á Flúðum. Kl. 13:30 hefst svo formleg hátíðardagskrá í félagsheimili Hrunamanna með ávörpum. Eitt af þeim flytur sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, sóknarprestur í Hruna, sem ræða mun um kosti þess að vera Hrunamaður. Að dagskrá lokinni verður gestum og gangandi boðið að gæða sér á fjölbreyttum veitingum af gnægtaborði Hrunamannahrepps; sveit sem er mikil matarkista enda er landbúnaður – ásamt ferðaþjónustu og iðnaði – hryggjarstykkið í atvinnulífi sveitarinnar. Mikið um mannamót og glaða daga Af öðru má nefna að afhjúpað verður söguskilti í miðbæ Flúða og haldnir verða tónleikar svo eitthvað sé nefnt. Þá verður guðsþjónusta í litlu kirkjunni í Tungufelli, sem er efsti bær sveitarinnar og stendur inn við hálendisbrúnina. Aldís Hafsteinsdóttir „Kostir þess að vera Hrunamaður eru ótvíræðir og afar margir,“ segir sr. Óskar Hafsteinn um efni erindis síns sem vísað er til hér að framan. „Hér stendur fólk saman um brýn viðfangsefni og gengur í þau mál sem þarf og leysir. Svo er líka áberandi að hér er sífellt verið að efna til mannamóta þar sem fólk gerir sér glaðan dag. Reiðtúrar, réttardagur, tónleikar, uppskeruhátíð, hrútasýningar og hjónaball. Þetta og margt annað er hér í sveitinni; samfélag sem er gaman að taka þátt í og tilheyra.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Argentínumaðurinn að fá stórt starf Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Efnahagsleg hnignun ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íhuguðu að kasta sér fram af brú Hafa fengið hærri reikninga Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Hagræðingarhópur kynntur Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Subway auglýsir verð í evrum Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Argentínumaðurinn að fá stórt starf Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Efnahagsleg hnignun ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Sendiráðið bregst við brigslunum Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Ítrekar gagnrýnina: „algjörlega ótímabær“ Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Subway auglýsir verð í evrum Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna