Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Pistill: Borg sem mætir þörfum

Read Full Article →

Innlent | Sunnudagsblað | 13.6.2026 | 7:00 Pistill: Borg sem mætir þörfum Hildur Björnsdóttir Setja bókamerki Úr ólíkum áttum, pistill Hildar Björnsdóttur úr Morgunblaðinu Nýr meirihluti hefur tekið við stjórn Reykjavíkur. Kjósendur kusu breytingar í nýafstöðnum kosningum og gerðu skýrt ákall um nýjar áherslur við stjórn borgarinnar. Við ætlum að svara því ákalli og ráðast í róttækar breytingar á stjórnskipulagi og rekstri borgarinnar, nýta tíma og fjármuni betur með það að markmiði að bæta þjónustu. Við ætlum að hlusta á ólíkar raddir borgarbúa, ávinna okkur traust og vinna að sátt um framtíð Reykjavíkur. Reykjavík á að veita framúrskarandi þjónustu og setja hagsmuni íbúa í fyrsta sæti. Lengi hafa málefni barnafólks setið á hakanum í höfuðborginni en tölfræðin ber þess glöggt merki. Hlutfall barna af mannfjölda Reykjavíkur fer sífellt lækkandi og börnum á leikskólaladri fækkar í Reykjavík en þeim fjölgar í nágrannasveitarfélögum. Fjölskyldur hafa kosið með fótunum. Nýr meirihluti setur málefni fjölskyldunnar í forgang en í borginni eiga fjölskyldur að geta treyst á þjónustu fyrir börn sín. Við blásum til stórsóknar í skólamálum, hyggjumst innleiða fjölbreyttar lausnir í leikskóla- og daggæslumálum og viljum auka aðgengi barna að skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Huga þarf að stórfjölskyldunni allri, búa vel að eldra fólki og tryggja því áhyggjulaust ævikvöld í Reykjavík. Við sitjum ekki auðum höndum heldur höfum lagt fram skýran verkefnalista sem komið verður til framkvæmda á fyrstu 100 dögum nýs kjörtímabils. Þegar hefur borgarstjórn samþykkt að fela borgarstjóra að hefja viðræður við ríkisstjórn og nágrannasveitarfélög um endurskoðun samgöngusáttmála, fjármögnun hans og framkvæmdahraða. Jafnframt hefur verið samþykkt að leita samstarfs við vinnustaði um rekstur leikskóla eða daggæslu, að stofna sérstakt öldungaráð og að ráðast strax í endurskoðun deiliskipulagstillögu fyrir Suðurlandsbraut. Á næstu vikum ætlum við jafnframt að setja okkur mælanleg markmið um aukinn árangur í skólastarfi, bæta umhirðu borgarlandsins, bregðast við bílastæðavandanum, fækka millistjórnendum og draga úr yfirbyggingu í borgarkerfinu svo eitthvað sé nefnt. Nýr meirihluti hyggst byggja þá Reykjavík sem fólk kallar eftir. Borg sem þjónustar fólkið – ekki kerfin. Frjálsa höfuðborg þar sem hver getur blómstrað á sinn hátt og freistað hamingjunnar á eigin forsendum. Við ætlum að fjárfesta í innviðum hverfanna, stórauka húsnæðisuppbyggingu og koma fólki hraðar á milli staða. Við viljum tryggja samkeppnis ­ hæfni borgarinnar með því að styðja við atvinnulíf, menningu og skapandi greinar. Reykjavík á að vera lifandi og skemmtileg, frjálslynd en ekki stjórnlynd og leggja áherslu á að mæta þörfum en ekki breyta þeim. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Hreif salinn sannarlega með sér Linda Ben: „Vinsælasta kakan gerð enn betri“ Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Pistill: Borg sem mætir þörfum Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íbúðaverð hækkaði um 103% á tíu árum Musk fyrsti billjónamæringur sögunnar Íhuguðu að kasta sér fram af brú Prinsessan er látin Mest lesið Í gær Í vikunni „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Myndir: Veðurblíða og stemning í miðbænum Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Bjuggu til app til að smala vinum saman Sex flugferðum aflýst í dag „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Nýjast á mbl.is » Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Hreif salinn sannarlega með sér Linda Ben: „Vinsælasta kakan gerð enn betri“ Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Pistill: Borg sem mætir þörfum Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Íbúðaverð hækkaði um 103% á tíu árum Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Mest lesið Í gær Í vikunni „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Myndir: Veðurblíða og stemning í miðbænum Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Bjuggu til app til að smala vinum saman Sex flugferðum aflýst í dag „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi

Share this article