Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kaleo vill halda tónleika á Þingvöllum

Read Full Article →

Hljómsveitin Kaleo vill halda tónleika á Þingvöllum í sumar. Þingvallanefnd hefur skrifað undir viljayfirlýsingu vegna tónleikahaldsins og nefndarmaður segir hana jákvæða gagnvart hugmyndinni, að því gefnu að tilskilin leyfi fáist. Skemmst er að minnast stórtónleika Kaleo í Vaglaskógi síðasta sumar sem hátt í 10 þúsund manns sóttu. Jakob Frímann Magnússon, tónleikahaldari, segir áætlað að tónleikarnir á Þingvöllum, sem áætlaðir eru 20. júní, verði með svipuðu sniði. Erindið var fyrst tekið fyrir á fundi Þingvallanefndar 25. september í fyrra og 22. október samþykkti nefndin viljayfirlýsingu vegna verkefnisins sem var í gildi til loka janúar. Á fundi nefndarinnar 14. janúar segir að þegar ítarleg áætlun og greinargerð liggi fyrir, og umsagnir allra umsagnaraðila, muni nefndin taka afstöðu. Á sama fundi hafnaði nefndin erindi tónleikahaldara um að fá að hefja miðasölu, þar sem enginn skriflegur samningur lægi fyrir. Sigurður Ingi Jóhannsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í Þingvallanefnd, segir verkefnið í vinnslu. Hann segir nefndarmenn hafa tekið ágætlega í hugmyndina, enda sé það vilji nefndarinnar að þjóðgarðurinn sé opinn almenningi. Sigurður Ingi segir þó mikilvægt að hugað sé að öllum þáttum og því muni nefndin ekki taka afstöðu fyrr en fyrir liggi umsagnir og tilskylin leyfi, svo sem frá lögreglu og heilbrigðiseftirliti. Jakob Frímann segir að vel verði hugað að öllum atriðum er varðar öryggi, umferð og hreinlæti. Hann býst við að stutt sé í að ákvörðun liggi fyrir og tónleikarnir verði kynntir.

Share this article