Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Pírati varar við gervigreind

  • What: AI ethics discussion in a public forum
  • Impact: Public and policy makers
Read Full Article →

Hrafnarnir horfðu á Kastljós á þriðjudag og sáu þar Halldóru ­Mogensen, fyrrverandi þingmann Pírata, ræða gervigreind og hætturnar sem henni fylgja. Halldóra kom fram sem sérfræðingur í vísindanefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um gervigreind. Með henni í nefndinni sitja þekktir sérfræðingar á sviðinu, þar á meðal kanadíski tölvunarfræðingurinn Yoshua Bengio, einn af frumkvöðlum djúpnáms og handhafi Turing-verðlaunanna. Þá eru þar einnig sérfræðingar á borð við Miles Brundage og Raja Chatila. Segja má að Halldóra skeri sig nokkuð úr í hópnum, sem að öðru leyti er skipaður prófessorum, vísindamönnum og sérfræðingum á sviði gervigreindar. Menntun hennar er á sviði fatahönnunar. Það kom því hröfnunum ekki á óvart þegar hún sagði í Kastljósi að við skildum í raun ekki gervigreindina. Annars virðist Halldóra hafa verið skipuð í nefndina vegna starfa sinna í framtíðarnefnd ­Alþingis. Í kynningu nefndarinnar segir að hún hafi haft frumkvæði að rannsókn á áhrifum gervigreindar á lýðræðið, meðal annars með hliðsjón af því hvernig samfélög bregðast við kerfislægri áhættu, tæknibreytingum og breytingum í pólitískri umræðu. Halldóra var formaður framtíðarnefndar árið 2024. Samkvæmt upplýsingum Alþingis hélt nefndin einn fund það ár. Dagskrá fundarins er birt á vef þingsins en fundargerð virðist ekki liggja fyrir. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 10. júní 2026.

Share this article